F.v.: KInga Korpak, GS, 2. sæti; Íslandsmeistarinn í höggleik 2013 Ólöf María Einarsdóttir, GHD og Sunna Björk Karlsdóttir, GR, 3. sæti. Mynd: GSÍ
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2013 | 21:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kinga Korpak —— 9. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Kinga Korpak. Kinga er fædd 9. desember 2003 og því 10 ára stórafmæli í dag. Hún er þrátt fyrir ungan aldur einn af afrekskylfingum GS og hefir spilað og staðið sig framúrskarandi vel á Íslandsbankamótaröðinni s.l. sumar. Þannig var  Kinga oft á sigurpalli þó hún hafi, eins og svo oft áður, verið að spila við sér miklu eldri stelpur.  Þar ber eflaust hæst að Kinga varð í 2. sæti á heimavelli sínum, Hólmsvelli í Leiru, á Íslandsmótinu í höggleik, í flokki stelpna 14 ára og yngri.

Elsku Kinga, innilega til hamingju með daginn þinn!!!

Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru: Pauline «Polly» Whittier (fædd 9. desember 1876 – dáin 3. mars 1946); Oliver Tom Kite, 9. desember 1949 (64 ára); Wil Besseling, 9. desember 1985 (29 ára); Anaïs Maggetti, frá Sviss, 9. desember 1990 (23 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is