Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 16:30

GK: Arnar B. Atlason var kjörinn nýr formaður GK – hagnaður 12,6 milljónir

83 félagar mættu á aðalfund Keilis sem haldin var í gærkvöldi í golfskálanum. Már Sveinbjörnsson stýrði fundinum af röggsemi, helstu rekstrarniðurstöður voru: Félögum fækkaði á milli ára um 3. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 27.3 m.kr og hagnaður ársins nam 12.6 m.kr. Smellið hér til að sjá ársskýrslu og reikninga stjórnar fyrir árið 2013 Bergsteinn Hjörleifsson hætti sem formaður Keilis, Bergsteinn hefur skipað formannsembættið í alls 10 ár og einn dag. Einnig hættu í stjórn Guðmundur  Haraldsson og Hálfdan Þór Karlsson. Guðmundur hefur setið í stjórn Keilis síðan 2000 og Hálfdan Þór Karlsson sem formaður í fjögur ár og stjórnarmaður síðan 2002. Bergsteini og Guðmundi voru veitt gullmerki Keilis Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 16:15

GK: Sigurlaug hlaut þrautseigjuverðlaun

Í gær fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði. Alls mættu 83 klúbbfélagar og kusu nýja stjórn sem gerð verður grein fyrir hér síðar. Einnig voru veitt ýmis verðlaun fyrir góða frammistöðu unglinga í GK. Sigurlaug Rún Jónsdóttir hlaut sérstök þrautseigjuverðlaun.


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 16:10

GK: Hekla Sóley hlaut framfarabikar stúlkna

Í gær, 9. desember 2013,  fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði. Alls mættu 83 klúbbfélagar og kusu nýja stjórn sem gerð verður grein fyrir hér síðar. Einnig voru veitt ýmis verðlaun fyrir góða frammistöðu unglinga í GK. Hekla Sóley Arnarsdóttir hlaut framfarabikar stúlkna 2013.


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 16:05

GK: Benedikt bikarmeistari

Í gær fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði. Alls mættu 83 klúbbfélagar og kusu nýja stjórn sem gerð verður grein fyrir hér síðar. Einnig voru veitt ýmis verðlaun fyrir góða frammistöðu unglinga í GK. Benedikt Sveinsson hlaut viðurkenningu fyrir að vera bikarmeistari GK.


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 16:00

GK: Henning Darri bjartasta vonin!

Í gær fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði. Alls mættu 83 klúbbfélagar og kusu nýja stjórn sem gerð verður grein fyrir hér síðar. Einnig voru veitt ýmis verðlaun fyrir góða frammistöðu unglinga í GK. Íslandsmeistarinn í höggleik í strákaflokki 2012, og í drengjaflokki 2013, Henning Darri Þórðarson, hlaut verðlaun fyrir að vera bjartasta von GK.


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 16:00

GK: Gísli hlaut framfarabikar drengja!

Í gær fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði. Alls mættu 83 klúbbfélagar og kusu nýja stjórn sem gerð verður grein fyrir hér síðar. Einnig voru veitt ýmis verðlaun fyrir góða frammistöðu unglinga í GK. Gísli Sveinbergsson hlaut framfarabikar drengja!


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 15:30

GK: Birgir Björn fékk háttvísibikar GSÍ!

Í gær fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði. Alls mættu 83 klúbbfélagar og kusu nýja stjórn sem gerð verður grein fyrir hér síðar. Einnig voru veitt ýmis verðlaun fyrir góða frammistöðu unglinga í GK. Sá sem hlaut háttvísibikar GSÍ er klúbbmeistari GK 2013, Birgir Björn Magnússon.


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 15:00

Hvað gerir nýliði á PGA Tour sem er fastur í umferð? – Myndskeið

Þið hafið eflaust ekki heyrt um John Peterson.  A.m.k. eru fæstir kylfingar, sem kannast við nafnið í golftengdum skilningi. Peterson varð T-2 á Web.com Tour finals og það varð nóg til þess að hann tryggði sér kortið sitt á PGA mótaröðina fyrir næsta keppnistímabil 2014. Það fölnar nú e.t.v. í samaburði við hugmyndina sem han fékk þegar hann lenti í umferðarsultu (bein þýðing ensku orðunum traffic jam) í Texas. Hann var sem sagt fastur í langri bílaröð, alveg pikkfastur á I-20 hraðbrautinni í Vestur-Texas og ákvað að taka nokkur æfingahögg, yfir gagnstæða akrein og inn í skóg. Þetta var tekið upp á myndband og má sjá afraksturinn með því að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 10:00

Tiger 5 ára í golfi – Myndskeið

Tiger kom fram í sjónvarpsþáttum vestur í Bandaríkjunum svo ungur sem 2 ára, þar sem undraverðum golfhæfileikum hans voru gerð skil.  Hér í þessu 4 mínútna myndskeiði er m.a. sýnt frá Tiger 5 ára þar sem hann kom fram í þættinum „That´s Incredible!“ Síðan eru sagnir föður hans um stjörnuna!  Hann segir m.a. að foreldrar eigi að styðja börn sín og hæfileika þeirra í því sem þau velja sér. Best er að sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 09:30

Olazabal og Nadal með góðgerðar Pro-Am

Fyrrum Ryder-Cup fyrirliðinn Jose Maria Olazabal og tennisstjarnan Rafael Nadal voru með góðgerðar Pro-Am mót á Spáni í s.l. viku, sem fram fór á Malljorca. Þeir sem nutu góðs af mótinu voru Sport Mundi í eigu Olazabal og Rafael Nadal Foundation, sem dreifir fé stjörnunnar til ýmissa góðgerðarmála. „ Ég tek mér Tiger Woods til fyrirmyndar,“ sagði Rafa m.a. í viðtali sem tekið var við þá félaga fyrir góðgerðarmótið. „Frá upphafi og til loka mótsins, segi ég varla orð við keppinauta mína; og ég hrósa þeim sko alls ekki fyrir gott högg. Þeir kvarta, verða reiðir og blóta mér í sand og ösku fyrir dónaskap minn.“ „Sagt er að ég Lesa meira