Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2013 | 21:30

Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Sveinsson – 12. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Benedikt Sveinsson. Benedikt er fæddur 12. desember 1994 og því 19 ára í dag. Benedikt er afrekskylfingur í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.  Hann spilaði á  Eimskipsmótaröðinni sl. sumar með góðum árangri.

Nú á nýafstöðnum aðalfundi Golfklúbbsins Keilis hlaut Benedikt m.a. viðurkenningu fyrir að verða bikarmeistari Keilis 2013.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Benedikt Sveinsson (19 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Shirley Englehorn, 12. desember 1940 (73 ára);  Philip Parkin, 12. desember 1961 (52 ára);  Deane Pappas, 12. desember 1967 (46 ára);  Ryuichi Oda, 12. desember 1976 (37 ára);  Joanne Clingan, 12. desember 1978 (35 ára);  Danah Bordner, 12. desember 1980 (33 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is