Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 21:00
GKJ: 12.8 milljón króna hagnaður – stjórnin endurkjörin

Aðalfundur Golfklúbbsins Kjalar fór fram fimmtudaginn 12. desember síðastliðinn. Tæplega 13 milljón króna hagnaður var af rekstri golfklúbbsins á árinu og stóðust rekstraráætlanir að mestu leyti fyrir árið þrátt fyrir fremur erfitt veðurfar til golfiðkunar. Stjórn GKj gaf kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og var Guðjón Karl Þórisson endurkjörinn formaður klúbbsins, og hefur hann nú sitt annað ár sem formaður klúbbsins. Golfklúbburinn Kjölur hefur vaxið á undanförnum árum og var fjöldi klúbbmeðlima um 800 talsins á árinu og hafði þeim fjölgað um tæp 10% frá árinu á undan. Í heildina jukust rekstrartekjur klúbbsins um tæp 7% frá árinu á undan. Mikil aukning hefur einnig verið í unglinga- og afreksstarfi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 20:45
Afmæliskylfingur dagsins: Paul McGinley ——- 16. desember 2013

Það er írski kylfingurinn Paul McGinley og aðstoðarfyrirliði undanfarandi Ryder Cup liða Evrópu og fyrirliði Ryder bikars liðs Evrópu sem keppir í Gleneagles, Skotlandi á næsta ári, sem er afmæliskylfingur dagsins. McGinley er fæddur 16. desember 1966 og því 47 ára í dag. Meirihluti kraftaverkaliðs Evrópu í Medinah var á því að gera ætti McGinley að fyrirliða liðs Evrópu í Ryder Cup. Þar beittu landar McGinley sér einkum fyrir því að hann yrði fyrirliði m.a. Rory McIlroy og Pádraig Harrington. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Steven Spray, 16. desember 1940 (73 ára); Brian Clark, 16. desember 1963 (50 ára stórafmæli!!!!); Cathy Johnston-Forbes, 16. desember 1963 (50 ára stórafmæli!!!); Brent Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 20:30
Moe Norman – kylfingurinn með beinu höggin, sem á 34 vallarmet (4/8)

Kanadíski kylfingurinn Murray Irwin Norman alltaf kallaður Moe var e.t.v. einn besti kylfingur heims á sínum tíma í að slá bein högg. Vegna þess hversu bein högg Moe voru var hann uppnefndur „Pipeline Moe.” Hann lenti í slysi þegar hann var 5 ára og var talið að hann hefði hlotið heilaskaða. A.m.k. varð hann aldrei eins og fólk er flest. Hann var einfari, sérvitur og mörgum fannst hann skrítinn. Hann var með ákveðnar skoðanir á golfinu. Moe átti oft erfitt í lífinu, en hann var góður karl inn við beinið. Moe gerðist atvinnumaður í golfi 1957 og sigraði í 55 mótum um ævina; átti m.a. nokkra hringi upp á 60 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 08:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: James Heath (16/27)

Í dag verður lokið við að kynna þá 5 stráka, sem deildu 12.-16. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir Patrik Sjöland, Brinson Paolini, Jens Dantrop, Simon Wakefield og James Heath. Allir léku þeir á samtals 11 undir pari, 417 höggum og hlutu € 3.170 í verðlaunafé. Nú þegar allir verið kynntir nema James Heath, sem varð í 12. sæti, en hann var einn af 5 enskum kylfingum, fjölmennasta hópnum sem komust á Evróputúrinn að þessu sinni í gegnum Q-school en hinir voru Adam Gee, Daniel Brooks, Simon Wakefield og James Morrisson. Heath spilaði á (69 71 70 69 69 69). James Heath fæddist 17. mars 1983 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 05:45
PGA: Kuchar og English sigruðu í Franklin Templeton Shootout

Matt Kuchar og Harris English sigruðu á Franklin Templeton Shootout, voru á 14 undir pari 58 höggum í gær á lokahringnum í scramblinu á sunnudaginn og settu nýtt vallarmet í mótinu. Samtals voru Kuchar og English á 34 undir pari 182, og spiluðu síðustu 28 holurnar í Tiburon á 25 undir. Þeir hófu keppnina á 64 höggum á föstudeginum, þar sem hvor þeirra tók högg til skiptis og voru á 60 í betri bolta á laugardeginum. Kuchar/English liðið átti 7 högg á þá Retief Goosen og Fredrik Jacobsen og jöfnuðu þar með líka mótsmetið á mesta mun á liði í 1. og 2. sæti, en fyrra met áttu þeir Curtis Strange Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2013 | 18:00
Ekki öll nótt úti enn hjá Valdísi!!!

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL lék 2. hring á lokaúrtökumóti LET – Lalla Aicha Tour School Final Qualifying – langt frá sínu besta í dag á 82 höggum og er í 88. sæti sem stendur. ÞAÐ Á ENN EFTIR AÐ SPILA 2 HRINGI – það skyldu þeir hafa hugfast sem fljótir eru að afskrifa Valdísi Þóru. Hlutirnir eru afar fljótir að breytast í golfi og með einum hring getur staðan breyst, það þekkja allir kylfingar!!! Eins og staðan er nú þarf að vera á samtals 4 yfir pari samtals til þess að komast í lokahringinn. Valdís er 8 höggum frá því takmarki. Það verður erfitt fyrir hana að vinna það upp Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2013 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Don Johnson ——– 15. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Don Johnson. Don er fæddur 15. desember 1949 og því 64 ára í dag. Don er leikari og mikill áhugakylfingur, einn sá besti af Hollywood-genginu, með 8,3 í forgjöf. Þekktastur er Don eflaust þekktur fyrir hlutverk sitt sem „Sonny“ Crockett í Miami Vice þáttunum og fyrir að hafa verið kvæntur Melanie Griffith áður en hún giftist Antonio Banderas. Don og Melanie eiga saman dótturina Dakota. Nú í seinni tíð er Don Johnson eflaust einnig þekktur fyrir leik sinn í „Django Unchained“. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jeev Milkha Singh, 15. desember 1971 (42 ára); Jane Park, 15. desember 1986 (27 ára); Nontaya Srisawang, frá Thaílandi 15. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2013 | 14:00
Moe Norman – Kylfingurinn sem vann 55 mót á ferli sínum (3/8)

Kanadíski kylfingurinn Murray Irwin Norman alltaf kallaður Moe var e.t.v. einn besti kylfingur heims á sínum tíma, í að slá bein högg. Hann sló svo beint og svo stöðugt beint, að hann var uppnefndur „Pipeline Moe.” Hann á 3 hringi upp á 59 högg og sigraði 55 sinnum á atvinnumannsferli sínum, en Moe gerðist atvinnumaður í golfi 1957. Hann var í einu orði sagt Frábær! Þegar Moe var 5 ára lenti hann í bílslysi og var talið að hann hefði orðið fyrir heilaskaða og varð hann aldrei samur eftir. Hann var a.m.k. ekki eins og fólk er flest; var einfari, sérvitur og átti oft erfitt um ævina. En kylfingur var Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2013 | 13:45
Garcia sigraði í Thaílandi!

Spænski kylfingurinn Sergio Garcia lék lokahringinn á Thaíland Golf Championship á 4 undir pari, 68 höggum og krækti sér þar með í fyrsta sigur sinn á árinu. Á lokahringnum fékk Garcia 6 fugla og 2 skolla og var samtals á 22 undir pari, 266 höggum. Nr. 1 í Evrópu Henrik Stenson var líka á 68 með 5 fuglum og 1 skolla í Amata Spring Country Club, en tókst aldrei að setja Garcia undir neina alvarlega pressu. Hann varð í 2. sæti 4 höggum á eftir Garcia á samtals 18 undir pari, 270 höggum. Í 3. sæti varð síðan Frakkinn Alexander Levy enn 4 höggum á eftir Stenson þ.e. á 14 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2013 | 12:45
Valdís Þóra á 5 yfir pari eftir fyrri 9 á 2. degi í Marokkó

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, er nú búin að spila fyrri 9 á lokaúrtökumóti LET; Lalla Aicha Tour School Final Qualifying í Marokkó. Í dag er leikinn golfvöllur Samanah golfklúbbsins en í gær var Al Maaden völlurinn spilaður. Öfugt við í gær byrjaði Valdís Þóra vel, var á pari fyrstu 2 holurnar og náði síðan fugli á 3. holu sinni (12. holu Samanah vallarins). Síðan seig á ógæfuhliðina. Á 14. og 15. holum fékk hún skolla og síðan þrefaldan skolla á par-3 17. holunni og lauk síðan fyrri 9 (þ.e. 18. holu) með skolla. Staðreyndin 5 yfir pari eftir fyrri 9. Það er vonandi að Valdís Þóra endurtaki leikinn frá því Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

