Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 08:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: James Heath (16/27)

Í dag verður lokið við að kynna þá 5 stráka, sem deildu  12.-16. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013.

Þetta voru þeir Patrik SjölandBrinson Paolini, Jens Dantrop, Simon Wakefield og James Heath.

Allir léku þeir á samtals 11 undir pari, 417 höggum og hlutu € 3.170 í verðlaunafé.  Nú þegar allir verið kynntir nema James Heath, sem varð í 12. sæti, en hann var einn af 5 enskum kylfingum, fjölmennasta hópnum sem komust á Evróputúrinn að þessu sinni í gegnum Q-school en hinir voru Adam Gee, Daniel Brooks, Simon Wakefield  og James Morrisson.

Heath spilaði á (69 71 70 69 69 69).

James Heath fæddist 17. mars 1983 í Kingston á Englandi og er því 30 ára. Hann byrjaði að spila golf 10 ára.  Í dag býr hann í Worcester Park og er félagi í Robert Heath Heating klúbbnum. Heath gerðist atvinnumaður 2004 og hefir síðan þá tekið 7 sinnum þátt í Q-school en þetta er í fyrsta sinn sem hann kemst á mótaröðina frá árinu 2007, þegar hann komst fyrst í gegn.

Heath fór beint inn á 2. stigið og spilaði og sigraði í Las Colinas áður en hann fór í lokaúrtökumótið.  Hann átti gríðarlega góðan áhugamannaferil þar sem hann sigraði m.a. English Amateur Championship og Lytham Trophy árið 2004. Hann setti nýtt mótsmet í Lytham Trophy’s þ.e. bætti það um 10 högg og var á 5 höggum betra skori en Tom Lehman þegar hann sigrði  Opna breska á Royal Lytham and St Annes árið 1996. Heath er nemandi Sir Nick Faldo,og vann m.a. Faldo Series árið 2002 og varð síðan fyrsti félagi í Team Faldo, slík voru áhrifin sem hann hafði á sexfalda risamótsmeistarann (Faldo). Faldo er enn að gefa honum ráð og hjálpa og liðka til fyrir Heath.  Heath hefir m.a. sigrað á  ECCO Tour Championship í Danmörk.

Loks mætti geta að meðal áhugamála Heath er borðtennis, að hlusta á tónlist og eldamennska.