Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2013 | 12:45

Golfsvipmynd dagsins: Snjór yfir Augusta National

Golden Bell par-3 brautin í Amen Corner á Augusta National er líklega ein þekktasta par-3 holan í öllum heiminum. Hún er 155 yardar (142 metra) að lengd. Þetta er mjög þröngt skotmark, vatn fyrir framan, vandræði að aftan. Á þessari braut hafa skorin verið æði misjöfn, allt frá ásum til 13 högga Tom Weiskopf árið 1980. Hér er kylfuvalið erfitt. Við erum vön að sjá þessa braut blómum skrýdda á öllum hliðum í apríl á Masters mótinu, en ekki eins og á meðfylgjandi mynd þar sem Golden Bell er algerlega á kafi í snjó, en myndina tvítaði yfir-viðhaldsmaðurinn á Augusta National. 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2013 | 12:00

Paula Creamer trúlofuð

Bleiki pardusinn alías Paula Creamer tvítaði í gær, 16. desember 2013, að hún væri búin að trúlofa sig. Tvítið var svohljóðandi: What an amazing day yesterday!!”@ThePCreamer tweeted. “#goingtomarrythemanofmydreams #iamengaged” (Lausleg þýðing: Þvílíkur frábær dagur í gær!!“ Ég ætla að giftast manni drauma minna# ég er trúlofuð“) Paula Creamer er fædd 5. ágúst 1986 og er því 27 ára.  Minna er vitað um kærasta hennar, nema hvað myndir sem fylgdu benda til að hann sé flugmaður (Sjá hér fyrir neðan). Í enskumælandi golffréttamiðlum er þó talað um leynimanninn eða ens. The Mystery-man.  


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2013 | 11:00

Moe Norman – kylfingurinn með beinu höggin, sem fór 17 sinnum holu í höggi – (5/8)

Kanadíski kylfingurinn Murray Irwin Norman alltaf kallaður Moe var e.t.v. einn besti kylfingur heims á sínum tíma í að slá bein högg. Vegna þess hversu bein högg Moe voru var hann uppnefndur „Pipeline Moe.” Hann lenti í slysi þegar hann var 5 ára og var talið að hann hefði hlotið heilaskaða. A.m.k. varð hann aldrei eins og fólk er flest. Hann var einfari, sérvitur og mörgum fannst hann skrítinn. Hann var með ákveðnar skoðanir á golfinu. Moe átti oft erfitt í lífinu, en hann var góður karl inn við beinið. Moe gerðist atvinnumaður í golfi 1957 og sigraði í 55 mótum um ævina; átti m.a. nokkra hringi upp á 60 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2013 | 09:15

Scott tapar á sölu fasteignar

Adam Scott tapaði stórt í fasteignaviðskiptum, nánar tiltekið við sölu á íbúð sinni. Masters sigurvegarinn (Scott) keypti umrædda eign 2004 fyrir  $4.4 milljónir og seldi hana fyrir aðeins $1.94 milljónir skv.  The Daily Telegraph, sem er tap upp á næstum $2.5 milljónir. Íbúðin er metin át $4.4 milljónir þannig að salan er líklega langt undir því sem Scott hefir búist við að fá. Það er yfirleitt svo að fasteignir seljist undir ásettu verði, jafnvel matsverði en að fá aðeins 50% af matsverði verður að teljast fremur klént.  Spurning hvað hafi valdið að Scott tók í mál að selja á þessu verði; hann er varla á flæðiskeri staddur fjárhagslega – a.m.k. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2013 | 09:00

Rose tekur ekki þátt í heimsmótinu í holukeppni

Justin Rose hefir gefið út að hann ætli sér ekki að taka þátt í heimsmótinu í holukeppni þ.e. WGC-Accenture Match Play Championship, þar sem houm finnst að hann þurfi að hvíla sig. Sigurvegari Opna bandaríska (Rose) hefir tilkynnt að hann ætli að hvíla kylfurnar í febrúar en það er á þeim tíma sem heimsmótið fer fram. „Ég hef hugsað mér að taka mér mánaðarfrí í kringum febrúar,“ sagði Rose í viðtali við The Telegraph. „Þetta hefir verið svo annasamt ár og ég held bara að ég þurfi að endurhlaða batteríin á þessum tíma.“ Rose vill eflaust koma ferskur til leiks á fyrsta risamóti ársins, the Masters í Augusta National í apríl, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2013 | 08:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: James Morrison (17/27)

Í dag verður hafist handa  við að kynna þá 4  stráka, sem deildu  8.-11. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir James Morrison, Stuart Manley, Wade Ormsby og Connor Arendell.  Allir léku þeir á samtals 12 undir pari, 416 höggum og hlutu € 4.085 í verðlaunafé.  Í dag verður byrjað á að kynna James Morrisson, sem varð í 11. sæti, en hann var einn af 5 enskum kylfingum, fjölmennasta hópnum sem komust á Evróputúrinn að þessu sinni í gegnum Q-school en hinir voru Adam Gee, Daniel Brooks, Simon Wakefield  og James Heath. Morrison spilaði á (72 67 63 70 71 73). James Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 22:00

Valið um heitasta kylfinginn stendur sem hæst

Golf Digest stendur um þessar mundir fyrir vali á heitasta kylfingnum, en um netkosningu er að ræða. Búið er að njörva niður þá sem þátttakendur eiga val um að velja niður í 8 kvenkylfinga og 8 karlkylfinga. Meðal kvenkylfinga eru Belen Mozo, Beatriz Recari og Blair O´Neil.  Meðal kynþokkafyllstu karlkylfingskandídata eru Adam Scott, Jason Day og Ryo Ishikawa. Sjá má myndaseríu af þeim sem til greina komast, sem þeir heitustu með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 21:45

Frægir kylfingar: Justin Bieber í golfi – Myndskeið

Justin Bieber sendi þeim 48 milljónum sem fylgja honum á Twitter eftirfarandi myndskeið af sér í „golfi“ SMELLIÐ HÉR:  Meðal þeirra sem „followa“ eða fylgja Bieber á Twitter eru Bubba Watson, Jessica Korda, Lexi Thompson, Reilly Rankin, Rickie Fowler, Suzann Pettersen og John Daly. Bieber hefir sést af og til í golfi og er þeim Bubba Watson orðið vel til vina. En satt besta að segja að ef Bubba hefði ætlað sér að pútta með kjuða hefði hann eflaust látið (Harris) English um málið!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 21:30

Valdís á 82 höggum 3. hringinn

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL lék 3. hring á lokaúrtökumóti LET – Lalla Aicha Tour School Final Qualifying – líkt og á 2. degi þ.e. á 82 höggum og er í næstneðsta sæti, þ.e. 93. sæti, en keppendur eru 94. Í dag var Al Maaden golfvöllurinn leikinn að nýju, en á fyrsta hring náði Valdís Þóra skori upp á 74 högg á þeim hring. Samtals er Valdís Þóra búin að spila á samtals 22 yfir pari, 238 höggum (74 82 82).  Í dag fékk hún 1 fugl, 7 skolla og 1 skramba. Það virðist nokkuð öruggt að Valdís Þóra nær ekki að vera meðal 60 efstu sem spila lokahringinn og þ.á.m. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 21:15

PGA: Connor og Stewart Cink sigruðu í feðra/sona mótinu

Stewart og Connor Cink sigruðu á feðra/sona mótinu (ens: PNC Father/Son Challenge) í gær, þ.e. sunnudaginn 15. desember eftir að þeim tókst að setja niður tvo erni á síðustu 5 holum sínum. Þeir áttu 3 högg á næstu menn í þessu scramble móti. Connor Cink, sem er fyrstaársnemi í Clemson, sem fannst hokkí skemmtilegra en golf sem táningur, kom feðgunum yfir þegar hann sökkti 10 metra arnarpútti  á 14. holu.  Pabbinn, Stewart Cink setti síðan niður 7 metra arnarpútt á 18. holunni. Þeir voru á 11 undir pari, 61 höggi og á samtals 22 undir pari. „Við hittum bara þarna úti,“ sagði Stewart Cink sem er sigurvegari Opna breska 2009. Lesa meira