Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2013 | 16:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: John Hahn – (21/27)

Í dag verður byrjað að kynna þá 3  stráka, sem deildu  5.-7.  sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir John Hahn, Adrien Saddier og Michael Lundberg. Allir léku þeir á samtals 13 undir pari, 415 höggum og hlutu € 5.240,- í verðlaunafé. Í dag verður bandaríski kylfingurinn John Hahn kynntur en hann varð í 7. sæti í Q-school, lék á (66 66 73 68 71 71). John Hahn var í hóp Bandaríkjamanna sem voru næstfjölmennastir strákanna 27 sem komust á Evrópumótaröðina eða 4, næstir á eftir enskum kylfingum sem voru fjölmennastir eða 5. Hinir 3 bandarísku kylfinganna, sem ásamt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2013 | 13:00

Charley Hull vann British Ladies National Championship 9 ára (2/5)

Fyrir 8 árum síðan, þegar Charley Hull var aðeins 9 ára, vann hún British Ladies National Championship í Turnberry. Umboðsmaður hennar, Joe McQuade, sem er gamall fjölskylduvinur Hull fjölskyldunnar, sagði skemmtilega sögu af því þegar formaður/kapteinn Kettering golfklúbbsins náði í Hull til þess að keyra hana á mótið. Charley var enn svo lítil að hún þarfaðist að sitja í sérstökum upphækkuðum barnastól.  Þegar þær komu á mótsstaðinn hellti Hull sér út í keppnina þar sem 24.000 konur höfðu keppst um í úrtökumótum að fá að taka þátt í. Þarna voru samankomnar allar bestu áhugakvenkylfingar í Bretlandi og hin 9 ára Charley vann þær allar – stökk síðan upp í barnastólinn sinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2013 | 12:00

Olazabal gagnrýnir EurAsia Cup – Evrópa vann Asíu í Royal Trophy

José María Olázabal hefir gagnrýnt stofnun hinnar nýju Ryder bikars keppni, EurAsia Cup, milli liða Evrópu og Asíu, sem hefst  í Malasíu á næsta ári og er samstarfsverkefni Evópumótaraðarinnar og Asíutúrsins.  (Asíutúrinn sá áður um mót kínverska golfsambandsins áður en það kaus fremur að OneAsia túrinn skyldi sjá um þau mót). Olázabal  var fyrirliði liðs Evrópu í Royal Trophy þar sem  lið Asíu þurfti aðeins 3,5 stig úr 8 ltvímenningsleikjum lokadagsins í dag til sigurs. Leikar fóru hins vegar svo að Asía hlaut aðeins 2,5 stig þ.e. Kiradech Aphibarnrat vann leik sinn gegn Paul Lawrie 3&2; Thongchai Jaidee vann leik sinn gegn Stephen Gallacher og Kim K.T. hélt jöfnu gegn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2013 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Thorbjørn Olesen – 21. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er danski kylfingurinn Thorbjørn Olesen.  Thorbjørn er fæddur í Furesø, Danmörku 21. desember 1989 og á hann því 24 ára afmæli í dag. Hann gerðist atvinnumaður, 2008, aðeins 18 ára. Hann varð í 4. sæti strax á 1. keppnistímabili sínu á Nordea mótaröðinni, 2009, þar sem hann vann 3 mót og fékk þar með kortið sitt á Áskorendamótaröð Evrópu 2010. Það sumar, í júlí 2010, vann hann fyrsta mót sitt á Áskorendamótaröðinni, The Princess, sem haldið var í Svíþjóð. Hann varð nr. 3 á stigalista Áskorendamótaraðarinnar og hlaut þar með kortið sitt á Evrópumótaröðinni, 2011. Í desember 2010 varð Olesen í 2. sæti á Alfred Dunhill Championship, fyrsta mótinu á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2013 | 16:45

Hnéð gaf sig hjá Lindsey

Lindsey Vonn missti hlið í keppninni í Val d´Isere í dag og sagði að hnénu hefði verið um að kenna. „Ég meiddi mig ekkert meira en ég er nú þegar sár,“ sagði Vonn við fréttamenn. „Því miður er ég með ACL (anterior cruciate ligament) og þau meiðsl urðu til þess að hnéð á mér brást í dag.“ „… ég var með þungan á hægra skíðinu og hnéð bara gaf sig. Ég reyndi að setja pressu á skíðið aftur og það (hnéð) bara gaf sig eftir. Ég átti aldrei möguleika á að ná þessu hliði, því miður.“ Lindsey meiddist sem kunnugt er í Schladming í Austurríki s.l. febrúar og meiðslin tóku Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2013 | 16:15

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Laura Jansone (2/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 5 stúlkur sem deildu 27. sætinu (voru jafnar í 27.-31. sætinu) og rétt sluppu inn á mótaröðina með skor upp á samtals 2 yfir pari, 362 högg:   Bonita Bredenhann,  Lucy Williams, Victoria Lovelady , Laura Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2013 | 16:00

Tiger ætlar að verja meiri tíma með Lindsey og börnunum

Lindsey Vonn keppir í dag í heimsbikarnum í bruni í Val d’Isere, Frakklandi og er undir aukinni pressu, þar sem Tiger er mættur á svæðið að fylgjast með henni. Lindsey hefir verið dugleg að fylgjast með Tiger á þeim mótum sem hann hefir spilað í, en þetta er í fyrsta sinn sem Tiger hefir sést á móti sem Lindsey keppir í, síðan hann staðfesti í mars s.l. að þau væru saman. Fyrsta mótið sem hún keppti í eftir slys sitt í Schladming í Austurríki, þ.e. við Lake Louise í Kanada, missti Tiger af þar sem hann var gestgjafi í móti sínu: World Challenge í Thousand Oaks, Kaliforníu. Fjórtánfaldur risamótsmeistarinn (Tiger) og Lindsey Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2013 | 13:45

Nýju strákarnir á Evróputúrnum: Connor Arendell (20/27)

Í dag verður fram haldið að kynna þá 4  stráka, sem deildu  8.-11. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir James Morrison, Stuart Manley, Wade Ormsby og Connor Arendell, en af þeim hafa allir nema Connor Arendell þegar verið kynntir. Allir léku þeir á samtals 12 undir pari, 416 höggum og hlutu € 4.085 í verðlaunafé. Í dag verður Connor Arendell kynntur en hann varð í 8. sæti í Q-school, lék á (72 70 71 65 70 68). Connor Arendell var í hóp Bandaríkjamanna sem voru næstfjölmennastir strákanna 27 sem komust á Evrópumótaröðina eða 4, næstir á eftir enskum kylingum sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2013 | 13:00

GSÍ: Afrekshópar 2014 valdir

Úlfar Jónsson fráfarandi landsliðsþjálfari og Ragnar Ólafsson liðsstjóri hafa valið þá kylfinga sem skipa munu afrekshóps GSÍ á næsta ári. Úlfar og Ragnar munu brúa bilið þangað til nýr til landsliðsþjálfari hefur verið ráðinn. Framundan næsta sumar eru mörg spennandi verkefni, svo sem Evrópumót karla, kvenna, pilta og stúlkna, auk annara verkefna. Því er til mikils að vinna að leggja hart að sér við æfingar í vetur, og umfram allt kappkosta að góðri einbeitingu og gæðum á æfingum. Aukaæfingar skipta gríðarlega miklu máli fyrir ykkur til að ná sem mestum framförum. „segir Úlfar Jónsson í tilkynningu sinni til kylfingana um valið. Í afrekshóp GSÍ 2014 eru 54 kylfingar; 17 úr Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2013 | 10:30

Um grein Michael Kelly: „Góðar ástæður fyrir golfklúbbum þar sem körlum er einum veitt félagsaðild“ (2/5)

Ein af ástæðunum, sem Michael Kelly nefnir  í grein sinni í The Scotsman: „Good reasons for male-only clubs“  (Lesa má greinina með því að SMELLA HÉR:)  fyrir tilverurétti golfklúbba þar sem aðeins karlmenn mega eiga félagsaðild að er að það sé ekki ólöglegt að útiloka konur. M.ö.o. löggjafinn bannar ekki klúbba þar sem konum er bannað að gerast félagar. Það má m.a. sjá í eftirfarandi setningum í grein hans; í upphafi: Male-only clubs have the legal right to keep out women and while it is legal, they must not be persecuted for excercising it  (Lausleg þýðing: Golfklúbbar sem einungis heimilar körlum félagsaðild hafa lagalegan rétt til að útloka konur og meðan að það er Lesa meira