Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2013 | 11:30

PGA: Hverjir eru líklegastir til stórafreka árið 2014? – Myndskeið

Spurningin stóra er hvaða kylfingur þykir á þessu ári 2013 hafa leitt líkum að því að hann muni hreint út sagt blómstra á árinu 2014? Mun Tiger aftur vinna risamót 2014? Heldur Adam Scott áfram að sigra í risamótum? Kemur Phil á óvart nú þegar hann ætlar að spila í færri mótum og mæta ferskur til leiks í hvert sinn? Á McIlroy „comeback“ eftir slælegt ár? Spurning hvort svona vangaveltur eigi rétt á sér því alltaf eru einhverjir sem koma á óvart, sbr. Henrik Stenson, sem ekki þótti líklegur til stórræðna í upphafi árs 2013, en sló svo rækilega í gegn.  Já, það væri bara ekkert gaman ef ekkert óvænt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2013 | 10:30

George O´Grady: „Ég hef fengið að gjalda fyrir Sergio Garcia ummælin í Wentworth.“

George O’Grady hefir átt betri ár en 2013. Framkvæmdastjóri Evrópumótaraðarinnar hlaut mikla gagnrýni, þ.á.m. frá stórkylfingum fyrir skipulag fyrstu Final Series. En einnig nú í maí s.l. voru gagnrýnisraddir gegn framkvæmdastjóranum háværar þegar hann reyndi að koma Sergio Garcia til varnar vegna „djúpsteikta kjúklings commenti“ Sergio við Tiger, en beindi þar með allri athygli að sér. Í beinni sjónvarpsútsendingu sagði O´Grady: „Flestir vina Sergio eru litaðir kylfingar frá Bandaríkjunum.“  Hann var undireins undir harðri gagnrýni frá kynþáttaréttindahópum og fréttamönnum vegna fornlegs orðalags síns. Framkvæmdastjórastaða hans þótti jafnvel vera í hættu á tímabili. Nú í fyrsta sinn tjáir O´Grady sig um Wentworth atburðinn og allri neikvæðninni sem beint var að honum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2013 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Daníel Chopra —– 23. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Daníel Chopra.  Daniel Samir Chopra fæddist 23. desember 1973 í Stokkhólmi og á því 40 ára merkisafmæli í dag!!! Hann á sænska móður og indverskan föður og fluttist 7 ára til Indlands, þar sem hann ólst upp hjá föðurforeldrum sínum. 14 ára sigraði hann All-India Junior Golf Championship. Árið 1992 gerðist Chopra atvinnumaður í golfi. Á árunum 1996 til 2002 spilaði hann á Evróputúrnum og náði stundum ekki að endurnýja kortið sitt, en árið 2004 komst hann á PGA Tour. Árið 2007 vann hann fyrsta mót sitt á PGA Tour þ.e Ginn sur Mer Classic í Tesoro. Eftir tvö önnur PGA Tour mót náði hann að sigra að nýju á PGA Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2013 | 23:00

Kaymer og Ko segja þjálfurunum sínum upp

Leiðir Lydiu Ko og þjálfara hennar til langs tíma, Guy Wilson, hafa skilið. Þau tvö hafa starfað saman frá því Ko var 5 ára og á 10 árum hefir Wilson áorkað því að Ko er nr. 4 á heimslistanum aðeins 15 ára. Sem ástæðu skilnaðarins sagði Lydia að Wilson væri skuldbundinn í verkefnum í Nýja-Sjálandi og það þýddi að hún gæti aðeins hitt hann 10 sinnum á ári. „Þetta virkar ekki fyrir mig og það er þess vegna sem mér fannst betra að hafa þjálfara sem væri staðsettur einhvers staðar í Bandaríkjunum,“ sagði Ko m.a. „Við höfum varið miklum tíma saman s.l. 10 ár og á þeim tíma hef ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2013 | 10:30

Lee Westwood ekki með í Ryder Cup?

Nú eru „bara“ 9 mánuðir í næstu Ryder Cup keppni. Eins og staðan er nú lítur svo út að Lee Westwood verði ekki með, …. nema hann verði eitt af „villtu kortum“ fyrirliða Evrópu, Paul McGinley. Ef hann ætlar sér að vera með í Gleneagles verður Westy að spila mun betur fyrstu 6 mánuði ársins 2014 en hann hefir gert síðustu 6 mánuði ársins sem er að líða. Þetta er alger synd því einungis Sir Nick Faldo, Bernhard Langer, Colin Montgomerie og Seve Ballesteros hafa safnað fleiri stigum fyrir Evrópu í Ryder Cup keppnum en hann frá því að hann spilaði fyrst í þessari vinsælu liðaholukeppni karla í Valderrama árið 1997. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2013 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Victoria Lovelady (3/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 5 stúlkur sem deildu 27. sætinu (voru jafnar í 27.-31. sætinu) og rétt sluppu inn á mótaröðina með skor upp á samtals 2 yfir pari, 362 högg:   Bonita Bredenhann,  Lucy Williams, Victoria Lovelady , Laura Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2013 | 09:00

Andri Þór lauk leik í 58. sæti

Andri Þór Björnsson, GR, tók þátt í Diixie Amateur Championship, en mótið fór fram í Heron Bay Golf Club, í Coral Springs, Flórída. Mótið stóð dagana 19.-22. desember 2013 og lauk því í gær. Samtals lék Andri Þór á 8 yfir pari, 296 höggum (66 76 76 78) og varð í 58. sæti af 219 þátttakendum. Eftir 1. dag var Andri Þór í 1. sæti eftir stórglæsilegan hring upp á 6 undir pari, 66 höggum, en náði því miður ekki að fylgja því eftir. Engu að síður flottur árangur hjá Andra Þór, sem varð meðal topp 30% þátttakenda.  Sigurvegarar mótsins urðu Jack Maguire og „heimamaðurinn“ Curtis Thompson, bróðir LPGA kylfingsins Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2013 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Aðalsteinsdóttir – 22. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Kristín Aðalsteinsdóttir. Kristín er fædd 22. desember 1972 og á því 41 árs afmæli í dag!!! Kristín er í Golfklúbbi Setbergs Kristín hefir spilað víða erlendis m.a. á Spáni  og í Golfclub Ozo í Lettlandi. Með fullu starfi hjá Hópbílum þjálfar Kristín 5. flokk stelpna í handbolta hjá ÍR. Kristín er gift Val Benedikt Jónatanssyni og eiga þau 2 börn: Hrafnhildi Völu, 10 ára og Gísla Hrafn, sem varð 7 ára fyrir 3 dögum síðan. Komast má á facebook síðu Kristínar til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan: Kristín Aðalsteinsdóttir (40 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2013 | 19:00

Golfsvipmyndir ársins 2013

Fréttamenn Golf Digest hafa tekið saman golfsvipmyndir ársins 2013, eða árið í myndum eins og þeir kjósa að kalla myndaseríuna. Um er að ræða golfmyndir af einhverjum stærstu og eftirminnilegust viðburðum innan golfíþróttarinnar árið 2013. M.a. þegar Adam Scott sigraði á Masters, ein mynd er af Phil Mickelson á Muirfield á Opna breska, af Tiger að droppa bolta o.fl. Nokkra athygli vekur að af golfsvipmyndunum 15 er aðeins 1 af kvenkylfingi.  Hvaða kylfingur skyldi nú þykja hafa skarað fram úr árið 2013? Sjá má myndirnar með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2013 | 17:00

Cristie Kerr eignast barn

Cristie Kerr og eiginmaður hennar Erik Stevens eignuðust soninn Mason Kerr Stevens. Og ef ykkur finnst þið hafa sér Kerr í flestöllum mótum LPGA á þessu keppnistímabili, oft ofarlega á skortöflunni, þá skjátlast ykkur ekki.  Ekki að hún hafi verið að spila golf ólétt …. nei hún og eiginmaður hennar fengu staðgöngumóður til þess að ganga með barn þeirra. „Ykkur til upplýsingar þá er þetta okkar barn. 100%,“ sagði Cristie á Twitter. „Ég er ekki fær um að ganga með börn mín af læknisfræðilegum ástæðum. Ég vildi að ég gæti það.“ Litli strákurinn fæddist 8. desember og hún þakkaði öllum fyrir árnaðaróskirnar sem fjölskyldunni hafa borist. Hún bætti við: „Barnafötin Lesa meira