Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2013 | 09:00

Andri Þór í 12. sæti eftir 2. dag Dixie Amateur

Andri Þór Björnsson, GR, lék 2. hringinn á Diixie Amateur í gær, en mótið fer fram í Heron Bay Golf Club í Coral Springs, Flórída. Mótið stendur dagana 19.-22. desember 2013. Það var því miður 10 högga sveifla á hringjum Andra Þór þ.e. hann lék 1. hringinn á 6 undir pari, 66 höggum en 2. hringinn á 4 yfir pari 76 höggum. Samtals er hann því búinn að spila á  2 undir pari, 142 höggum (66 76) og deilir sem stendur 12. sætinu. Þátttakendur í mótinu eru 219 þannig að árangur Andra Þór er glæsilegur. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. hring Dixie Amateur SMELLIÐ HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Jennifer Song —— 20. desember 2013

Það er Jennifer Song sem er afmæliskylfingur dagins. Hún fæddist 20. desember 1989 í Ann Arbor, í Michigan og er því 24 ára í dag. Hún komst á LPGA í gegnum góðan árangur sinn á Futures Tour 2010 og var 2011 því fyrsta árið hennar á túrnum. Árið 2009 sigraði hún bæði í US Women´s Amateur Public Links og US Women´s Amateur. Hún er 4. kylfingurinn í sögunni til þess að sigra bæði mótin og aðeins önnur af 2 kylfingum til þess að sigra bæði mót sama árið. Song ólst upp í Suður-Kóreu en fluttist með foreldrum sínum til Bandaríkjanna og er í dag með tvöfaldan ríkisborgararétt.  Í Kóreu var hún í Taejon Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 15:00

GKG: Góð æfingaaðstaða í Kórnum

Æfingaaðstaða GKG er opin í Kórnum fyrir félagsmenn GKG og nú er um að gera að nýta sér hana og æfa vel í vetur! Opið er alla daga, nema þegar æfingar barna- og unglingastarfsins eru í gangi. Mán-fim: 08-14:45; 20:00-22:00 Fös: 08-14:45; 17:00-22:00 Helgar: Allan daginn, nema þegar púttmót eða aðrir viðburðir eru í gangi, en það verður auglýst með fyrirvara. Við biðjum alla iðkendur um að ganga vel um svæðið og skilja ekki eftir golfbolta á flötinni eða í netunum. Þetta er okkar aðstaða og við berum ábyrgð á að hún sé snyrtileg. Athugið að golfskór eru ekki leyfðir, af hreinlætisástæðum og til verndar gervigrasinu. Heimild: GKG Höfundur: Úlfar Jónsson


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 13:00

Andri Þór efstur á Dixie Amateur e. 1. dag!

Andri Þór Björnsson, GR, tekur þátt í Dixie Amateur Championship, sem fram fer á Heron Bay Golf Club, í Coral Springs, Flórída. Mótið stendur dagana 19.-22. desember 2013. Eftir 1 hring er Andri Þór í efsta sæti ásamt Richard Donegan, sem einnig er háskólanemi og spilar með Florida Atlantic University. Báðir spiluðu  á 6 undir pari, 66 höggum. Andra Þórs er getið í Miami Herald í dag þar sem segir m.a. um hann: „ Bjornsson was not only soaking in his good round but also the sunshine as he hails from Iceland and now plays for Nicholls State in Louisiana.“  (Lausleg þýðing: Andri Þór (Björnsson) naut ekki aðeins  góðs hrings síns Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 12:30

GK: Skötuveisla á Þorláksmessu

Hin árlega skötuveisla verður haldin í golfskála Keilis 23. des. til styrktar unglinga- og afreksstarfi. Boðið verður uppá hádegismat í tveimur hópum kl 11:30 og kl 12:30. Húsið er opið öllum meðan húsrúm leyfir. Miðaverð 3.200 kr. Vinsamlegast bókið borð í síma Hraunkots 5653361 eða á hraunkot@keilir.is


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 11:00

Moe Norman – Einn besti kylfingur heims í að slá bein högg – (8/8)

Kanadíski kylfingurinn Murray Irwin Norman alltaf kallaður Moe var e.t.v. einn besti kylfingur heims á sínum tíma í að slá bein högg, Vegna þess hversu bein högg Moe voru var hann uppnefndur „Pipeline Moe.” Moe gerðist atvinnumaður í golfi 1957 og sigraði m.a.  í 55 mótum um ævina, átti 3 hringi upp á 59 högg og nokkra upp á 60, hann á m.a. 34 vallarmet sem mörg hver eru enn í gildi og fór 17 sinnum holu í höggi. Þegar Mo var 5 ára lenti hann í slysi og var talið að hann hefði hlotið heilaskaða. A.m.k. varð Moe aldrei eins og fólk er flest, var einfari, sérvitur, þótti skrítinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 10:00

NK: Stjórn næstum óbreytt – skuldir 1.3 milljón

Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins var haldinn fyrir tæpum 3 vikum, laugardaginn 30. nóvember 2013.  Rúmlega 70 félagar sátu fundinn.  Lögð var fram skýrsla stjórnar sem og reikningar sem voru samþykktir samhlóða. Helstu tölur úr rekstri klúbbsins voru að rekstrartekjur voru um 57 milljónir og rekstrargjöld um 53 milljónir.  Eftir framkvæmdir og fjárfestingar var rekstrartap 4,9 milljónir.  Heildarskuldir klúbbsins eru bókfærðar 1,3 milljón. Þær breytingar urðu á stjórn að Oddur Óli Jónasson kemur inn í stjórn í stað Þorvaldar Jóhannessonar sem setið hefur í stjórn klúbbsins sem ritari í fjögur ár.  Í varastjórn kemur Þuríður Halldórsdóttir inn í stað Jónasar Hjartarsonar sem gaf ekki kost á áfram.  Aðrir stjórnarmeðlimir gáfu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 09:00

Ko með styrktarsamning við ANZ – Myndskeið

Nú eftir að Lydia Ko hefir gerst atvinnumaður tekur við mikið umstang samninga þ.e. við styrktaraðila og við fyrirtæki sem Ko ætlar að auglýsa fyrir. Einn af þeim bakhjörlum sem nýlega bættust við hjá Ko er ástralski bankinn the Australia and New Zealand Banking Group Limited, skammst. ANZ. Styrktarsamningur ANZ við Ko er til 3 ára. Vegna samningsgerðarinnar sagði Ko m.a.: „Það er frábært að hafa stuðning ANZ á þessum mikilvæga punkti á ferlinum þegar ég er að fara að spila alþjóðlega meðal atvinnumanna og við bestu kvenkylfinga heims.“ sagði Ko í fréttatilkynningu. „ANZ skilur að til þess að skila framúrskarandi árangri þarf ég sterkt lið að baki mér.“ „Lydia Ko Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 08:00

PGA: Best klæddu kylfingarnir 2013

Golf Digest hefir tekið saman lista yfir best klæddu kylfinga á PGA Tour 2013. Sjá má samantekina í máli og myndum með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 07:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Charlotte Thompson (1/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 5 stúlkur sem deildu 27. sætinu (voru jafnar í 27.-31. sætinu) og rétt sluppu inn á mótaröðina með skor upp á samtals 2 yfir pari, 362 högg:   Bonita Bredenhann,  Lucy Williams, Victoria Lovelady Lesa meira