Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2013 | 16:15

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Laura Jansone (2/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).

Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.

Það voru 5 stúlkur sem deildu 27. sætinu (voru jafnar í 27.-31. sætinu) og rétt sluppu inn á mótaröðina með skor upp á samtals 2 yfir pari, 362 högg:   Bonita Bredenhann,  Lucy WilliamsVictoria Lovelady , Laura Janson og Charlotte Thompson.

Byrjað var á að kynna Charlotte Thompson í gær og í dag verður sú stúlka kynnt sem varð í 30. sætinu: Laura Jansone.

Laura Janson er fyrsti kylfingurinn á Evrópumótaröð kvenna frá Lettlandi. Hún tók þátt í sama Lalla Aicha mótinu 2012 og komst þá fyrst lettnestka kvenkylfinga á LET. Þá var skrifuð eftirfarandi kynning um hana hér á Golf 1,  sem rifja má upp en fátt hefir breyst á þessu eina ári hjá Jasone, nema hvað hún hefir öðlast gríðarmikla reynslu, sem hún býr að. Til að lesa kynninguna um Jasone  SMELLIÐ HÉR: