Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 27. 2013 | 23:30

Jamie Donaldson kylfingur ársins í Wales

Jamie Donaldson hefir bætt annari rós í hnappagatið á fínu ári sínu, en hann var valinn kylfingur ársins af golfsambandi Wales. Árið hefir verið Donaldson, sem fæddur er í Pontypridd gott, en hann hóf 2013 á því að skjóta Tiger, Rory og fleirum ref fyrir rass með því að sigra á Abu Dhabi Championship í janúar. Eins varð hann í 2. sæti á Turkish Airlines Open og átti nokkra topp-10 árangra. Donaldson varð nr. 5 á peningalista Evrópumótaraðarinnar og er búinn að vinna sér inn meira en £2 milljónir. Jim, faðir Jamie Donaldson tók við verðlaununum fyrir hönd sonar síns en Jamie var vant við látinn að fylgjast með fæðingu annars barns Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 26. 2013 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Svavar Geir Svavarsson – 26. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Svavar Geir Svavarsson.  Svavar Geir er fæddur 26. desember 1972 og á því 41 ára afmæli í dag!  Hann er í Golfklúbbnum Oddi og sér m.a. um flugherminn í innaðstöðu GO í Kauptúni, sem allir ættu að nýta sér nú þegar veðrið er of kalt til þess að vera í golfi úti við. Golf 1 hefir einnig tekið viðtal við Svavar Geir sem lesa má með því að SMELLA HÉR:  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Svavar Geir Svavarsson (40 ára afmæli!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Willie Smith, dó 26. desember 1916;  Antonio Lascuna, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 26. 2013 | 12:45

Golfútbúnaður: Puma Monolite golfskór

Puma Monolite golfskórinn er hanaður fyrir alla svölu gæjanna sem leggja áherslu á gæðaíþróttaskó. Monolite skórinn er úr leðri og með styrktarbita sem tryggja stuðning og stöðugleika og súper léttan sóla sem stuðlar að auknum þægindum á og utan golfvallarins. Það eru flex grópir í framfæti sem veita skónum aukinn sveigjanleika og aukið jarðsamband.  Áherslan var að búa til létta, þægindalega, takkalausa golfskó úr gæðahráefni. Monolite skórinn er einn með öllu segja framleiðendur. Ef þið eruð svo heppin að hafa fengið par í jólagjöf viljið þið aldrei fara úr þeim!


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 25. 2013 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Jean Françoise Luquin – 25. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Jean Françoise Luquin. Hann er fæddur 25. desember 1978 í Valence, Drôme í Frakklandi og á því 35 ára afmæli í dag. Jean Françoise býr í Cressiers, í Sviss. Hann á 9 ára son, Arthur. Jean Françoise gerðist atvinnumaður í golfi 1997. Hann náði ekki í gegn í lokaúrtökumótinu í Girona á Spáni fyrir Evrópumótaröðina, sem fram fór 10. -15. nóvember 2013 og spilar því 2014 á Áskorendamótaröðinni. Sem stendur er hann nr. 1422 á heimslistanum. Luiquin hefir sigrað 1 sinni á Evrópumótaröðinni og alls 5 sinnum á ferli sínum sem atvinnumaður. Aðrir frægir kylfingar eru:   Mianne Bagger, 25. desember 1966 (47 ára); Nicholas Thompson, 25. desember 1982 (31 árs ) ….. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2013 | 16:00

Gleðileg jól 2013!

Golf 1 óskar öllum kylfingum nær og fjær innilega gleðilegra jóla með þakklæti fyrir góðar viðtökur á árinu.  Megi framtíðin færa okkur erni og fugla og mörg glæsileg pútt á nýja árinu!!! Golf 1 ønsker alle golf spillere nær og fjern glædelig jul med mange tak for den enestående modtagelse af Golf 1, í det passerende år. Må fremtiden bringe os alle eagles og birdies og mange pragtfulde putt í det nye år!!! Golf1 wishes all golfers near and far a heartfelt merry Christmas with thanks for the incredible receptions Golf 1 has received this past year! May the future hold many eagles, birdies and georgeous putts for you!!! Golf 1 souhaite à tous Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2013 | 15:00

Bernhard Gallacher: „Glaður að vera á lífi“

Bernard Gallacher fyrrum atvinnumaður í golfi og fyrrum fyrirliði Ryder Cup liðs Evrópu fékk hjartaáfall á árinu og var um stund óttast um líf hans og talið að hann myndi ekki hafa það af. Hann var á hóteli á leið á fund – það næsta sem hann man var að vakna á spítala og hann hafði misst viku úr lífi sínu. Talið er að hinn 64 ára Gallacher sé einugis á lífi vegna þess að hótelið í Skotlandi, þar sem hann átti að halda ræðu, var með hjartastuðtæki. „Þetta er skrítin tilfinning en það mun vera algengt að menn séu með minnistap eftir svona hjartastopp. Ég missti af öllu dramanu.“ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2013 | 14:45

Tiger: „Golfið hefir breyst“

Tiger Woods, 37 ára náði aftur 1. sæti heimslistans í ár og vann 5 mót á árinu 2013, þannig að árið hefir verið honum gott. En þetta er samt líka 5. árið í röð sem honum hefir mistekist að sigra á risamóti. Síðasta risamótstitil sinn í golfinu vann Woods s.s. allir vita á Opna bandaríska í júní 2008. „Golfið hefir breyst. Þetta er orðin ný kynslóð stráka,“ sagði hann í viðtali við Gulf Today.  „Ég hef líklega spilað oftar gegn Ernie Els en nokkrum öðrum því hann spilar í svo mörgum alþjóðlegum mótum; næstoftast hef ég líklega spilað á móti Vijay (Singh) og Phil (Mickelson) sá þriðji.  En í gegnum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2013 | 14:30

Sergio Garcia styður fótboltalið heimabæjar síns á Spáni

Sergio Garcia hefir ekki bara áhuga á golfi heldur einnig fótbolta. Þannig er hann forseti heimaklúbbs síns CF Borriol, í heimahéraði sínu Castellon á Spáni. Hann fær að æfa með liðinu og af og til að spila og eins styður hann CF Borriol fjárhagslega og hefir varið miklum peningum í allt uppbyggingarstarf innan knattspyrnuklúbbsins. „Þetta er gaman og hvenær sem ég er heima fæ ég að æfa og spila svolitið hér og þar með þeim. Á þessu keppnistímabili hef ég líklega leikið svona í 5 leikjum, sem er ekki mikið en þetta er skemmtilegt sagði Garcia í Living Golf þættinum á CNN Sjá með því að SMELLA HÉR:  (Skrollið niður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Kristinsdóttir – 24. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Kristinsdóttir. Hún er fædd Aðfangadag 1952 og á því 61 ára afmæli í dag. Steinunn Kristinsdóttir Steinunn er hjúkrunarforstjóri á heilsugæslunni Lágmúla og hefir tekið þátt í golfmótum hjúkrunarfræðinga og staðið sig vel!!! Komast má á facebook síðu Steinunnar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan Steinunn Kristinsdóttir (61 árs) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  John Ball, f. 24. desember 1861 – d. 2. desember 1940 ; Robert J. Shaw, f. 24. desember 1944 …… og …….. Choice Tours Iceland (61 árs) Guðrún Emilía Kolbeinsdóttir (43 ára) Sitthvad Til Sölu (33 ára) Solveig Hreidarsdottir Friðrikka Auðunsdóttir (45 ára) Stekkjastaur Jólasveinn (108 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2013 | 11:45

Jólakveðjur frá nokkrum liðsmönnum sigurliðs Solheim Cup 2013

Á heimasíðu Evrópumótaraðar kvenna hafa undanfarna daga verið að birtast jólakveðjur frá nokkrum kylfingum í sigurliði Evrópu í Solheim Cup nú á árinu. Smellið á nafn viðkomandi kylfings til þess að lesa kveðjur viðkomandi: AZAHARA MUÑOZ CARLOTA CIGANDA GIULIA SERGAS KARINE ICHER