Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2014 | 19:00

Frægir kylfingar: Rory hitti Will Smith á golfvellinum

Nr. 6  á heimslistanum, Rory McIlroy , rakst á Hollywood stjörnuna Will Smith á golfvelli í Dubai í gær, en þangað er hann kominn nú. Rory er búinn að njóta þess að æfa í Ástralíu og verja tíma þar með heitkonu sinni Caroline Wozniacki, sem tekur sem stendur þátt í Sydney International tennismótinu og vann m.a. þýsku tennisstjörnuna Juliu Goerges í gær. Skv. Irish Independent, var Smith að prófa golfsveiflu sína en hann er í fríi í Dubaí ásamt eiginkonu sinni, Jada Pinkett Smith, þegar hann hitti Rory, sem er sem segir kominn til Sameinuðu furstadæmanna, þar sem hann mun keppa á fyrsta móti sínu á árinu. Rory spjallaði svolítið við Will Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2014 | 18:15

Stenson gerir samning við Greens Plus

Golfstjarnan sænska, Henrik Stenson, sem átti eitt besta keppnistímabil ferils síns á síðasta ári þar sem hann varð m.a. efstur á peningalistum beggja vegna Atlantsála, heldur áfram að græða á ábatasömum styrktar- og auglýsingasamingum. Hann hefir nú gert samning við Orange Peel Enterprises, betur þekkt sem Greens Plus og kemur Greens Plus nú inn sem sterkur nýr styrktaraðili Stenson. Meðal þess sem Stenson samþykkir að gera skv. nýja styrktarsamningnum er að auglýsa vörur Greens Plus og taka þátt í allskyns uppákomum sem snúa að neytendum merkisins. Stenson sagði m.a. eftir undirritun samnings: „Greens Plus próteinstangir hafa verið hluti af rútínu minni innan og utan vallar í mörg ár og ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2014 | 17:30

GVS: Aðalfundur 27. janúar kl. 20:00

Aðalfundur GVS verður haldinn mánudaginn 27. janúar 2014 í golfskála GVS kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2014 | 13:30

Williams enn sár við Tiger fyrir að hafa rekið sig

Steve Williams er enn sár eftir skilnaðinn við Tiger Woods, nú þegar hann hefur síðasta fulla keppnistímabil sitt sem kylfuberi. Williams, 50 ára, hóf starf sitt við að bera poka Tiger árið 1999 og saman unnu þeir 14 risatitla. Samband þeirra fór út um þúfur þegar Williams vann sem kylfusveinn hjá Adam Scott árið 2011 þegar Tiger var meiddur. Williams heldur því fram að Tiger hafi gefið leyfi sitt til þessa en þetta var bara upphafið á endinum. „Það sem olli vonbrigðum mínum var að hann heldur því fram að hafa rekið mig á AT&T (National),“ sagði Williams. „Hann gerði það ekki. Hann rak mig með símhringingu eftir Opna bandaríska. Ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2014 | 10:00

PGA: 3 leiða eftir 3. dag í Hawaii

Það eru 3 sem leiða eftir 3. dag Tournament of Champions á Kapalua, Hawaii: Jordan Spieth, Dustin Johnson og Webb Simpson. Allir eru þessir kappar búnir að spila á samtals 14 undir pari, 205 höggum; Simpson (66 71 68); Johnson (70 66 69) og Spieth (66 70 69). Einn í 4. sæti 2 höggum á eftir þ.e. á samtals 12 undir pari, 207 er 2007 Masters meistarinn Zach Johnson. Það þarf að fara allt niður í 9. sæti til að finna kylfing utan Bandaríkjanna, þ.e. Adam Scott, en hins vegar eru aðeins 4 kylfingar utan Bandaríkjanna, sem sigruðu á PGA Tour 2013 og taka því þátt í mótinu en það Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2014 | 23:00

Natalie Gulbis gengin út!

Tvær af stærstu stjörnum LPGA hafa brotið hjörtu golfpiparsveina um allan heim. Fyrst komu fréttirnar af því að Paula Creamer hafi trúlofast flugmanninum sínum Derek Heath. Sjá frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:  Og nú berast þær fréttir að Natalie Gulbis hafi gifst nú um jólin nánar tiltekið á Þorláksdag s.l. Sá lukkulegi heitir Josh Rodarmel og er fyrrum leikstjórnandi (ens. quarterback) í Yale í bandaríska ruðningsboltanum og er núverandi eigandi the Power Balance bracelet. Skötuhjúin tilkynntu um trúlofun sína s.l. júlí og eru nú herra og frú Rodarmel.  Natalie Gulbis Rodarmel  tvítaði eftirfarandi myndir frá brúðkaupsdegi sínum:  


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2014 | 22:30

Paul Casey og Pollyanna Woodward trúlofast

Enski kylfingurinn Paul Casey er enn einn kylfingurinn sem tilkynnir um trúlofun sína á þessu ári, en sú lukkulega er sjónvarpskynnirinn Pollyanna Woodward. Tilkynning um trúlofun hans kemur aðeins tæpri viku eftir að Rory McIlory og Caroline Wozniacki tilkynntu um trúlofun sína. Woodward tvítaði eftirfarandi um trúlofunina: “I’ve some special news @Paul_Casey & I are engaged, we’re so happy & hope that you’ve also had a great start to 2014″. Parið kynntist í Abu Dhabi þar sem Woodward var kynnir á formúlu 1 ásamt Eddie Jordan. „Bæði Paul og ég vorum að ganga í gegnum skilnað og eftir að minn var um garð genginn beið ég eftir að Paul kláraði sinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2014 | 15:00

Blackwelder fjölskyldan – fjölskylda kaddýa og kylfinga

Löngu áður en Mallory Blackwelder var grjón í pung föður síns var faðir hennar Worth farin að draga fyrir móður Mallory, sem þá var ein fremsta stjarna LPGA og hét Myra Van Hoose. Mallory lifði ferðatösku lífi þvældist frá einum mótsstað til hins næsta, þar sem móðir hennar keppti og faðir hennar dró fyrir hana og komst að því að hjónabönd kaddýa og kylfinga reynast oft bara ágætlega. A.m.k. var Mallory ekki sein á sér að segja „já“ þegar Julien Trudeau bað hennar nú í sumar, en Julien er kaddý hins snjalla kanadíska PGA Tour kylfings, Graeme De Laet.  Julien dró líka fyrir Mallory á síðasta keppnistímabili. „Þetta er fyndið,“ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2014 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Miguel Ángel Jiménez – 5. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er enginn annar en „vélvirkinn“, spænski kylfingurinn Miguel Ángel Jiménez. Jiménez er fæddur 5. janúar 1964 í Malaga á Spáni og á því 50 ára stórafmæli í dag!!!  Hann hefir verið kvæntur Monserrat Ramirez frá árinu 1991 eða í 23 ár og eiga þau tvo stráka, Miguel Ángel fæddan 1995 og Victor fæddan 1999. Jimenéz hefur verið uppnefndur “vélvirkinn” (The Mechanic), vegna ástríðu hans að gera við fremur en keyra rándýra bíla, sérstaklega rauða Ferrari bílinn, sem hann á. Jimenéz gerðist atvinnumaður 1983 en spilaði fyrst á Evróputúrnum árið 1988 og tók stöðugum framförum næstu keppnistímabil. Hans fyrsti sigur var árið 1992, þegar hann vann Piaget Belgian Open.  Alls hefir Jiménez sigrað 19 sinnum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2014 | 13:00

Suzann Pettersen íþróttakona Noregs!

Norska frænka okkar, nr. 2 á Rolex-heimslistanum yfir bestu kvenkylfinga heims, Suzann Pettersen,  var valin íþróttakona ársins (nor: Årets kvinnelige idrettsutøver) í Noregi í gær á hinni árlegu „Idrettsgalla“ m.ö.o. íþróttahátíð Norðmanna. Jafnframt var hún valin Íþróttamaður ársins í Noregi, hlaut m.ö.o. Utøvernes pris á norsku,  ásamt skákmanninum Magnúsi Carlsen. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Pettersen er valin íþróttakona Noregs en hún hlaut titilinn m.a. árið 2009. Sjá með því að SMELLA HÉR: og með því að  SMELLA HÉR:  Hins vegar mun þetta vera í fyrsta sinn sem kylfingur hlýtur Íþróttamannstitilinn (þ.e. Utøvernes pris) en þeim titli deildi Suzann, sem segir, með Magnúsi Carlsen, sem klárlega var sigurvegari kvöldsins með 4 verðlaun.  Hann Lesa meira