Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2014 | 10:00
GA: Enn laus sæti til Islantilla

Krakkarnir í GA eru að fara í æfingaferð til Islantilla n.k. apríl og eru enn laus sæti í ferðina. Hér að neðan eru upplýsingar um ferðina: Flogið verður þann 02. apríl frá Kef kl. 08.30 og lent í Faro kl. 13.40 að staðatíma. Flugið heim þann 11. apríl frá Faro er kl. 12.40 og lent 16.50 í Keflavík. Verð á mann í tvíbýli fyrir æfingahópinn: 189,900 kr. Verð á mann fyrir foreldra og aðra: í tvíbýli – 209,900 kr. (með golfbíl allan tímann, ótakmarkað golf) án golfs 160,900 kr í jr. svítu – 226,900 kr. án golfs 177,900 kr einbýli: 229,900 án golfs 171,900 kr Innifallið fyrir æfingahópinn: Beint flug með Icelandair, flutningur á golfsetti, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2014 | 08:00
GR: Valgerður Proppé og Páll Bjarnason sigruðu í Ármótapúttmótinu

Áramótaklúbburinn hélt sitt árlega púttmót á Korpu á gamlársdag og mættu um 30 manns, konur og karlar. Áramótaklúbburinn hefur verið við lýði frá 1986 og haldið golfmót um hver áramót. Veðráttan ræður því svo hvort mótið er haldið úti eða inni. Keppnisfyrirkomulag að þessu sinni að tveir 18 holu hringir voru leiknir og taldi sá betri. Úrslit 2013 urðu þannig: Konur: Í fyrsta sæti varð Valgerður Proppé lék á 31 höggi, Þorbjörg Valgeirsdóttir á 33 varð önnur og Selma Hannesdóttir á 34 varð í þriðja sæti eftir bráðabana. Karlar: Páll Bjarnason á 28 höggum varð fyrstur eftir bráðabana við Eyjólf Jónsson sem varð í öðru sæti og svo varð Jónas Þorvaldsson þriðji Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2014 | 07:45
PGA: Zach Johnson í forystu TOC eftir 2. dag

Það er fyrrum Masters-sigurvegarinn (2007), Zach Johnson, sem leiðir á Kapalua eftir 2. dag Tournament of Champions (stytt í TOC). Hann lék 2. hring á 7 undir pari, 66 höggum og er samtals búinn að spila hringina tvo á 13 undir pari, 133 höggum (67 66). Þrír deila 2. sætinu 3 höggum á eftir: Dustin Johnson, sem ákvað á síðustu stundu að taka þátt (Golf 1 var áður búið að greina frá því að hann hefði hætt við þátttöku í mótinu vegna þráláts aumleika í háls- og hnakkavöðvum og að Rory Sabbatini myndi taka sæti hans); Matt Kuchar og Jordan Spieth. Þeir DJ, Kuch og Spieth eru allir 3 höggum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2014 | 07:00
GL: Íþróttastjóri óskast til starfa

Auglýst er laus staða Íþróttastjóra Golfklúbbsins Leynis Íþróttastjóri gegnir lykilhlutverki í starfi klúbbsins og hefur umsjón með skipulagi og þjálfun kylfinga í klúbbnum. Starfssvið: – Stefnumótun og markmiðasetning varðandi golfþjálfun. – Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar barna og unglinga. – Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar afrekskylfinga. – Ábyrgð á þjónustu við almenna kylfinga á sviði þjálfunar. – Upplýsingagjöf og samstarf við stjórn og nefndir klúbbsins. Menntunar- og hæfniskröfur: – Viðurkennt PGA golfkennaranám, PGA nemi, eða annað sambærilegt nám. – Reynsla af sambærilegu starfi kostur. – Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. – Geta til að tjá sig í ræðu og riti. – Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2014 | 20:00
Golfgrín á laugardegi

Kylfingur er að leita að boltanum sínum í karganum og kemur niður á eitthvað hart. Hann fálmar í háa grasinu og finnur gamlan olíulampa. Undir eins minnist hann sögunnar um þúsund og eina (1001) nótt og hann nuddar lampann og sjá…. það gýs virkilega fram flöskuandi. Andinn varar kylfinginn við heldur pirraður: „Heyrðu, mundu eitt, það eru ekki í dæminu 3 óskir. Þú ert sá 12. sem finnur mig í dag. Ég er drulluþreyttur og meira en eina ósk get ég og vil ekki veita þér. Hugsaðu því vel um hvað þú óskar þér!“ Maðurinn leggur höfuðið í bleyti í nokkurn tíma og segir: „Veistu, ég hef stórt vandamál. Ég Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2014 | 19:30
Solheim Cup stjörnur á leið til Ástralíu

Tvær af skærustu stjörnum Solheim Cup 2013 eru nú á leið til Ástralíu þar sem þær munu taka þátt í Volvik RACV Ladies Masters, en mótið er nú haldið í 25. sinn. Þetta eru sænski kylfingurinn Caroline Hedwall og enski táningurinn Charley Hull – en jafnframt taka aðrar stórstjörnur þátt í mótinu þ.á.m. heimakonan og golfdrottningin Karrie Webb, en auk þess líka Katherine Hull-Kirk, Rebecca Artis, Stacey Keating, Kristie Smith og Lindsey Wright. Mótið fer fram 6.-9. febrúar n.k. í RACV Royal Pines Resort. Caroline Hedwall, sem er mikil vinkona og fyrrum skólasystir Eyglóar Myrru Óskarsdóttur, GO, í Oklahoma skaraði fram úr í Solheim Cup, en hún vann það einstæða afrek að sigra Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2014 | 19:00
Golfstöðin í loftið

Golfstöðin, ný sjónvarpsrás hóf útsendingar í gær, 3. janúar 2014, en hún verður með beinar útsendingar frá golfi í 50 vikur á ári. Sýnt verður frá öllu því besta sem íþróttin hefur upp á að bjóða, allra helst risamótunum fjórum sem og Ryder-keppninni. Fyrsta PGA-mót ársins, Tournament of Champions, hefst á Hawaii-eyjum í dag og verður sýnt frá því alla helgina. Þar keppa aðeins þeir kylfingar sem unnu mót á PGA-mótaröðinni á síðasta tímabili. Mótið hefur ávallt verið það fyrsta á nýju ári og um leið markað upphaf nýs keppnistímabils. Það breyttist reyndar í fyrra þegar ákveðið var að byrja nýtt tímabil í október en mótið heldur enn sínum sessi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2014 | 17:00
Afmæliskylfingar dagsins: Tinna Ósk og Þórður Emil – 4. janúar 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Tinna Ósk Óskarsdóttir, GO, og Þórður Emil Ólafsson, formaður GL. Tinna Ósk er fædd 4. janúar 1984 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Fjölskylda Tinnu Ósk er þekktari í golfinu en frá þurfi að segja, foreldrar hennar báðir í golfi, sem og systur hennar tvær. Tinna Ósk byrjaði að spila golf 6 ára í Blommenslyst Golf Club í Óðinsvéum, meðan hún bjó enn með fjölskyldu sinni í Danmörku. Tinna Ósk hefir á golfferli sínum m.a. orðið klúbbmeistari GKG, 2002 og í 2. sæti með kvennasveit GO, í sveitakeppni kvenna, árið 2007 og þá er aðeins fátt eitt talið. Eins hefir hún verið golffararstjóri hjá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2014 | 14:30
Rose endurnýjar samninga við TaylorMade – Stenson áfram hjá Callaway

Henrik Stenson, nr. 3 á heimslistanum, upplýsti að hann hefði gert samning til fjölda ára við golfvörurisann Callaway, en í samningnum heitir hann því að nota áfram Callaway kylfur og nota lógó fyrirtækisins á poka sínum. Leikmaður ársins á Evrópumótaröðinni 2013, Henrik Stenson þakkar Callaway kylfium m.a. góðan árangur sinn á árinu 2013: en hann vann m.a. tvívegis á PGA Tour, varð í 2. sæti á Opna breska og 3. sæti á PGA Championship risamótunum, nú fyrir utan að vinna FedExCup og lokamót Evrópumótaraðarinnar og verða efstur á peningalistum beggja vegna Atlantsála. „Eftir að hafa átt besta keppnistímabil ferils míns 2013 með því að nota Callaway járn og tré, þá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2014 | 12:15
PGA: 4 efstir á TOC e. 1. dag

Það eru fjórir kylfingar, sem deila 1. sætinu eftir 1. dag á Tournament of Champions (stytt í TOC) þ.e. móti meistaranna, þ.e. sigurvegara síðasta keppnistímbils á PGA Tour. Mótið hófst í gær á Plantation golfvellinum í Kapalua, á Hawaii. Kylfingarnir 4 sem eru efstir eru: Jordan Spieth, Chris Kirk, Webb Simpson og Michael Thompson. Þeir léku allir fyrsta hring á 7 undir pari, 66 höggum. Jafnir í 5. sæti eru síðan aðrir 4 kylfingar sem allir voru á 6 undir pari, 67 höggum þ.e.: Jason Dufner, Ryan Moore, Kevin Streelman og Zach Johnson. Sjá má heildarstöðuna á TOC eftir 1. dag með því að SMELLA HÉR: Til þess að sjá Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

