Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2014 | 10:30

Heimslistinn: Johnson í 7. sæti!

Zach Johnson er kominn í 7. sæti heimslistans eftir frækilegan og verðskuldaðann sigur á TOC þ.e. Tournament of Champions á Kapalua í Hawaii. Það var hrein unun að fylgjast með lokahring Zach á sunnudaginn, þar sem hann lék á glæsilegum 7 undir pari, 66 höggum og gaf hvergi eftir. Þannig missti hann hvergi högg, var með 7 glæsifugla og fékk m.a. 3 fugla í röð á 14.-16. braut og virtist fátt geta stoppað hann. Zach var fyrir mótið í 9. sæti heimslistans en á topp-10 fór hann úr 13. sætinu eftir frækinn sigur á World Challenge móti Tiger Woods nú fyrir jól. Annað merkilegt á heimslistanum er að engin breyting Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2014 | 10:00

Maggi Birgis með SNAG námskeið

Nú í ársbyrjun er boðið upp á golfkennslu í SNAG (stutt fyrir Starting New At Golf) – fyrsta stiginu. Námskeiðið er fyrsti hluti af SNAG kennslu-og þjálfunarkerfinu og veitir réttindi sem fyrsta stigs SNAG golf leiðbeinandi. Leiðbeinandi: Magnús Birgisson PGA, SNAG Master kennari Staðsetning: Hraunkot, Golfklúbbnum Keili, Steinholti 1, 220 Hafnarfirði Tímasetning: 17. janúar 2014. Kl. 9.00-15.00 Þátttakendur:  Allt að 12 þátttakendur komast á námskeiðið. Verð: 12.500 fyrir námskeiðið, SNAG handbók, morgun-og hádegishressingu. Skráning á námskeiðið og nánari upplýsingar veittar í gegnum netfangið ingibjorg@hissa.is og í síma 775-0660 / 898-7250. Það mætti bæta við að SNAG vörurnar fást í póstversluninni Hissa og má sjá úrvalið til hægri á vefsíðu Golf 1 með því að smella á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2014 | 07:00

Ný Nike-auglýsing með Tiger

Hér að neðan er nýjasta Nike-auglýsingin með Tiger Woods, Nick Watney og Thorbjörn Olesen í aðalhlutverkum. Og jafnvel þó auglýsingin sé ekki sú sniðugasta og breyti e.t.v. ekki lífi ykkar þá gætu kylfurnar sem þremenningarnir eru að auglýsa e.t.v. gert það! Svolítið skrítið samt að Rory sé ekki hafður með í auglýsingunni, þar sem hann bætti Nike Golf VRS Covert 2.0 kylfunni í pokann í lok árs 2013. Það gerði Tiger líka eftir að hafa orðið í 2. sæti á Northwestern Mutual World Challenge. Við það tækifæri sagði hann m.a.:  „Vitið þið ég fann góðan dræver þessa vikuna og var mjög ánægður með þær breytingar sem gerðar höfðu verið á drævernum. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Natalie Gulbis og Atli Þór Gunnarsson – 7. janúar 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru bandaríski kynbombukylfingurinn nýgifti Natalie Gulbis og Atli Þór Gunnarsson. Þau eru bæði fædd sama dag 7. janúar 1983 og eiga því 31 afmæli í dag! Atli Þór er félagi í Golfklúbbnum Keili og Natalie spilar á LPGA.  Gulbis er ein af þeim sem vakið hefir jafnmikla athygli á sér fyrir fyrirsætustörf sem golfleik og má sjá eina grein Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:  Natalie giftist ruðningsboltahetjunni Josh Rodarmel jólin 2013 Sjá má grein Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:  Komast má facebook síðu Atla Þórs til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Atli Þór Gunnarsson Reyndar er þetta mikil Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2014 | 15:00

Poulter og Elkington rífast á Twitter

Ian Poulter og Steve Elkington eru þekktir í Twitter heimum fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum. Elkington skaut sig í fótinn með því að vera með kynþáttaníð og síðan með brandara um þyrluslysið í Skotlandi nú fyrr í haust.  Ian Poulter er meinilla við Elkington og lá ekki á skoðunum sínum í bæði skipti á heimsku og hugsunarleysi Elkington. Og nú gat fólk fylgst með annarri Twitter rimmu  milli þeirra.  Áður en sagt verður frá henni er vert að geta þess að Ian Poulter er nr. 12 á heimslistanum en Steve Elkington nr. 1507. Þetta byrjaði allt saman sárasakleysislega á því að vinur Elkington, Paul Regali (sem er með Twitter Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2014 | 08:15

Michelle Wie gefur heimilislausum mat

Michelle Wie var eins og svo margir aðrir frægir í heimssögunni, á Hawaii um jólin. Föstudaginn 27. desember s.l. gaf hún tilbaka til samfélagsins með því að aðstoða að veita heimilislausum í River of Life Mission mat. Hún sagði að vinnan í eldhúsinu hefði verið erfið en hún sá um að reiða fram mat handa 300 manns. Stjörnukylfingar eins og Michelle Wie, sem búa við öll forréttindi hinna ríku, gefa oft af sjálfum sér með þessum hætti, sumir meir en aðrir og ekki allir í eigin persónu, eins og hún gerði, sem er frábært hjá henni!!! Sjá má mynd af Michelle þar sem hún vann í heimilislausra eldhúsinu með því Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2014 | 08:00

Caroline sagði frá hvernig Rory bar sig að við bónorðið

Caroline Wozniacki sagði frá því í gær, mánudaginn 6. janúar 2014, hvernig nr. 6 á heimslistanum,  Rory McIlroy hefði borið sig að við bónorðið, sem hann bar upp í Sydney, Ástralíu í síðustu viku, en hún sagði að hann hefði venju samkvæmt beðið foreldra hennar, Piotr og Önnu um hönd hennar. „Það er frábært að hafa allt í föstum skorðum í einkalífinu og við getum þá virkilega einbeitt okkur að leikjunum í íþróttagreinum okkar, sem við hlökkum mjög til,“ sagði Wozniacki m.a. skv. frétt í AAP. Caroline sagði að það væri kostur að vera með öðrum íþróttamanni. „Það er frábært að hafa einhvern sem skilur mann og er alltaf þarna Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2014 | 01:15

PGA: Zach Johnson sigraði á Tournament of Champions

Nú rétt í þessu var Masters meistarinn 2007, Zachary Harris Johnson alltaf kallaður Zach Johnson, að tryggja sér titilinn á fyrsta PGA Tour móti ársins,  Tournament of Champions, í Kapalua á Hawaii. Hann lék á samtals 19 undir pari,  höggum (67 66 74 66). Í 2. sæti varð Jordan Spieth á 18 undir pari, 274  höggum (66 70 69 69) og þriðja sætinu deildu þeir Webb Simpson og Kevin Streelman varð í 3. sæti á samtals 17 undir pari, 275 höggum; Simpson (67 71 70 67) og Streelman (67 71 70 67). Í 5. sæti varð Jason Dufner á 15 undir pari. Sjötta sætinu deildu síðan þeir Adam Scott og Matt Kuchar léku báðir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2014 | 20:30

Afmæliskylfingur dagsins: Herdís Björg Rafnsdóttir – 6. janúar 2014

Það er Herdís Björg Rafnsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Herdís Björg er fædd 6. janúar 1962 og á því 52 ára afmæli í dag. Herdís Björg er í Golfklúbbi Reykjavíkur og hefir tekið þátt í nokkrum opnum golfmótum með góðum árangri m.a. Styrktarmóti Soroptimista á Nesvelli þ. 25. ágúst 2011, þar sem hún varð í verðlaunasæti (4. sæti) af fjölmörgum konum sem þátt tóku. Herdís Björg er verkfræðingur að mennt frá University of Washington. Hún er gift Þorsteini G. Gunnarssyni og eiga þau 2 syni. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með stórafmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Cary Middlecoff, 6. janúar 1921; Nancy Lopez Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2014 | 20:00

Luke Poulter sigraði flokk 9 ára á US Kids

Í gær, sunnudaginn 5. janúar 2014 spilaði elsti sonur  Ian Poulter, Luke, í U.S. Kids Golf Foundation móti á Palm golfvelli Walt Disney World’ Og líkt og pabbinn hefir gert svo oft áður stóð Luke upp sem sigurvegari, átti 7 högg á næsta keppanda og Ian auðvitað að rifna úr monti! Stráksi vann sinn aldursflokk stráka 9 ára. Luke var á skori upp á 4 yfir 40 á 1,940 yarda golfvellinum, þ.á.m. fékk hann fugl á par-3 3. holuna.  Hann var einnig með 2 skolla og einn þrefaldan skolla. Ian var á pokanum hjá stráksa og var auk þess að tvíta fréttir í beinni frá mótinu. Hér eru nokkur af Lesa meira