Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 20:30
Evróputúrinn: Glæsilegur albatross Luiten á 2. hring Volvo Golf Champions – Myndskeið

Nú á 2. hring Volvo Golf Champions, í Durban, Suður-Afríku, náði Hollendingurinn Joost Luiten glæsilegum albatross. Albatrossinn hans Luiten má sjá með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 20:00
Lindsey bjargar Leó úr dýraheimili

Lindsey Vonn er sögð eyðilögð yfir að geta ekki tekið þátt í Ólympíuleikunum vegna meidds hnés. Meiðslin frá því að hún datt í brekkum Schladming í Austurríki eru greinilega ekki gróin enn. Lindsey póstaði mynd af sér á Instagram sl. miðvikudag og sagðist hafa tekið að sér 9 mánaða hundinn Leó „úr dýraheimili.“ „Hann hefir kætt mig svo mikið!“ skrifaði hún. „Hann varð fyrir bíl og því er hann meiddur á hné líka. Kannski að við getum verið í endurhæfingu saman!“ Á facebook skrifaði Lindsey: „Enginn vildi hann … nema ég! Ég hvet alla sem eru í leit að gæludýri að taka eitt úr dýraheimilum og bjarga þannig hundslífi!“ Góðar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 18:30
Afmæliskylfingar dagsins: Ian Poulter og Andrea Ásgrímsdóttir – 10. janúar 2014

Það eru Andrea Ásgrímsdóttir, golfkennari og „kraftaverkamaðurinn í Medinah“ Englendingurinn Ian Poulter, sem eru afmæliskylfingar dagsins. Andrea er fædd 10. janúar 1974 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Andrea er m.a. klúbbmeistari kvenna í Golfklúbbnum Oddi 2012 og 2013. Fyrsta viðtalið sem birtist hér á Golf 1 var tekið við Andreu og má sjá það með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu Andreu hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með daginn!!! Andrea Asgrimsdottir (40 ára – Innilega til hamingju Andrea!!!) Ian Poulter í Rydernum 2012 – Ógleymanlegur!!! Ian James Poulter er fæddur 10. janúar 1976 í Hitchin, í Hertfordshire í Englandi og er því 38 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 18:00
Nýju stúlkurnar á LET 2014: Hannah Ralph (9/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 4 stúlkur sem deildu 23. sætinu (voru jafnar í 23.-26. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 1 yfir pari, 361 höggi: Hannah Ralph, Lucy Andre, Nina Muehl og Karolin Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 18:00
GHG: Hole in One púttmótaröðin hefst á laugardaginn

Opna Hole in One púttmótaröðin verður spiluð í Hamarshöll í vetur. Hún hefst næstkomandi laugardag 11. janúar. Spilað verður næstu 12 laugardaga og verða rástímar frá kl. 10-12. Ekki verður leyft að fara æfingarhring á undan skráðum hring. Spilaðar verða 36 holur og er þátttökugjald 500 krónur fyrir hvern hring. Í lok mótaraðarinnar verða tekin saman 6 bestu skorin til að finna sigurvegara mótaraðarinnar og verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin. Mótaröðin er opin þannig að allir geta tekið þátt – félagsmenn sem aðrir og ekki úr vegi að fara laugadagsbíltúra í Hveragerði og taka þátt í skemmtilegu púttmóti!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 17:00
Blixt ætlar að spila bæði á PGA og í Evrópu

Sænski kylfingurinn Jonas Blixt ætlar að reyna að spila bæði á PGA Tour og Evrópumótaröðinni. Hann ætlar sér að einbeita sér að PGA Tour en hann segist líka ætla að reyna að spila í þeim 13 mótum sem Evrópumótaröðin gerir kröfu um. Lykillinn að þessu eru risamótin (gilda bæði sem PGA Tour mót og mót á Evrópumótaröðinni) og heimsmótin, en af báðum tegundum golfmóta eru 4. Því miður fyrir Blixt hefir hann aðeins keppnisrétt á 3 risamótanna og aðeins er víst að hann hafi þátttökurétt á 1 heimsmótanna þ.e. Accenture Match Play Championship – heimsmótinu í holukeppni. „Ég verð að halda mér meðal 50 efstu,“ sagði Blixt, sem er nr. 42, sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 12:30
Golfútbúnaður: Nýi Adidas Adizero One golfskórinn

Adidas setti á markað nýja kynslóð af Adizero One golfskóm nú 6. janúar s.l. Helstu breytingar sem gerðar voru frá eldri skónum eru þær að nýi Adizero One vegur minna en 10 únsur (þ.e. minna en 280 grömm) og er sagður allt að 10% léttari en eldri gerðin, sem vóg 300 grömm og því er rétt þyngd á nýja golfskónum í kringum 270 grömm. Með hönnun á nýja Adizero golfskónum hefir Adidas þróað léttasta golfskóinn, sem það hefir sett á markað í sögu fyrirtækisins. Sjá má grein sem birtist á Golf 1 fyrir ári síðan, um eldri gerð Adizero með því að SMELLA HÉR: en sá skór þótti byltingakenndur hvað léttleika Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 09:30
Adam Scott á brimbretti í Hawaii og með Benji brimbrettakappa á pokanum

Adam Scott hrósaði brimbrettakappanum Benji Weatherley mjög, en sá var á pokanum hjá honum á Sony Open í Hawaii í gær. Weatherley var að leysa Steve Williams af, en sá ætlar sem kunnugt að smádraga sig út úr kaddýmennskunni og hefir gefið út að hann ætli alveg að hætta 2015. Nr. 2 á heimslistanum með Weatherley á pokanum var á 3 undir pari, 67 höggum eftir 1. hring og deilir 12. sætinu, með 12 öðrum kylfingum þ.á.m. Jason Dufner. Adam missti hvergi högg á hringnum, fékk 3 fugla á 8.; 9. og glæsifugl síðan á 18. lokaholuna! Scott er sjálfur ágætur á brimbretti og skemmtu þeir Weatherley sér á brimbrettum á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 09:00
PGA: Sang-Moon Bae í 1. sæti eftir 1. dag Sony Open á Hawaii – Myndskeið

Það er Sang-Moon Bae frá Suður-Kóreu, sem leiðir á Sony Open sem hófst í gær á Waialea CC, í Honolulu á Hawaii. Bae lék á 7 undir pari, 63 höggum. Í 2. sæti er Bandaríkjamaðurinn Chris Kirk, sem var höggi á eftir á 6 undir pari, 64 höggum. Tveir kylfingar deila 3. sætinu: Brian Stuard og Ryan Palmer, báðir á 5 undir pari, 65 höggum. Sjö kylfingar deila síðan 5. sætinu á 4 undir pari, 66 höggum, hver: John Daly, Retief Goosen, Harris English, Jimmy Walker, Hideto Tanihara, Jason Kokrak og Daniel Summerhayes. Til þess að sjá stöðuna á Sony Open eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 08:30
Evróputúrinn: Jacquelin leiðir eftir 1. dag í Durban – Myndskeið

Í gær hófst Volvo Golf Champions mótið í Durban CC, í KwaZulu Natal héraðinu í Suður-Afríku. Það var mjög heitt á fyrsta móti ársins á Evrópumótaröðinni í gær. Eftir 1. dag leiðir franski kylfingurinn Raphaël Jacquelin; lék á 5 undir pari, 67 höggum. Aðeins 1 höggi á eftir er heimamaðurinn og Masters sigurvegarinn (2010), Louis Oosthuizen; á 4 undir pari, 68 höggum. Tveir deila síðan 3. sætinu; hinn granni Darren Clarke, (búinn að grenna sig um 20 kíló sbr. frétt Golf 1 Sjá með því að SMELLA HÉR:) og Frakkinn Victor Dubuisson, báðir á 3 undir pari, 69 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Volvo Golf Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

