Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2014 | 19:30

Afmæliskylfingur dagsins: Sergio Garcia ——– 9. janúar 2014

Það er spænski kylfingurinn Sergio Garcia Fernández, sem er afmæliskylfingur dagsins. Sergio er fæddur í Borriol, á Castellón,á Spáni,  9. janúar 1980 og á því 34 ára afmæli í dag. Hann hefir verið nokkuð í fréttum á s.l. ári 2013.  Þar ber hæst eitt vinsælasta fréttaefni beggja vegna Atlantsála þegar hann lét Tiger fara í taugarnar á sér og lét falla nokkur vel valin orð um kjúklingaætuna, orð sem túlkuð voru sem kynþáttaníð. Öllu skemmtilegri var fréttin um Garcia þegar hann sigraði á Thaíland Golf Open með kærustu sína, austurrísku leikkonuna Katharinu Boehm á pokanum í síðasta mánuði. Sjá með því að SMELLA HÉR:  Svo um jólin bárust fréttir að Sergio spilaði gjarnan knattspyrnu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2014 | 13:00

Alastair Forsyth: „Við erum á sama túrnum en topp 60 kylfingarnir eru á öðrum hnetti“

Skotinn Alastair Forsyth rétt náði aftur kortinu sínu í gegnum Q-school Evróputúrsins í Girona, á Spáni í nóvember s.l. (Sjá kynningu Golf 1 á Forsyth með því að SMELLA HÉR: ) Hann tjáði sig um lífið á túrnum í góðri grein í Daily Record, sem birtist í gær 8. janúar 2014 og birtist hér í lauslegri þýðingu: „Nýja árið á Evróputúrnum hefst með flugeldasýningu fyrir nokkur af stóru nöfnunum sem koma saman í Suður-Afríku í hinu ábatasama tournament of champions á morgun.  En fyrir afganginn af okkur er framundan frústrerandi mánuður á varamannabekknum meðan topp gaurarnir hefja leikinn. Þegar ég vann aftur kortið mitt sagði ég að aðeins hálfur sigur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2014 | 11:00

Jiménez líklegur varafyrirliði í Rydernum

Miguel Angel Jiménez er líklegur til þess að verða einn af varafyrirliðum Paul McGinley í liði Evrópu í Ryder bikarnum nú seinna á árinu– en aðeins ef honum tekst ekki að komast í sjálft liðið. Jiménez, sem varð 50 ára á sunnudaginn, var síðast í Ryder bikars liði Evrópu í Celtic Manor 2010 og hefir látið hafa eftir sér: „Ef ég spila vel trúi ég því að ég verði í liðinu.“ „Það myndi hafa mikla þýðingu fyrir mig.“ McGinley, sem ásamt Jiménez var varafyrirliði liðs Evrópu í  ‘Kraftaverkinu í Medinah’ árið 2012, mun tilkynna um varafyrirliða sína í maí eða júní. Jiménez bætti við: „Við ræddum saman nokkur orð og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2014 | 09:30

GO: 6 námskeið á vegum MP Golf

Alls byrja í inniaðstöðunni 6 námskeið sem ættu að geta hentað öllum aldurshópum og ólíkum kylfingum hvort sem er saman eða í sitthvoru lagi. Það er skemmtilegt frá því að segja að í fyrsta sinn verður boðið upp á byrjendanámskeið þar sem notast verður við SNAG golfkennslukerfið. SNAG (Starting New at Golf) er frábært kennslukerfi sem ætlað er fólki á öllum aldri og hvaða getustigi sem er. Kerfið hentar báðum kynjum, börnum, fullorðnum og öldruðum. SNAG kerfið hentar einnig vel til að kenna fötluðum einstaklingum. SNAG snýst um að hafa gaman á meðan verið er að læra grundvallaratriðin í golfi. Hugtökin sem notuð eru í SNAG skapa skýrar myndir í huga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2014 | 09:00

Tiger fór yfir $1,3 billjóna markið

Tiger Woods er sá íþróttamaður sem þénaði mest í heiminum á árinu 2013 s.s. Golf 1 greindi frá fyrir skemmstu – sjá með því að SMELLA HÉR:  Upphæðunum sem Tiger á að hafa unnið sér inn skv. ofangreindri heimild ber ekki alveg saman við þær upplýsingar sem Golf Digest hefir og greint er frá hér að neðan. En munurinn $ 5 milljónir skiptir litlu – Nr. 1 á heimslistanum, Tiger, er eftir sem áður lang tekjuhæstur, hvort sem er yfir heildina, þ.e. meðal allra íþróttamanna í heiminum eða þegar bara eru teknar tekjur atvinnukylfinga á PGA túrnum allt frá upphafi eða bara tekjur kylfinga á árinu 2013. Tiger  náði einnig Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2014 | 07:00

GSG: Aðalfundur 28. janúar n.k.

Aðalfundurinn verður 28. janúar 2014 í Golfskálanum  Sandgerði Störf aðalfundar eru: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár. 3. Reikningar lagðir fram og skýrðir. 4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Atkvæðagreiðsla um reikningana. 5. Lagabreytingar. 6. Lögð fram tillaga um gjaldskrá. 7. Kosning formanns. 8. Kosning tveggja stjórnarmanna. 9. Kosning skoðunarmanna reikninga og einn til vara. 10. Önnur mál. Ath það vantar alltaf fólk til starfa í klúbbnum.Þeir sem eru tilbúinir að starfa í nefndum á vegum GSG vinsamlega hafið samband við stjórnina.


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2014 | 06:00

Fowler vill vera þekktur fyrir golf fremur en föt

Rickie Fowler er einn af þeim kylfingum sem laðar að hvað stærsta aðdáendaskara. Hann er orkumikill, skemmtilegur, frábær við lítil börn ….. en hefir bara 1 sinni unnið á PGA Tour. Hann er ákveðinn að breyta því og til þess að sýna hversu mikil alvara honum er, réði hann golfkennaragúrúinn Butch Harmon til þess að hjálpa sér við sveifluna. Skv. Golf Digest bað Harmon, Phil Mickelson um leyfi til að mega vinna með Fowler, og Mickelson á að hafa samþykkt samstundis. „Phil sagði að þetta væri frábært,“ sagði Harmon. „Við þörfnumst þess að Fowler spili vel.“ Harmon sagði líka að Fowler væri ákveðinn að hrista af sér steríótýpuna sína – þ.e. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2014 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Nikki Garrett ——– 8. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er ástralski kylfingurinn Nikki Maree Garrett.  Nikki er fædd 8. janúar 1984 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Nikki gerðist atvinnumaður í golfi seint á árinu 2005 og var komin á Evrópumótaröðina (ens. Ladies European Tour, skammst. LET) árið 2006. Hún vann ekki mót á nýliðaári sínu en var 4 sinnum meðal 10 efstu í mótum LET og lauk 1. ári sínu í 12. sæti á peningalista mótaraðainnar það ár, þ.e. með  €99,445 í verðlaunfé. Hún hlaut,Ryder Cup Wales Rookie of the Year, þ.e. var valin nýliði ársins 2006. Árið 2007 sigraði hún tvisvar sinnum í röð á LET þ.e. á Tenerife Ladies Open and the Open Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2014 | 17:30

Golfsvipmynd dagsins: Snjór á Bethpage

Í síðustu viku var Bethpage Black golfvöllurinn í New York, þar sem 2 Opin bandarísk risamót hafa m.a. verið haldin, algerlega á kafi í snjó. Völlurinn var enn eitt fórnarlamb snjóstormsins sem geystist yfir New York og norðausturhluta Bandaríkjanna í síðustu viku. Að sögn vallarstarfsmanns leysti snjóinn þó í rigningunni í gær og er hann næstum auður nú. Bethpage Black er í uppáhaldi hjá hópi Íslendinga, sem algerlega elska þennan krefjandi völl, sem talinn er einn af 5 erfiðustu golfvöllum Bandaríkjanna!


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2014 | 13:00

Darren Clarke léttist um 20 kíló

Fyrrum meistari Opna breska Darren Clarke hefir lagt af um 20 kíló í von um að ná meiri árangri á golfvellinum. Hann er nú kominn til Suður-Afríku þar sem hann tekur þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum í Durban. Aðspurður hvað orðið hefði til þess að hann hefði léttst svona mikið sagði Clarke einfaldlega: „Ég var of feitur.“ Clarke sagði jafnframt að það hefði bara verið orðið ansi pirrandi að klára aldrei mótin sbr. t.a.m. Dunhill Links Championship og nokkur önnur mót, eftir að hafa verið í sigurvænlegri stöðu fyrstu dagana þannig að hann fór og ræddi við Jamie Myerscough, framkvæmdastjóra Educogym í Dublin. Clarke sagði að Jamie hefði lofað að Lesa meira