Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2014 | 12:30

PGA: John Daly nær niðurskurði – en meiddur á olnboga aftur og óvíst hvort hann klárar!

John Daly sneri aftur á  PGA Tour eftir að hafa verið í 6 mánuði frá, en hann gæti þurft að vera enn lengur frá, eftir að meiðsl í olnboga tóku sig upp eftir högg Daly í sandglompu á 3. holu 2. hrings Sony Open. Daly, sem fór í uppskurð með olnbogann 9. júlí til þess að láta laga rifna sin, virðist hafa rifið upp sárið á 12. holu  Waialae Country Club (3. holu á 2. hring Daly) þar sem hann var að slá úr flatarglompu. Þá voru 15 holur eftir og leikur Daly eftir það býsna skrautlegur vegna verkjar í olnboganum – hann var m.a. með 2 skramba, 3 skolla, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2014 | 12:00

Heiða Guðna og Kristján Þór tilnefnd til íþróttakonu og karls Mosfellsbæjar

Kylfingarnir Heiða Guðnadóttir og Kristján Þór Einarsson hafa verið tilnefnd til heiðurstitlanna íþróttakonu og karls Mosfellsbæjar. Í Mosfellsbæ er kjörið mjög lýðræðislegt og fer fram netkosning til að skera úr um hver verður útnefndur íþróttakona og karl Mosfellsbæjar. Golf 1 hvetur kylfinga til að styðja þau Heiðu og Kristján Þór í kosningunni en komast má á kosningasíðuna til að kjósa þau með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2014 | 10:00

GHD: Golf- og Æfingaferð á Hacienda del Alamo

Golfkrakkarnir flottu á Dalvík, sem verið hafa að vinna hvern Íslandsmeistaratitilinn á fætur öðrum á Íslandsbankamótaröðinni s.l. sumar eru að fara í golf- og æfingaferð með Heimsferðum í vor. Á heimasíðu GHD má sjá dagskrá ferðarinnar sem er eftirafarandi: Hacienda de Alamo er 5 stjörnu golf paradís og er nýr áfangastaður í golfveislu Heimsferða. Golfsvæðið er í hjarta Murcia fylkis og aðeins 30 mín akstur frá Murcia borginni og La Manga ströndinni, og aðeins 20 mín akstur frá hinni sögufrægu Cartagena borg. Hacienda del Alamo býður uppá 310 sólardaga á ári og rómað fyrir veðursæld og náttúrufegurð. Það verður enginn svikinn af þessari einstöku upplifun. Hacienda Del Alamo Golf Á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2014 | 09:00

GK: Skráningafrestur í liðapúttmót Hraunkots til 5. febrúar

Þá er komið að því á ný að liðapúttmótaröð Hraunkots hefji göngu sína. Verðlaun verða veitt fyrir 4 efstu sætin en 35% af þátttökugjaldi fer í verðlaun. Stofnuð verður síða á facebook þar sem úrslit hvers leiks eru sett inn og umræður og vangaveltur skapast vonandi um einstaka leiki. Þátttökugjald er kr. 15.000,- fyrir hvert lið. Í hverri viku er leikinn einn leikur, 36 holu holukeppni, 1 x betri bolti, 2 x tvímenningar. Hvert lið hefir hámark 6 keppendur. Skráningafrestur er til 5. febrúar 2014. Liðum verður skipað í riðla. Form úrslitakeppni ræðst af fjölda liða í keppninni. ALLIR VELKOMNIR Þetta er gott tækifæri fyrir spilahópa og félaga til að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2014 | 08:00

GR: Púttmót karla hefst 16. janúar n.k.

Púttmót GR-karla hefst fimmtudagskvöldið 16. janúar frá kl. 17:30 og stendur yfir í 10 vikur. Lokakvöldið að þessu sinni verður svo á föstudagskvöldið 21. mars. Sex bestu umferðirnar af tíu telja. Mótið verður með sama sniði og undanfarin ár. Leiknir eru 2 hringir á hverju kvöldi, eða 36 holur. Einstaklingskeppnin: Keppt verður um púttmeistara klúbbsins og skilar hver leikmaður 36 holu skori hvert kvöld. Liðakeppnin: Þrír leikmenn skipa hvert lið og spila allir 2×18 holur. Liðið skilar svo inn einu skori sem samanstendur af bestu fjórum 18 holu hringjunum af sex. Einnig er hægt að hafa 4 í liði ef það hentar betur, en hvert kvöld telja einungis 3 leikmenn, og skal Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2014 | 06:15

PGA: Brian Stuard efstur á Hawaii eftir 2. dag – Spieth komst ekki gegnum niðurskurð!

Það er tiltölulega óþekktur kylfingur, Brian Stuard, (f. 10. desember 1982 – 31 árs) sem leiðir eftir 2. dag Sony Open á Waialea í Hawaii. Stuard komst fyrst á PGA Tour í gegnum Web.com árið 2012 og spilaði fyrsta keppnistímabil sitt 2013. Stuard er búinn að spila samtals á 10 undir pari, 130 höggum (65 65). Öðru sætinu deila þeir Marc Leishman og Japaninn Hideto Tanihara, á samtals 9 undir pari, 131 höggi, hvor: Leishman (67 64) og Tanihara (66 65). Þrátt fyrir glæsilegan albatross er deilir James Hahn 17. sætinu með stjörnuflóði 7 kylfinga; sem allir hafa spilað á samtals á 5 undir pari og eru því 5 höggum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2014 | 06:00

Evróputúrinn: 3 í forystu á Volvo Golf Champions eftir 2. dag

Það eru 3 sem leiða eftir 2. dag Volvo Golf Champions í Durban CC, í KwaZulu Natal,  Suður-Afríku: Joost Luiten, sem fékk svo glæsilegan albatross á par-5 10. braut Durban golfvallarins; Englendingurinn Tommy Fleetwood og heimamaðurinn Louis Oosthuizen. Allir eru þessir 3 forystumenn búnir að spila á samtals 7 undir pari, 137 höggum; Luiten (70 67); Fleetwood (70 67) og Oosthuizen (68 69). Í 4. sæti, höggi á eftir er Frakkinn „Mozart“; þ.e. Frakkinn Victor Dubuisson og í 5. sæti, enn öðru höggi á eftir er Ítalinn Matteo Manassero. Sjötta sætinu deila síðan forystumaður 1. dags Rapahaël Jacquelin og hinn granni Darren Clarke, á samtals 4 undir pari, hvor. Til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2014 | 05:00

PGA: Glæsilegur albatross James Hahn – Myndskeið

Fyrr í gærkvöldi náði Joost Luiten glæsilegum albatross á Volvo Golf Champions mótinu í Durban, Suður-Afríku og er einn af 3 sem leiða í mótinu. Hann var ekki sá eini sem fékk albatross, því hinum megin á hnettinum á Sony Open var James Hahn með ekki síðri albatross á Sony Open á Waialea á Hawaii. Sjá má albatross Hahn með því að SMELLA HÉR:  Að þessu sinni fagnaði Hahn ekki Gangnam style en hann vakti mikla athygli á sér í febrúar á síðasta ár, 2013, á Waste Management Phoenix Open (Sjá frétt Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR:) þegar hann fagnaði fínum fugli Gangnam Style.  Nú bar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 23:30

Dufnershjónin á göngu í Hawaii – Myndskeið

Hér er meðfylgjandi myndskeið af „the Dufners“ gangandi um undir Banyan trjánum á Hawaii. Til þess að sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2014 | 21:00

GK: SNAG golfæfingar fyrir börn

Golfklúbburinn Keilir ætlar að bjóða upp á SNAG golfæfingar fyrir börn.  Á heimasíðu klúbbsins segir íþróttastjóri GK þannig eftirfarandi: „Nú ætlum við í Keili að bjóða upp á SNAG-golfæfingar (golfþrautabraut) fyrir krakka 5-10 ára á laugardögum í Hraunkoti, æfingasvæði Keilis. Æfingar verða á laugardögum, 12 vikur í röð. Dagseting: 11.jan.-29.mars. 2014. Þeir sem eru að æfa hjá okkur þurfa ekkert að greiða fyrir þessar æfingar, en þeir sem vilja koma prufa og eru ekki í klúbbnum greiða 5.000 kr. fyrir veturinn. Aldurskipting og mæting: kl. 9:15 – 10:00 5-7 ára. kl. 10:00 – 10:45 8-10 ára Kylfur á staðnum fyrir alla kylfinga. Nánari uppl. sendið póst á bjorgvin@keilir.is Kveðja Björgvin Lesa meira