Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 20:30

Evróputúrinn: Töframaður heillar leikmenn

Dustin Johnson setti eftirfarandi myndskeið á facebook síðu sína en hún sýnir töframann leika listir sínar fyrir nokkra leikmenn Evrópumótaraðarinnar. Á einum stað biður töframaðurinn Paul Lawrie m.a. að slá boltann og segist munu grípa hann sem hann gerir …. og virðist meiða sig í hendinni á því …. Ótrúleg brella! Sjá má myndskeiðið með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 18:30

Stenson valinn íþróttakarl 2013 í Svíþjóð

Sænski nr. 3 á heimslistanum, Henrik Stenson, hefir bætt enn einum heiðurstitilinum í safn sitt, en s.l. mánudag var hann valinn íþróttamaður ársins í Svíþjóð á íþróttahátíð Svía. Stenson var valinn íþróttakarl ársins og eins varð hann fyrsti karlíþróttamaðurinn til þess að hljóta „Radiosportens Jerringpris“ en það eru verðlaun veitt fyrir mesta íþróttaafrek ársins og er það sænskur almenningur sem velur þann íþróttamann í netkosningu. Stenson, sem tekur þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum, þ.e. Abu Dhabi HSBC Golf Championship, flaug sérstaklega til Svíþjóðar til þess að vera viðstaddur verðlaunaafhendinguna. Eftir að Stenson tók við verðlaununum sagði hann m.a.: „Það var mikill heiður að vera tilnefndur en að fara héðan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 18:00

GOS: Bjarki Þór ráðinn vallarstjóri

Golfklúbbur Selfoss hefur ráðið Bjarka Þór Guðmundsson sem vallarstjóri GOS í heilsárstöðu. Bjarki mun hefja störf 17.febrúar. Bjarki hefur unnið síðustu tvö sumur á Svarfhólsvelli en hann hefur mest séð um slátt ofl. á íþrottavöllum Árborgar en GOS sér um allan slátt og viðhald á völlum Árborgar. Áður vann Bjarki í nokkur ár á Kiðjabergsvelli. Bjarki er ráðinn sem vallarstjóri og hefur hann yfir umsjón með allri umhirðu og slætti Svarfhólsvallar og íþróttavalla Árborgar í samráði við framkvæmdastjóra. Stjórn GOS er gríðalega ánægð með að ná samningum við þennan góða og duglega dreng sem mun eflaust standa sig með prýði. Bjarki hefur reyndar verið síðustu daga að brjóta klaka á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 17:30

Hjón fá ás á sama hring

„Líkurnar eru víst 17 milljónir á móti 1 að svona nokkuð gerist ,“sagði Sandy Wechsler eftir að hún fékk ás á Desert Trails golfvellinum í Sun City, Arizona, sem er par-61 golfvöllur (Sjá með því að SMELLA HÉR: ) Það sem Sandy átti við var að hún og eiginmaður hennar Ted fóru bæði holu í höggi á sama hringnum 15. desember s.l. „Ég samgladdist honum að nokkru, en ég var líka reið að þetta var ekki ég,“ sagði Sandy Wechsler við KTVK, sem er lítil sjónvarpsstöð í Phoenix, Arizona.  „Ég var afbrýðissöm…. mig langaði líka í ás.“ Og þannig var það að Ted fékk ás eftir að slá með 6-járninu sínu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 17:00

Þjófur stöðvaður með golfkúlu – Myndskeið

Það eru fleiri sem mættu gera jafnskemmtilegar auglýsingar og Nescafé. Í nýjustu Nescafé auglýsingunni mætti ætla að jafnframt sé verið að auglýsa frumlegar aðferðir í glæpavörnum. Í meðfylgjandi myndskeið sést maður þrífa handtösku af konu sem er á göngu á golfbílastíg á golfvelli. Maður sem er á teig gerir sér lítið fyrir og slær þjófinn niður með því að dúndra golfkúlu í hann – góð æfing að hitta á skotmark á hreyfingu! …. en reyndar til lítillar eftirbreytni nema kannski í þessu tilviki.  Það á í raun í engum tilvikum að slá golfboltum í aðra sem eru á vellinum. En eftir allt er þetta bara auglýsing, sem gaman er að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 16:30

Golfútbúnaður: Nýi FJ DNA golfskórinn

Það er að koma á markað nýr golfskór í byrjun mars, FootJoy DNA, en DNA stendur fyrir „DryJoys Next Advancement.“ Skórinn stendur fyllilega undir nafni því það er hrein gleði að vera í honum. FootJoy hefir tekist afar vel að hanna klassískan golfskó með hreinum línum, sem er hvítur í grunninn en hægt er að velja um 5 mismunandi litatilbrigði: Efra byrði skósins er úr mjúku Pittard leðri, sem er vatnsvarið en er ekki með fráhrindihimnu þannig að skórinn „andar“ líka. Það þarf lítið að ganga þessa skó til og flestir geta farið út á völl í þeim beint úr boxinu. Leðrið er með fallega kornótta áferð framan á skónum, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 08:00

Daly fékk ekki bíl fyrir „ásinn“

Það eru fáir jafn óheppnir og John Daly. Nú hefir komið í ljós að höggið góða sem hann sló með nýja Callaway 9-járninu sínu á 7. braut í Pro-Am hluta Humana mótsins, var 2. högg hans af teig og þar að auki  með annarri kylfu (þ.e. nýju Callaway kylfunni) og því fær hann víti og Callaway kylfuhöggið því 3. högg hans af teig. Daly hlýtur því ekki fína Hyundai Equus bílinn s.s. Golf 1 og fleiri miðlar m.a. bandaríska PGA greindu frá í gær. Spurning hvort um svindl Daly sé að ræða a.m.k. mátti honum vera ljóst að höggið af teig var 2. högg hans og því ekki um ás Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 07:45

GÞ: Aðalfundur fer fram 21. jan n.k.

Aðalfundur Golfklúbbs Þorlákshafnar (GÞ) fyrir starfsárið 2013 verður haldinn i Golfskálanum i Þorlákshöfn þriðjudaginn 21. janúar 2014 og hefst kl. 20.00. Dagskrá fundarins: Kosning fundarstjóra og fundarritara. Skýrsla stjórnar og skýrslur nefnda. Lagður fram ársreikningur félagsins til afgreiðslu. Umræður um skýrslur og ársreikning,  atkvæðagreiðsla um ársreikning. Lagabreytingar, drög að nýjum lögum GÞ kynnt og borin undir atkvæði. Kosning stjórnar og skoðunarmanna. Tilnefning og kosning nefndarformanna. Ákvörðun árgjalds. Kynning á tillögu um framtíðarskipulag Þorláksvallar, Edwin Roald. Önnur mál.


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 07:30

Mickelson öruggur um Grand Slam

Kylfingar sem ná Grand Slam-i eru sjaldgæfir, þ.e. kylfingar sem unnið hafa í öllum 4 risamótunum. Phil Mickelson er öruggur um að sér muni takast að verða einn þeirra kylfinga, en hann hefir nú þegar sigrað á PGA Championship mótinu, þrívegis á the Masters og tókst að næla sér í Opna breska titilinn á síðasta ári. Allt sem hann vantar til að ná Grand Slam er sigur á Opna bandaríska. Í því móti hefir hann ítrekað orðið í 2. sæti nú á síðasta ári á eftir Justin Rose. „Ég trúi því að ég muni sigra á Opna bandaríska,“ sagði Mickelson á blaðamannafundi í aðdraganda Abu Dhabi HSBC Golf Championship. „Ég veit Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2014 | 20:00

Úlfar: „Áhuginn er til staðar“

Í gær bárust þær gleðifréttir að Úlfar Jónsson myndi starfa áfram sem landsliðsþjálfari íslenska golflandsliðsins. Golf 1 tók stutt viðtal við Úlfar í dag. Golf 1: Af hverju hættirðu við að hætta sem landsliðsþjálfari? Úlfar: „Áhuginn á landsliðsverkefnum er og var alltaf til staðar. Þetta var aldrei út af launum.  Þetta var bara orðið gífurlegt álag, en ég er í fullu starfi sem íþróttastjóri GKG, líka. Það náðust samningar við GSÍ og það verða fleiri sem koma að þessu með mér.“ Golf 1: Hverjir koma til með að starfa með þér? Úlfar: „Þeir verða kynntir síðar, en það eru nokkrir aðilar. Það hafa alltaf verið nokkrir aðilar sem koma að Lesa meira