Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2014 | 19:45

Ólafur á 68 höggum e. 1. dag

Ólafur Björn Loftsson, NK., hóf í dag leik í móti á  NGA mótaröðinni í Orlando. Ólafur Björn lék 1. hring á 3 undir pari, 68 höggum. Þátttakendur í mótinu eru 53 og deilir Ólafur Björn 11. sætinu með 7 öðrum (þ.e. er í 11.-18. sæti eftir 1. dag) og er rétt fyrir ofan niðurskurðarlínu. Það er því mikilvægt að ná góðu skori á morgun Þeir sem eru í efstu sætum eru Kanadamaðurinn Cristopher Ross og heimamaðurinn Phillip Mollica, sem báðir spiluðu í dag á 64 höggum.  Það munar því aðeins 4 höggum á 1. og 18. sæti, sem sýnir hversu gríðarlega hörð keppnin er. Til þess að sjá stöðuna á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2014 | 18:00

Atvinnumenn sitja fyrir

Þegar atvinnumenn í golfi fá himinháar fjárhæðir til þess að mæta í mót, þá er ýmislegt sem þeir verða að láta ganga yfir sig. Eitt af því er að sitja fyrir í allskyns myndatökum, misjafnlega gáfulegum með misjafnlega golflega fylgihluti á myndunum. Golf Channel hefir tekið saman nokkrar uppáhalds myndir af atvinnumönnum, sem sitja fyrir í skrítnum myndatökum. Sumar myndirnar eru bara hreinlega sætar eins og myndin af Jason Dufner með koala björninn eða þessi hér að ofan af Phil Mickelson. Hér má sjá myndirnar þar sem atvinnumenn í golfi eru fyrirsætur í myndatökum í aðdraganda ýmissa stórmóta þar sem þeir hafa oft á tíðum þegið himinháar fjárhæðir fyrir, oft Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2014 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Smári Þorsteinsson – 14. janúar 2014

Það er Gunnar Smári Þorsteinsson, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann fæddist 14. janúar 1996 og er því 18 ára í dag. Gunnar Smári hefir frá unga aldri spilað golf, varð t.a.m. í 2. sæti  í sínum flokkki (12 ára og yngri pollar) á eftir Kristni Reyr Sigurðssyni í meistaramóti GR, 2008.  Hann sigraði strákaflokk í 2. móti Arionbankamótaraðar unglinga að Korpúlfsstöðum, sem fór fram 5. -6. júní 2010. Og í Íslandsmóti unglinga í holukeppni 2010 setti hann nýtt vallarmet í Leirunni, -3 eða 69 högg og sló þar með út 15-16 ára gamalt met sem Örn Ævar setti á sínum tíma. Hér er aðeins fátt eitt talið af afrekum Gunnars Smára Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2014 | 13:00

Golfsvipmynd dagsins: María Verchenova

Golfsvipmynd dagsins er af rússneska kylfingnum Maríu Verchenovu, 27 ára, sem valin var besti rússneski kvenkylfingurinn árin 2004 og 2006. Verchenova er fyrsti rússneski kvenkylfingurinn til þess að spila á LET (þ.e. Evrópumótaröð kvenna) og hún spilaði 2011 keppnistímabilið. Árið 2012 tók Verchenova sér frí og átti fyrsta barn sitt, dótturina Maríu og var algerlega frá keppnum. Hún byrjaði að æfa aftur í lok árs 2012 og 2013 og vonandi fáum við von bráðar aftur að sjá hana keppa.  Hún hefir ítrekað verið talin ein af kynþokkafyllstu kylfingum heims. Golfsvipmynd dagsins er af Maríu þar sem hún var í afslöppun í Balí í jólafríinu 2013 (gaman að sjá þá grænu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2014 | 09:30

Fylgist með Ólafi Lofts á West Orange CC í Flórída í dag

Ólafur Björn Loftsson, NK, mun á næstunni taka þátt í úrtökumóti fyrir PGA Tour Latino América, þ.e. suður-amerísku mótaröðinni. Í dag hefur hann hins vegar leik í móti á NGA mótaröðinni í Orlando, nánar tiltekið í West Orange CC, til þess að komast í spilaform og vera vel undirbúinn fyrir þá suður-amerísku, en 5 efstu af þeirri mótaröð hljóta þátttökurétt á Web.com mótaröðinni, sem er sem stendur eini aðgangurinn að bestu mótaröð heims, PGA Tour. Fylgjast má með gengi Ólafs Björns í West Orange CC með því að SMELLA HÉR:  Ólafur Björn segir eftirfarandi um ofangreint á facebook síðu sinni: „Kominn til Orlando, tilbúinn til að hefja nýtt keppnistímabil. Ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2014 | 09:00

PGA: John Daly fær bíl fyrir ás!

Varla er Sony Open búið þá er John Daly aftur í fréttum ….. en ekki fyrir neinn skandal! Daly tók þátt í Pro-Am móti fyrir Humana Challenge, sem er mót vikunnar á PGA Tour og viti menn Daly átti draumahögg, fór holu í höggi! Fyrsta höggið, sem Daly sló með nýja Callaway 9-járninu sínu, fór beint ofan í holu, en aðstoðarmaður frá Callaway hafði nýlokið við að afhenda Daly kylfuna. Ás Daly kom á 154 yarda (141 metra)  7. holu á PGA West Nicklaus golfvellinum. „Ég fylgdist ekki einu sinni með hvert höggið fór,“ sagði Daly. „Ég beygði mig bara niður (eftir að ég sló) til þess að ná í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2014 | 08:00

GKG: Úrslit í 1. púttmóti barna og unglinga

Púttmótaröð vetrarins fór af stað s.l. laugardag, en alls verða 9 mót í vetur.  Hér fyrir neðan má sjá besta árangur í hverjum flokki sem náðist í fyrsta púttmótinu. Til að sjá úrslit allra keppenda SMELLIÐ HÉR:. GKG þakkar öllum þátttökuna og minnir á næsta mót sem fer fram laugardaginn  25. janúar í Kórnum. Hægt er að pútta milli 11-13 og er þátttaka ókeypis. Staða efstu keppenda eftir 1. púttmótið er eftirfarandi:  12 ára og yngri stelpur 11.jan Hulda Clara 30 Herdís Lilja 30 12 ára og yngri strákar 11.jan Hjalti Hlíðberg 30 Róbert 30 13 – 15 ára strákar 11.jan Róbert Þrastarson 26 16 – 18 ára piltar 11.jan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2014 | 22:00

Úlfar áfram landsliðsþjálfari

Í fréttatilkynningu frá GSÍ segir eftirfarandi: „Í byrjun desembermánaðar tilkynnti Úlfar Jónsson stjórn Golfsambands Íslands að hann segði starfi sínu sem landsliðsþjálfari lausu. Í kjölfarið hafa átt sér stað viðræður á milli golfsambandsins og Úlfars sem hafa leitt til þess að samkomulag hefur náðst um áframhaldandi störf Úlfars. Golfsambandið fagnar því að Úlfar skuli áfram starfa sem landsliðsþjálfari enda spennandi tímar framundan í afreksmálum sambandsins.“ Úlfar er 45 ára (f. 25. ágúst 1968), íþróttastjóri GKG,  kylfingur 20. aldarinnar og margfaldur Íslandsmeistari. Það er mikið gleðiefni að hann skuli áfram vera landsliðsþjálfari, enda þörf okkar albestu manna ætli golfhreyfingin að koma islenskum kylfingi á Ólympíuleikana 2016! Golf 1 óskar Úlfari áframhaldandi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2014 | 21:00

Náungi dettur inn í golfverslun… gegnum þakið – Myndskeið

Í gær í þættinum Morning Drive sem er uppáhaldsþáttur margra kylfinga var sýnt meðfylgjandi myndskeið, sem sýnir mann detta inn í golfverslun í gegnum þak á búðinni. Þáttarstjórnendurnir furða sig á því að enginn virðist hafa áhyggjur af manninum sem datt inn í golfverslunina …. og finnst eitthvað óhugnanlegt við þetta næstum eins og úr kvikmynd eftir Cohen bræður. Dæmið sjálf – Hér má sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2014 | 21:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jóhann P. Kristbjörnsson – 13. janúar 2014

Það er Jóhann P. Kristbjörnsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Jóhann er í Golfklúbbi Suðurnesja, fæddur 13. janúar 1969 og því 45 ára í dag!!! Jóhann er með 12,4 í forgjöf og hefir verið duglegur að taka þátt í opnum mótum með góðum árangri;  var m.a. á Marsmóti 1 í Sandgerði á s.l. vori (2013). Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mark O´Meara 13. janúar 1957 (57 ára);  Gyða Björk Ágústsdóttir, 13. janúar 1978 (36 ára); Rachel Bell, 13. janúar 1982 (32 ára) ….. og ….. Siggi óli (46 ára) Gunnar Gunnarsson Birgir Albertsson Sanders, GS (47 ára) Baldur Ólafsson (45 ára) Guðjón Frímann Þórunnarson  (33 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli Lesa meira