Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 21:00
Ólafur lauk leik í 13. sæti

Ólafur Björn Loftsson, NK, lauk leik í móti í West Orange CC, á NGA Pro Golf Tour, í Flórída í dag og varð í 13. sæti! Mótið var 3 hringja mót og fór fram 14.-16. janúar 2014. Ólafur Björn spilaði á samtals 3 undir pari, 210 höggum (68 70 72). Á lokahringnum lék Ólafur Björn á 1 yfir pari, 72 höggum, var með 4 skolla og 3 fugla. Sigurvegari mótsins varð Christopher Ross frá Kanada en hann var búinn að leiða allt mótið. Sigurskor hans var 13 undir pari (64 66 70) en leikur hans fór versnandi eftir því sem leið á mótið, líkt og hjá Ólafi Birni. Til þess Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 20:45
Nær Tiger risamótsmetinu af Nicklaus?

Jack Nicklaus hefir sigrað í 18 risamótum á ferli sínum, meðan Tiger hefir „aðeins“ sigrað í 14 mótum, síðast árið 2008 þ.e. fyrir 6 árum. Stóra spurningin s.l. 6 ár hefir því verið hvort Tiger nái risamótsmetinu af Nicklaus en til þess þarf hann að sigra í 5 risamótum í viðbót. Við lýsingu á fyrsta móti ársins á PGA Tour, Hyundai Tournament of Champions spurði Rich Lerner, á Golf Channel golfskýrandann og tvöfaldan risamótsmeistrann Johnny Miller að því hvort hann teldi að Tiger myndi slá eða jafna risamótsmet Nicklaus. Miller svaraði með stuttu „nei.“ Hann útskýrði afstöðu sína með því að segja að til þess þyrfti Tiger að sýna af Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 20:30
Hvítur skalli Stewart Cink

Kylfingar kannast vel við það að þegar þér spila í sól og eru með golfhanska þá er sú hönd sem hanskinn er á föl og náleg miðað við hina höndina, sem er frjáls og hanskalaus í sólinni. Á Sony Open s.l. helgi tók bandaríski kylfingurinn Stewart Cink ofan derið að hring loknum til að taka í hönd keppinautar síns og viti menn næpuhvítur skallinn var í hrópandi andstöðu við brúnan háls og andlit Cink. Stóð skallinn í raun upp úr eins og egg úr eggjabikar, svo mikið var brúnkufarið! Fréttamenn ESPN fannst Cink m.a. geta leikið i hryllingsmynd svo mikil voru viðbrigðin þegar derið fór ofan. Hins vegar gott hjá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 20:00
Kærastan dregur ekki lengur fyrir Garcia

Sergio Garcia var með kærustu sína, Katharinu Boehm á pokanum þegar hann sigraði í Thailand Golf Championship í lok árs 2013. Þau eru enn saman, en Katharina var ekki á pokanum hjá Garcia í dag í Abu Dhabi Golf Championship…. og Garcia gekk ekkert vel…. lék á 4 yfir pari, 76 höggum og deilir 104. sætinu ásamt 9 öðrum kylfingum eftir 1. dag og þarf heldur betur að taka sig til í andlitinu ætli hanns sér að ná niðurskurði á morgun. Katharina ákvað að hætta leik þegar hæst stæði og að reglulegur kylfuberi Garcia, Neil Wallace, ætti að taka við af henni. Svo gæti þó farið að hún yrði aftur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 16:00
Viðtalið: Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari

Viðtalið í dag er við Úlfar Jónsson, sem ákvað nú á dögunum að halda áfram sem landsliðsþjálfari GSÍ: Fullt nafn: Úlfar Jónsson. Klúbbur: GKG. Hvar og hvenær fæddistu? Í Hafnarfirði, 25. ágúst 1968. Hvar ertu alinn upp? Í Hafnarfirði. Í hvaða starfi/námi ertu? Ég er íþróttastjóri GKG og landsliðsþjálfari GSÍ. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég er kvæntur og á 3 börn. Konan mín, Helga Sigurgeirsdóttir, spilar golf og eldri sonur minn, Aron, 16 ára, spilar og yngri sonurinn, Hilmar Jón, 10 ára – hann er mest í taikwando, en gutlar aðeins í golfi. Stjúpdóttir mín, Unnar Elsa hefir ekki áhuga á golf, en er meira Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 15:45
Afmæliskylfingar dagsins: Ásta Birna og Kristján Þór – 16. janúar 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru Ásta Birna Magnúsdóttir og Kristján Þór Gunnarsson. Ásta Birna er fædd 16. janúar 1988 og á því 26 ára afmæli í dag – Kristján Þór er fæddur 16. janúar 1958 og er því 56 ára. Ásta Birna býr í Þýskalandi sem stendur og leikur þar með Golf Club Lippstadt, en var þar áður í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Kristján Þór er í GKG. Ásta Birna er í sambandi með Markus Kröner en Kristján Þór kvæntur Guðrúnu Huldu Birgisdóttur og eiga þau 4 börn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með afmælið hér að neðan: Ásta Birna Magnúsdóttir (26 ára – innilega til hamingju með afmælið!!!) Kristjan Thor Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 15:30
Evróputúrinn: 3 leiða eftir 1. dag í Abu Dhabi

Það eru þrír kylfingar sem leiða á Abu Dhabi HSBC Golf Championship, sem hófst í dag í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þetta eru Spánverjinn Rafa Cabrera Bello, Frakkinn Romain Wattel og Englendingurinn Matthew Baldvin. Allir spiluðu þeir á 5 undir pari, 67 höggum. Aðeins 1 höggi á eftir eru 7 kylfingar; þ.á.m. Hollendingurinn Joost Luiten. 8 kylfingar deila síðan 11. sætinu á 3 undir pari, 69 höggum en þ.á.m. er m.a. Spánverjinn Pablo Larrazabal. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Abu Dhabi HSBC Golf Championship SMELLIÐ HÉR: Sjá má högg dagsins á 1. degi Abu Dhabi HSBC Golf Championship með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 15:00
Kylfusveini Steele vísað úr landi

Brendan Steele neyðist til að skipta um kylfusvein með stuttum fyrirvara fyrir Humana Challenge mótið á PGA Tour eftir að kylfusveini hans var meinað um landvist í Bandaríkjunum vegna vandræða með vegabréfsáritun. Komið var að sögn fram við kylfusvein Steele, Sam Pinfold, eins og glæpamann af útlendingaeftirliti Bandaríkjanna og honum var neitað um landvist þegar hann kom úr flugi frá heimalandi sínu Nýja-Sjálandi til Kaliforníu. Pinfold var sendur aftur heim, en Steele er vongóður um að leysist úr hans málum von bráðar, sbr.: „Sam kom aftur á sunnudaginn og lenti á LAX (Los Angeles International airport) en komst ekki í gegnum tollinn.“ „Þeir komu fram við hann eins og glæpamann sneru Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 22:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ellý Erlingsdóttir -15. janúar 2014

Það er Ellý Erlingsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Ellý fæddist 15. janúar 1962. Ellý er í Golfklúbbnum Keili og þar að auki mikill FH-ingur. Hún er fyrrum bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Ellý er gift Emil Lárus Sigurðssyni, lækni og eiga þau 3 börn: Erling Daða, Guðrúnu og Kristján Gauta Emilsbörn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ellý til hamingju með afmælið hér að neðan: Ellý Erlingsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Howard Allen, 15. janúar 1949 (65 ára); Ted N Tryba, 15. janúar 1967 (47 ára); og Will Strickler, 15. janúar 1986 (28 ára)… og…. Y.E. Yang (á kóreönsku: Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2014 | 21:00
Ólafur í 16. sæti eftir 2. dag

Ólafur Björn Loftsson, NK, lék 2. hring sinn í West Orange CC í Flórída í dag. Ólafur Björn lék á 1 undir pari, 70 höggum og er í 16. sæti eftir 2. dag, sem hann deilir með 2 öðrum. Á hringnum í dag fékk Ólafur Björn 4 skolla og 3 fugla. Samtals er Ólafur Björn búinn að spila á 4 undir pari, 138 höggum (68 70). Í efsta sæti, líkt og á fyrsta degi, er Kanadamaðurinn Christopher Ross, á samtals 12 undir pari. Til þess að skoða stöðuna í mótinu hjá Ólafi Birni eftir 2. dag SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

