Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2014 | 09:45

Adam Scott valinn besti íþróttamaður Ástralíu

Nr. 2 á heimslistanum, Adam Scott, var valinn besti íþróttamaður Ástralíu skv. lista yfir 100 bestu áströlsku  íþróttamennina, sem birtur var í ástralska dagblaðinu News Limited. Listinn var settur saman af hinum virta fréttamanni Richard Hinds, en félagi Scott á PGA,  Jason Day varð í 13. sæti. Kylfinurinn Marc Leishman varð síðan í 82. sætiþ Hinds sagði um Scott að hann hefði, „náð að sýna gríðarmikla hæfileik sína með því að verða fyrsti Ástralinn til þess að sigra US Masters.“ „Adam er nú sá íþróttamaður sem náð hefir mesta árangri á alþjóðvettvangi og jafnframt sá sem er sýnilegastur.“ Þetta er mikið lof fyrir strákinn frá Queensland (Adam Scott), en svo mikið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2014 | 09:00

Líf Cristie Kerr hefir breyst við fyrsta barnið

Líf bandaríska kylfingsins Cristie Kerr breyttist dramatískt fyrir 2 mánuðum. Þá fékk hún fyrsta barn sitt, Mason Kerr Stevens, í hendurnar á sjúkrahúsi í Flórída. Hún fann heimsálfuplöturnar skjálfa undir fótum sér og vissi að ekkert yrði eins og það var aftur. „Það er eins og ég hafi ekki þekkt sjálfa mig áður en Mason fæddist,“ sagði Kerr í viðtali við GolfChannel.com. „Allir segja að það að eignast barn breyti lífi manns, en maður veltir bara fyrir sér, hvernig nákvæmlega? Þar til að maður eignast barn veit maður það ekki og skilur ekki í raun þá ást sem býr í manni. Þetta er miklu betra en ég hefði nokkru sinni getað Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2014 | 08:00

Sólskinstúrinn: Sigur Sterne á Joburg Open væri sögulegur

Richard Sterne tekur þátt í móti vikunnar á Sólskinstúrnum, Joburg Open, þegar hann snýr aftur til þess að verja titil sinn í mótinu, sem er samstarfsverkefni Evrópumótaraðarinnar og Sólskinstúrsins. Mótið hefst á fimmtudeginum á Austur og Vestur völlunum og síðustu 2 hringirnir verða bara spilaðir á Austurvellinum. Sterne varð fyrsti sigurvegari Joburg Open frá Suður-Afríku árið 2008 og setti met í fyrra þegar hann vann mótið með mesta mun á næsta keppenda í sögu þess eða 7 högg. Í ár ætlar hann að verja titil sinn og jafnframt verða sá fyrsti í sögunni til að sigra þrívegis á mótinu. Sterne hlakkar til að spila aftur á „heimavelli“: „Mér líkar við Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2014 | 07:30

Bestu högg Waste Management Phoenix Open 2014 – Myndskeið

Eitt af flottustu höggunum á Waste Management Phoenix Open 2014 var svo sannarlega högg Ben Crane á par-4 17. brautinni þegar hann fór næstum holu í höggi en átti þægilegt pútt fyrir erni. Hér fer samantekt á einhverjum flottustu höggunum á Waste Management Phoenix Open 2014 SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2014 | 21:30

Tiger flaug til Indlands til að spila 18 holur!

Tiger Woods kom til Nýju Delhi á Indlandi í dag, í fyrstu heimsókn sinni til Indlands, þar sem hann mun spila við sérstakan gest í einkamóti, sem styrkt er af mótórhjóla framleiðanda. Nr. 1 á heimslistanum kom til Indlands frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum eftir keppnina á Omega Dubaí Desert Classic, þar sem náð var í hann úr VIP svæði flugvallarins undir mikilli öryggisgæslu. Tiger mun spila 18 holu hring undir strangri öryggisgæslu í Delhi golfklúbbnum í fyrramálið.  Fjölmiðlum verður ekki leyfður aðgangur. „Ég er hræddur um að þetta sé einka“ sagði einn af fyrirsvarsmönnum klúbbsins. „Jafnvel reglulegum félögum er ekki leyft að koma á völlinn, nema þeim hafi verið boðið.“ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2014 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Retief Goosen —- 3. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er suður-afríski kylfingurinn Retief Goosen. Goosen er fæddur 3. febrúar 1969 í Pietersburg (nú Polokwane) í Suður-Afríku og er því 45 ára í dag!!! Hann var á topp 10 á heimslistanum í alls 250 vikur á árunum 2001-2007. Helstu afrek hans eru tveir sigrar á Opna bandaríska (2001 og 2004) og eins var hann á toppi peningalista Evrópumótaraðarinnar 2001 og 2002. Pabbi Retief, Theo Goosen, kenndi honum golf á unga aldri, en annars hlaut Retief fremur strangt uppeldi, þar sem pabbi hans lagði mikla pressu á hann. Á afmælisdegi þessa uppáhaldskylfings margra er ekki ætlunin að gera grein fyrir öllum afrekum Retief á golfsviðinu, heldur einungis að rifja upp sögu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2014 | 08:00

Hvað var í pokum sigurvegaranna um helgina?

Hér fer það sem var í pokum sigurvegaranna sunnudaginn 2. febrúar 2014: PGA: Kevin Stadler sigurvegari Waste Management Phoenix Open Það má segja að það sé svolítið „bland í poka“ hjá Kevin Stadler, sem sigraði á Waste Management Phoenix Open í gær. Eftirfarandi kylfur eru í sigurpoka hans: DRÆVER: TaylorMade Burner SuperFast 2.0 (9.5° með UST Mamiya VTS skafti) BRAUTARTRÉ: Callaway Big Bertha Steelhead III (17° með Matrix OZIK XCON8 skafti) BLENDINGAR: Ping i15 (17° með Graphite Design Tour AD X Hybrid skafti) JÁRN: Cleveland 588 Forged CB (4-9 með True Temper Dynamic Gold S400 sköftum) FLEYGJÁRN: Cleveland 588 Forged (48, 51, 54, 58° með True Temper Dynamic Gold S400 sköftum) PÚTTER: Ping Scottsdale TR Carefree Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2014 | 07:30

Stadlerfeðgarnir fyrstu feðgarnir til að keppa samtímis í Masters

Hinn 33 ára Kevin Stadler vann s.s. Golf 1 hefir greint frá 1. mót sitt á PGA Tour í gær þ.e. Phoenix Open. Stadler sigraði þegar Bubba Watson missti pútt á 18. holu sem hefði komið honum í bráðabana við Stadler. Um sigur sinn sagði Kevin Stadler: „Það var svolítið skrítið að sigra þetta golfmót. Ég bjóst algerlega við að hann næði að setja púttið niður. Ég myndi hafa kosið að sigra með að setja mitt niður.“ En það var einn sem var ánægður, það var „Rostungurinn“ Craig Stadler, pabbi Kevin, 13-faldur sigurvegari á PGA Tour.  Þeir feðgar eru nú 9. feðgatvenndin sem sigrar mót á PGA Tour og þeir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2014 | 07:00

Hver er kylfingurinn: Kevin Stadler?

Kevin Stadler sigraði í gær, 2. febrúar 2014,  í fyrsta sinn á ferli sínum mót á PGA mótaröðinni, þ.e. Waste Management Open í Phoenix, Arizona. Kevin Stadler er ekki þekktasti kylfingurinn á PGA mótaröðinni, enda ekki áður verið í sigursæti.  Hann hefir hins vegar sigrað 10 sinnum á atvinnumannsferli sínum í golfi en spurningin verður eftir sem áður: Hver er kylfingurinn? Kevins Stadler fæddist 5. febrúar 1980 í Reno, Nevada og á því 34 ára afmæli ekki á morgun heldur hinn.  Hann er sonur 13-falds sigurvegara á PGA mótaröðinni, Craig Stadler og Susan Barrett.Kevin fluttist með fjölskylu sinni til Denver, Colorado, og var í Kent Denver mentaskólanum, þar sem hann bar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2014 | 23:50

PGA: Stadler með fyrsta sigurinn á PGA!

Það var Kevin Stadler sem stóð uppi sem sigurvegari á Waste Management Open, nú rétt í þessu …. en ekki Bubba Watson, sem var að reyna við fyrsta sigur sinn í 2 ár á PGA…. og var búinn að leiða mestallt mótið. Stadler lék á 16 undir pari, 268 höggum (65 68 67 68). Bubba Watson varð aðeins 1 höggi á eftir (64 66 68 71) ásamt kanadíska kylfingnum Graeme DeLaet (67 72 65 65), en þeir deildu 2. sætinu. Fjórða sætinu deildu japanski kylfingurinn Hideki Matsuyama og Hunter Mahan, enn öðru höggi á eftir á 14 undir pari, hvor. Phill Mickelson deildi 42. sætinu ásamt öðrum – lék á Lesa meira