Adam Scott
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2014 | 09:45

Adam Scott valinn besti íþróttamaður Ástralíu

Nr. 2 á heimslistanum, Adam Scott, var valinn besti íþróttamaður Ástralíu skv. lista yfir 100 bestu áströlsku  íþróttamennina, sem birtur var í ástralska dagblaðinu News Limited.

Listinn var settur saman af hinum virta fréttamanni Richard Hinds, en félagi Scott á PGA,  Jason Day varð í 13. sæti.

Kylfinurinn Marc Leishman varð síðan í 82. sætiþ

Hinds sagði um Scott að hann hefði, „náð að sýna gríðarmikla hæfileik sína með því að verða fyrsti Ástralinn til þess að sigra US Masters.“

„Adam er nú sá íþróttamaður sem náð hefir mesta árangri á alþjóðvettvangi og jafnframt sá sem er sýnilegastur.“

Þetta er mikið lof fyrir strákinn frá Queensland (Adam Scott), en svo mikið er víst að fáir golfáhangendur muni bera þessu í  mót!

Michael Clarke varð í 2. sæti á eftir Scott og Cameron Smith í 3. sæti. Kannast einhver við þá?