Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rún Pétursdóttir —- 5. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Rún Pétursdóttir, GR.  Rún er fædd. 5. febrúar 1995 og er því 19 ára í dag.  Rún spilaði á Unglingamótaröðunum undanfarin sumur   2011 og 2012. Rún  er  m.a. Íslandsmeistari í höggleik 2011, í  flokki 15-16 ára. Eins var Rún var í kvennasveit GR sem varð Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ 2011 og tók í kjölfarið þátt í European Ladies Club Trophy, sem fram fór á eyjunni Corfu á Grikklandi, haustið 2011. Sumarið 2012  sigraði Rún m.a. í flokki 17-18 ára í 2. móti Arion bankamótaraðarinnar á Þverárvelli. Komast má á facebook síðu Rúnar til þess að óska henni til hamingju með afmælið  hér að neðan: Rún Pétursdóttir  (Innilega til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2014 | 14:00

Golfútbúnaður: Sunfish kylfu-„cover”

Vintage stílinn er vinsæll í dag í markaðssetningu, á félagsmiðlum sem í tísku. Golfvöruiðnaðurinn er ekki ónæmur fyrir þessu og mörg fyrirtæki eru að aðlaga það sem er „inn“ að mjög hefðbundinni íþrótt. Sunfish Golf veit að klassískt útlit og raunveruleg gæði fara aldrei úr tísku og þeir bjóða upp á þessa þætti í kylfu-„coverunum“ sínum. Sunfish Golf fyrirtækið er staðsett í Nashville og var komið á laggirnar af tveimur vinum David Riggs og Alonzo Guess. Báðir höfðu þeir áhuga á að ferðast um heiminn og spila golf. Og þar sem David og Alonzo ferðuðust víða voru þeir alltaf hrifnir af því sem var handgert. Þeir báðir hafa samanlagt mikla reynslu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2014 | 10:00

GO: Púttmótaröð GO-kvenna hefst í Kauptúni kl. 18:00 á morgun fimmtudaginn 6. febrúar!

Púttmótaröð GO-kvenna hefst á morgun í Kauptúni kl. 18:00 og barst eftirfarandi fréttatilkynning frá kvennanefnd GO: „Kæru GO konur!!! Gleðilegt ár og takk fyrir frábært golfár sem var að líða ! Nú er komið að innanhúss púttmótaröðinni 2014.     Spilaðar verða 6 umferðir í Kauptúni, Garðabæ, innanhússæfingasvæði Odds, sem er gegnt IKEA.  Nýi púttvöllurinn er nú rétt í þessu að verða tilbúinn og er enn betri en í fyrra, eitthvað hefur hann þó minnkað en strákarnir í Kauptúni lofa skemmtilegum velli. Því er ekki eftir neinu að bíða….og við  byrjum strax í þessari viku og spilum fram að konukvöldi GO….en dagsetningin er ekki alveg komin á hreint…en við sendum upplýsingar um það Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2014 | 09:30

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og ETSU luku keppni í 9. sæti á TPC Sawgrass

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU  luku keppni í gær á Sea Best Invitational mótinu, sem fram fór á TPC Sawgrass, The Players Stadium á Ponte Vedra Beach, Flórída, dagana 3.-4. febrúar. Það voru 16 háskólalið sem þátt tóku og alls 84 einstaklingar. Guðmundur Ágúst lék hringina 3 á samtals 17 yfir pari, 233 höggum (78 77 78) og varð T-41, þ.e. deildi 41. sætinu ásamt 4 öðrum kylfingum; var sem sagt fyrir miðju mótsins. The Bucs, lið Guðmundar Ágústs varð T-9, þ.e. deildi 9. sætinu í liðakeppninni ásamt Jacksonville háskólanum. Guðmundur Ágúst var á 3. besta skorinu af The Bucs og taldi skor hans því í 9. sætis árangri East Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2014 | 09:00

GR: Ragnhildur, Patrekur, Ingvar Andri, Böðvar og Dagbjartur efst eftir 3. púttmót barna og unglingastarfs GR

Þriðja mótið á púttmótaröð barna- og unglingastarfs GR fór fram s.l. helgi. Alls fara fram 6 mót og gildi 3 bestu skor. Staðan er sú eftir 3 spilaðar umferðir í flokki 16 ára og eldri að Ragnhildur Kristinsdóttir og Patrekur Ragnarsson eru efst, bæði með samtals 89 pútt; Ragnhildur (32 28 29) og Patrekur (31 29 29).  Þátttakendur í flokki 16 ára og eldri eru 11. Sjá má heildarúrslit í flokki 16 ára og eldri eftir 3 spilaðar umferðir í púttmótinu með því að SMELLA HÉR:  Í flokki 13-16 ára er staðan sú að Ingvar Andri Magnússon er efstur af 6 þátttakendum á samtals 90 púttum (31 29 30). Sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2014 | 08:00

Myndir Caroline af Rory

Caroline Wozniacki og Rory McIlroy trúlofuðust s.s. kunnugt er orðið í ársbyrjun. Rory tók nú nýverið þátt í Omega Dubai Desert Classic og þar elti Caroline hann allsstaðar með myndavél og tók myndir af sínum heittelskaða. Þessar myndir „breytti“ hún síðan aðeins með þvi að photoshopa sjálfa sig inn á flestallar þeirra. Afraksturinn má sjá hér að neðan:


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2014 | 06:15

GKG: Birgir Leifur ráðinn markaðs- og viðburðarstjóri

Birgir Leifur Hafþórsson hefur verið ráðinn markaðs- og viðburðarstjóri GKG. Birgir Leifur hóf störf 1. febrúar og mun stýra markaðsmálum GKG ásamt því að byggja upp viðburðardeild. Viðburðardeildinni er ætlað að veita fyrirtækjum ráðgjöf og leiðbeiningar varðandi viðburði sem fyrirtæki geta unnið í samráði við golfklúbba eins og golfmót, golfkennslu fyrir starfsmenn og viðskiptavini, fjölskyldudaga, stefnumótunarviðburði með golfþemu og fleira. Þá mun Birgir Leifur vinna með íþróttasviði GKG að því að efla þjónustu við hinn almenna kylfing. Birgir Leifur er ráðinn í hlutastarf og mun áfram sinna atvinnumennskunni. Birgir Leifur er  menntaður PGA golf kennari.


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2014 | 22:00

Indverjar hrifnir af Tiger

Tiger Woods spilaði 18 holur í Delhi golfklúbbnum (DGC) í dag og kom í hús á 9 undir pari.  Hann heillaði þær þúsundir Indverja sem hópuðust á völlinn til þess að sjá Tiger. Tiger hitti flestar flatir á tilskyldum fjölda högga en DGC er þekktur fyrir þröngar brautir sínar. Tiger er í Delhi í boði forstjóra mótorhjóla framleiðandans Hero MotoCorp Pawan Munjal, og sýndi öllum af hverju hann er álitinn besti kylfingur allra tíma í morgun. Sagt er að Tiger hafi þegið 250 milljónir íslenskra króna til þess að spila 1 hring með Munjal og vinum hans. Alan Wilkins tilkynnti komu Tiger á fyrsta teig eftir að hann hafði hitað upp Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jósefína Benediktsdóttir – 4. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er  Jósefína Benediktsdóttir.  Jósefína fæddist 4. febrúar 1958 og á því 56 ára stórafmæli í dag. Jósefína er í Golfklúbbi Siglufjarðar (GKS) og varð m.a. ásamt eiginmanni sínum Þorsteini Jóhannssyni, klúbbmeistari GKS 2011. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið: Jósefína Benediktsdóttir (56 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag: Helmut Stolzenwald  (f. 4. febrúar 1901 – d. 5. febrúar 1958) Hann var einn af frumkvöðlum að stofnun GHR árið 1952 og forystumaður í klúbbnum fyrstu árin. Helmút fæddist í Þýskalandi en fluttist til Íslands 1924 og settist þá að í Vestmannaeyjum. Sonur hans Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2014 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og ETSU í 8. sæti eftir 1. dag Sea Best mótsins

Keppnistímabið hjá Guðmundi Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU er hafið, en The Bucs taka þátt í Sea Best Invitational mótinu, sem fram fer á TPC Sawgrass, The Players Stadium á Ponte Vedra Beach, Flórída, dagana 3.-4. febrúar og verður lokahringurinn því leikinn í kvöld. Það eru 16 háskólalið sem þátt taka og The Bucs eru í 8. sæti og 84 sem þátt taka í mótinu. Guðmundur Ágúst lék 1. hring á 6 yfir pari, 78 höggum. Ekki tókst að ljúka 2. hring sem spilaður var í gær vegna myrkurs.  Guðmundur Ágúst á eftir að klára 2 holur af 2. hring og er búinn að fá 1 fugl, 3 skolla og Lesa meira