Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 11. 2014 | 18:05
Raymond Floyd varafyrirliði Bandaríkjanna í Ryder Cup – Bein útsending frá blaðamannafundi með Tom Watson

Tom Watson tilkynnti rétt í þessu um hver yrði varafyrirliði sinn í Ryder bikarskeppninni, sem fram fer á Gleneagles í Skotlandi í september seinna á árinu. Varafyrirliði hans verður Raymond Floyd. Watson var áður búinn að útnefna Andy North sem hinn varafyrirliða sinn í júlí s.l. Floyd hefir mikla reynslu af Ryder bikars keppnum. Hann var sjálfur fyrirliði bandaríska Ryder Cup liðsins 1989 og tók sjálfur þátt í 8 Ryder bikars keppnum. Eins var Floyd varafyrirliði hjá Paul Anzinger í sigurliði Bandaríkjanna í Ryder bikarnum 2008. Þá á Floyd í beltinu 22 sigra á PGA Tour þ.á.m. 4 risamótssigra auk 14 sigra á Champions Tour. Watson, North og Floyd munu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 11. 2014 | 12:00
Frægir kylfingar: Shirley Temple látin

Shirley Temple er látin. Hún fæddist 23. apríl 1928 og var því 85 ára þegar hún lést í gær 10. febrúar 2014. Shirley var dóttir Gertrude Amelia Temple (fædd Krieger), húsmóður og George Francis Temple, bankastarfsmanns. Fjölskyldan var af ensku, þýsku og hollensku bergi brotin. Shirley átti 2 bræður: George Francis, Jr. og John Stanley. Mamma Shirley hvatti unga dóttur sína til þess að taka söng-dans og leiklistartíma og innritaði hana 3 ára í Meglin’s Dance School í Los Angeles. Um það leyti fór hún að setja slöngulokka í Shirley, sem var mjög í tísku á þeim tíma og stældi hún þar með vinsæla leikkonu þess tíma: Mary Pickford. Temple Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 11. 2014 | 10:55
GO: Klakahernaðurinn ber árangur

Veðurfar hér á suðvesturhorni landsins hefur verið í óvenjulegt undanfarnar vikur. Á sama tíma og nýliðinn janúar hefur verið í mildara lagi eru veruleg svellalög víða. Íþróttavellir, og þá sérstaklega knattspyrnuvellir, hafa orðið nokkuð harkalega fyrir barðinu á þessu óvenjulega veðurfari og eru þeir að stórum hluta lagðir víðfeðmum svellum. Golfvellirnir hafa ekki farið varhluta af þessu ástandi. Á Urriðavelli hefur verið unnið ötullega að því að fjarlægja svell að flötum vallarins og hefur náðst verulegur árangur í þeim efnum. Vallarstarfsmenn hafa beitt öllum mögulegum og ómögulegum ráðum í þessari baráttu. En betur má ef duga skal! Um nýliðna helgi var hóað í félaga í Golfklúbbnum Oddi sem hlýddu kallinu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 11. 2014 | 10:30
Evróputúrinn: Stephen Gallacher kylfingur janúarmánaðar

Skotinn Stephen Gallacher var valinn kylfingur mánaðarins á Evróputúrnum, eftir að honum tókst að verja titil sinn glæsilega á Omega Dubai Desert Classic. Stephen Gallacher varð einnig T-2 í mótinu, árið 2012. Í ár jafnaði hann 9-holu skormet þegar hann lék á 9 undir par,i 28 höggum, á 9 holu hrings-helmingnum, þar sem hann fékk 7 fugla og örn á leið sinni til sigurs. Hinn 39 ára Stephen Gallacher sagði: „Ég er virkilega ánægður með að vera útnefndur Kylfingur janúarmánaðar, sérstaklega þegar litið er á suma af frábærum áröngrum kylfinga, bæði í Suður-Afríku og í Eyðimerkursveiflunni.“ „Að vera valinn umfram kylfinga á borð við Louis, Pablo og Sergio, sem allt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 11. 2014 | 10:00
GKG: Staðan í 3. púttmóti barna og unglinga

Púttmót nr. 3 af 9 lauk s.l. laugardag, 8. febrúar 2014, í Kórnum, og var 41 þátttakandi. Krakkarnir sýndu góð tilþrif og er hægt að sjá besta árangur í hverjum flokki í heild með því að SMELLA HÉR GKG minnir á næsta mót sem fer fram laugardaginn 22. febrúar í Kórnum. Hægt er að pútta milli 11-13 og er þátttaka ókeypis. Helstu úrslit í 3. púttmótinu: 12 ára og yngri stelpur: 1. sæti Eva María Gestsdóttir 31 30 31 12 ára og yngri strákar: 1. sæti Sigurður Arnar Garðarsson 25 26 13-16 ára telpur: 1. sæti Anna Júlía Ólafsdóttir 32 13-16 ára drengir: 1. sæti Bragi Aðalsteinsson 28 26 29 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 11. 2014 | 08:00
GK: Lovísa Hermanns efst á 4. púttmóti Keiliskvenna

Það voru 31 sem þátt tóku í 4. púttmóti Keiliskvenna, miðvikudaginn 5. febrúar s.l. Brautin hefur líklega verið í erfiðari kantinum þar sem meðalskor var 35,5. Þær dömur sem sýndu snilldarleik voru eftirfarandi: 1. sæti 31 pútt Lovísa Hermannsdóttir 2-3. sæti 32 pútt Valgerður Bjarnadóttir og Dagbjört Bjarnadóttir 4. sæti 33 pútt Guðríður Hjördís Baldursdóttir 5-8 sæti 34 pútt Anna Snædís Sigmarsdóttir, Ellý Erlingsdóttir, Guðrún Einarsdóttir og Rannveig Hjaltadóttir Þannig að staðan í hinni æsispennandi púttmótaröð er eftirfarandi: 1. sæti 122 högg: Þórdís Geirsdóttir 2. sæti 126 högg: Lovísa Hermannsdóttir 3. sæti 129 högg: Ólöf Baldursdóttir 4. sæti 131 högg: Anna Snædís 5-6 sæti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 11. 2014 | 07:00
Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín í 13. sæti eftir fyrri dag Oak Hills Inv.

Haraldur Franklín Magnús, GR og Louisiana Lafayette taka þátt í Oak Hills Invitational. Mótið er tveggja daga (10.-11. febrúar 2014) og fer fram í Oak Hills CC, í San Antonio, Texas. Þátttakendur eru 84 frá 15 háskólum. Eftir fyrri dag mótsins er Haraldur Franklín í 13. sæti – lék fyrstu tvo hringina á samtals 5 yfir pari, 147 höggum (72 75). Á fyrsta hringnum fékk Haraldur 1 fugl og 2 skolla, en á seinni hringnum 6 skolla og 2 fugla. Louisiana er í 4. sætinu í liðakeppninni og Haraldur Franklín á 2. besta skori liðsins. Til þess að sjá stöðuna eftir fyrri dag Oak Hills Invitational SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2014 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Herdís Sigurjónsdóttir – 10. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Herdís Sigurjónsdóttir. Herdís er fædd 10. febrúar 1949 og er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Herdís hefir verið í kvennanefnd klúbbsins og er stendur sig yfirleitt vel í öllum opnum mótum sem hún tekur þátt í. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan Herdís Sigurjónsdóttir (65 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Greg Norman, 10. febrúar 1955 (59 ára); Mike Whan, framkvæmdastjóri LPGA, 10. febrúar 1965 (49 ára); Alexis Thompson, 10. febrúar 1995 (19 ára) …. og ….. Flottustu Fötin (25 ára) Guðmundur Ingvi Einarsson (33 ára) Einar Lyng Hjaltason (43 ára) Katrín Danivalsdóttir (56 ára) Setrið Í Setbergsskóla (15 ára) Íris Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2014 | 12:00
TaylorMade segir upp 16 starfsmönnum Adams Golf

TaylorMade-Adidas Golf sagði upp 16 starfsmönnum Adams Golf dótturfyrirtæki síns, 6. febrúar s.l. Skv. Mark King, aðalframkvæmdastjóra TaylorMade’s voru uppsagnirnar gerðar á starfsfólki Adams sem vinnur við Champions Tour og sagði það bara endurspegla erfitt viðskiptaumhverfi. King sagði ástæðuna m.a. vera skort starfsmögnun þ.e. samhafni við starfsfólk TaylorMade sem nú koma til með að þjónusta atvinnumennina á Champions Tour sem samningsbundnir eru Adams. „Þegar við keyptum fyrirtækið vildum við bara leyfa því að vera óbreyttu eins lengi og við gætum,“ sagði King m.a. á AT&T Pebble Beach National Pro-Am. „Og nú leitum við bara starfsmögnunar, þ.e. samvirkni þannig að heildaráhrif verði meiri en samanlögð áhrif einstakra þátta fyrirtækisins.“ Í mars Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2014 | 10:00
Hver er kylfingurinn: Cheyenne Woods?

Cheyenne Nicole Woods fæddist í Phoenix, Arizona, 25. júlí 1990 og er dóttir Earl Dennison Woods Jr., sem er hálfbróðir Tiger Woods. Afi hennar, Earl Woods, (pabbi Tiger) var fyrsti þjálfarinn hennar. Cheyenne spilaði golf með golfliði Xavier College Preparatory og vann tvö ár í röð Arizona 5A State Championships, þ.e. árin 2006 og 2007. Cheyenne var við nám og spilaði með golfliði Wake Forest University (útskrifaðist 2012) og var liðsfélagi hennar m.a. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, en þær báðar léku undir merkjum Demon Deacons. Cheyenne átti glæstan áhugamannsferil þar sem hún vann meira en 30 mót. Árið 2009 hlaut Cheyenne undanþágu styrktaraðila til þess að spila í LPGA móti, þ.e. Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

