Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 09:00

GL: Einar Lyng ráðinn íþróttastjóri

Einar Lyng Hjaltason hefir verið ráðinn íþróttastjóri hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi og mun hann hafa yfirumsjón með þjálfun barna- og unglinga hjá GL og vera golfkennari GL. Einar Lyng starfaði síðast sem íþróttastjóri og golfkennari hjá Golfklúbbnum Kili, Mosfellsbæ. Hann tekur við starfinu af Karli Ómari Karlssyni. Í fréttatilkynningu frá Leyni kemur eftirfarandi fram:   Einar Lyng er PGA menntaður kennari frá PGA golfkennaraskólanum á Íslandi en hann lauk golfkennaranámi árið 2009.  Einar hefur samhliða golfkennslu verið fararstjóri á Spáni allt frá árinu 1999. Æfingar barna- og unglinga munu hefjast innan skamms hjá Einari og verður send út tilkynning síðar í vikunni vegna þess. Stjórn GL bindur miklar vonir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 08:30

PGA: Bubba sigraði á Northern Trust – Hápunktar og högg 4. dags

Það var Masters risamótsmeistarinn (2012)  Bubba Watson sem stóð uppi sem sigurvegari á Northern Trust Open, sem fram fór á Riviera í Pacific Palisades í Kaliforníu. Bubba lék á samtals 15 undir pari, 269 höggum (70 71 64 64). Í 2. sæti var Dustin Johnson 2 höggum á eftir Watson á samtals 13 undir pari, 271 höggi (66 70 69 66). Jason Alred og Brian Harman (báðir á 12 undir pari, hvor) deildu 3. sæti og enn einn Masters sigurvegarinn (2011)  Charl Schwartzel var einn í 5. sæti á 11 undir pari. Til þess að sjá lokastöðuna á Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta loka/4. dags Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2014 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Marlene Hagge —– 16. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Marlene Hagge. Marlene er fædd 16. febrúar 1934 og á því 80 ára stórafmæli í dag. Marlene er sú yngsta af 13 stofnendum LPGA árið 1950. Eldri systir hennar Alice Bauer var líka ein af þessum 13 stofnendum LPGA. Hagge vann alls 26 sinnum á LPGA þ.á.m. í einu risamóti LPGA Championship árið 1956. Hagge er frægðarhallarkylfingur. Marlene giftist Bob Hagge, fyrrum eiginmanni Alice, systur sinnar, árið 1955. Þau skildu árið 1964. Hagge giftist síðan að nýju fyrrum PGA Tour leikmanninum Ernie Vossler árið 1995 og þau voru saman þar til Ernie dó fyrir ári síðan upp á dag, þ.e. 16. febrúar 2013. Þau bjuggu í La Quinta, Kaliforníu, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2014 | 15:30

Champions Tour: Triplett og Langer leiða e. 2. dag ACE Group Classic mótsins

Það eru þeir Bernard Langer og Kirk Triplett sem leiða eftir 2. dag Champions Tour, öldungamótaröð PGA. Báðir eru þeir búnir að spila á samtals 10 undir pari, 134 höggum; Langer (64 70) og Triplett (67 67). Þriðja sætinu deila Bandaríkjamennirnir Olin Brown og Duffy Waldorf, báðir aðeins 1 höggi á eftir forystumönnunum. Í 5. sætinu eru svo Bob Tway og Colin Montgomerie á samtals 7 undir pari, hvor. Champions Tour leikmaðurinn Hal Sutton, 55 ára, sem dró sig úr ACE mótinu eftir 1. hring fékk vægt hjartaáfall. Hann sagðist hafa farið í aðgerð og að sér liði mun betur á eftir. Það er vonandi að Sutton snúi sem fyrst Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2014 | 15:00

Evróputúrinn: Thomas Aiken sigraði á Africa Open

Það var heimamaðurinn Thomas Aiken sem sigraði á Africa Open, sem var mót vikunnar á Evrópumótaröðinni og Sólskinstúrnum að þessu sinni. Samtals spilaði Aiken á 20 undir pari, 264 höggum (66 65 66 67) líkt og landi hans Oliver Fisher  (66 63 66 69) og því varð að koma til bráðabana milli þeirra, þar sem Aiken hafði betur. Fyrir sigurinn fékk Aiken € 158.500 (u.þ.b. 25 milljónir íslenskra króna), sem þykir ekki hátt verðlaunafé á karlamótaröð, sem skýrir dræma þátttöku „þekktari nafna“ í mótinu. Þriðja sætinu deildu Bandaríkjamaðurinn John Hahn og Englendingurinn David Horsey, báðir aðeins 1 höggi á eftir sigurvegaranum. Fimmta sætinu deildu síðan 4 kylfingar, tveimur höggum á eftir sigurvegaranum: Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2014 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Ingunn í 36. sæti e. 2. dag Seminole Match Up

Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og golflið Furman háskóla taka þátt í Seminole Match Up, sem fram fer á Southwood golfvellinum í Tallahassee, Flórída. Mótið stendur dagana 14.-16. febrúar og þátttakendur eru 60 frá 11 háskólum. Ingunn tekur bara þátt í einstaklingskeppninni.   Hún er búin að spila fyrstu tvö hringina á samtals 11 yfir pari, 155 höggum  (78 77). Ef Ingunn tæki þátt í liðakeppninni væri hún á 4. besta skori liðs Furman, en skor hennar er mun betra en þeirra sem keppa f.h. Furman og eru í 4. og 5. sæti og væri lið Furman því ofar á skortöflunni hefði Ingunn keppt fyrir skólann. Lokahringurinn fer fram í kvöld. Til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2014 | 09:55

Tiger áhyggjulaus þó árið byrji illa

Árið hefir ekkert byrjað neitt sérlega glæsilega hjá Tiger; hann komst ekki í gegnum 2. niðurskurðinn á Torrey Pines eftir að hann var á 79 höggum á laugardeginum, en á Torrey Pines hefir hann sigrað 8 sinnum á ferlinum.  Og síðan varð hann bara í 41. sæti í Dubai, þar sem hann hefir sigrað tvisvar og aldrei verið neðar en í 20. sæti.   Tiger tjáði sig nú nýlega um þessa arfaslöku byrjun á árinu: „Ég tók mér mikið frí í vetur til þess að undirbúa tímabilið sem verður langt. Það tók mig 3 hringi í San Diego og 3 hringi í Dubai þar til ég fór í gang.“ „Ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2014 | 09:30

PGA: Frábær fugl Furyk og örn Tringale á 3. hring Northern Trust – Myndskeið

Jim Furyk notaði landslagið til þess að setja niður fugl með chippi af 40 yarda (37,5 metra færi) á Northern Trust Open í gær. Þetta gerðist á 3. hring á par-3 6. holunni á Riviera. Til þess að sjá fuglinn frábæra hjá Furyk SMELLIÐ HÉR:  Höggið góða var þó aðeins annað af tveimur flottustu höggum 3. hrings – örn Cameron Tringale á 9. holu er líka ótrúlega flottur SMELLIÐ HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2014 | 09:00

LPGA: Karrie Webb sigraði á Women´s Australia Open

Það var heimakonan, ástralska golfdrottningin Karrie Webb sem sigraði á ISPS Handa Women´s Australia Open. Hún lék á samtals 12 undir pari, 276 höggum (71 69 68 68). Karrie er fædd í Ayr í Queensland, Ástralíu, en býr í dag á Boynton Beach í Flórída.  Hún er fædd 21. desember 1974 og var því 39 ára 1 mánaða og 25 daga gömul þegar hún sigraði í mótinu, gegn sér meira en helmingi yngri keppendum á stundum. Karrie gerðist atvinnumaður í golfi 1994 og er því búin að vera að í 20 ár. Þetta er 40. sigur henna á LPGA og fyrsti sigur hennar frá því í ShopRite mótinu 2013.  Fyrir sigurinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2014 | 08:00

PGA: McGirt í forystu á Riviera fyrir lokahringinn – Hápunktar 3. dags

Það er bandaríski kylfingurinn William McGirt, sem leiðir eftir 3. dag á Riviera í Kaliforníu, þar sem Northern Trust mótið fer fram. Hann er búinn að spila á samtals 12 undir pari, 201 höggi  (69 67 65). Á hæla hans koma landar hans George McNeil  og  Charlie Beljan, tveimur höggum á eftir, hvor. Í 4. sæti eru Jason Alred og Brian Harman, á samtals 9 undir pari, hvor eða 3 höggum á eftir McGirt. Allt eru þetta fremur óþekkt nöfn í 5 efstu sætunum. Það er ekki fyrr en í 6.-12..sæti sem sjást þekktari nöfn á við Jordan Spieth, Dustin Johnson, Bubba Watson, Cameron Tringale, Charl Schwartzel,  Jimmy Walker, og forystumanninn í hálfleik Sang-Moon Lesa meira