Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2014 | 08:30

Bandaríska háskólagolfið: Ingunn á 6 yfir pari e.1. dag Seminole Match Up

Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og golflið Furman háskóla taka þátt í Seminole Match Up, sem fram fer á Southwood golfvellinum í Tallahassee, Flórída.

Mótið stendur dagana 14.-16. febrúar og þátttakendur eru 60 frá 11 háskólum.

Ingunn tekur bara þátt í einstaklingskeppninni.   Hún lék 1. hring á 6 yfir pari, 78 höggum og deilir sem stendur 40. sæti.

Til þess að fylgjast með gengi Ingunnar á Seminole Match Up SMELLIÐ HÉR: