Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 16:45

Evróputúrinn: James Morrison sigurvegari Opna spænska!

Það var Englendingurinn James Morrison, sem stóð uppi sem sigurvegari á Opna spænska. Morrison lék á samtals 10 undir pari, 278 höggum (70 71 68 69). Í 2. sæti varð heimamaðurinn Miguel Ángel Jiménez, sem m.a. vann sér inn 288 Mahou bjóra í mótinu fyrir að fara holu í höggi! Jiménez lék á samtals 6 undir pari 282 höggum og var því 4 höggum á eftir Morrison. Til þess að sjá lokastöðuna á Opna spænska SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta lokadagsins á Opna spænska SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 16:30

Fyrsti örn ársins hjá Berglindi!

Hún Berglind Þórhallsdóttir, GR, brá sér í golf á nýopnaðri Korpunni, en Korpan opnaði í gær með pompi og pragt og glæsilegu innanfélagsmóti sem um 170 manns tóku þátt í. Berglind fékk örn á 4. holu Korpunnar. Um það skrifaði hún á facebook síðu sinni: „Fyrsti örninn í golfi kominn í hús 🙂 Gerðist á fjórðu holunni á Korpu í morgun, sá boltann ekki rúlla í holuna þar sem að ég hætti að horfa þegar ég sá að hann var komin inn á flöt en okkar frábæru spilafélagar sáu það 🙂 Trúði þessu samt ekki fyrr en ég sá boltann í holunni!„ Golf 1 óskar Berglindi til hamingju með glæsiörninn!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólöf Ásta Farestveit – 17. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Ólöf Ásta Farestveit. Ólöf Ásta er fædd 17. maí 1969 og er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hún hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum með góðum árangri m.a. á Opna Lancôme mótinu á Hellu undanfarin ár og má sjá myndir af henni úr því móti, hér að neðan: Ólöf Ásta er gift Þráni Bj.Farestveit. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska Ólöfu Ástu til hamingju með daginn: Ólöf Ásta Farestveit (46 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Tim Sluiter 17. maí 1979 (36 ára); Hunter Mahan 17. maí 1982  (33 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 14:00

NK: Guðmundur Örn sigraði í ECCO forkeppninni

Fyrsta mót sumarsins, ECCO forkeppnin fór fram á Nesvellinum í gær, 16. maí 2015.  ECCO mótið er innanfélags-mót og er eins og venjulega sjálfstætt mót, en um leið forkeppni fyrir bæði bikarkeppni klúbbsins og Klúbb-meistarann í holukeppni. Í bikarkeppninni komast áfram 32 efstu í höggleik með forgjöf og fyrir klúbbmeistarann í holukeppni komast 16 efstu áfram í höggleik án forgjafar úr mótinu í gær. Veðurguðirnir léku við hvern sinn fingur framan af morgni og buðu uppá hægviðri og sól. Þegar líða tók á daginn dró þó fyrir um leið og það bætti töluvert í vindinn. Kylfingur mótsins var Guðmundur Örn Árnason, sem gerði sér lítið fyrir og sigraði í mótinu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 12:00

GKG: 100 manns á hreinsunardegi – Myndir

Það voru um 100 manns mættir á hreinsunardegi Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG) í gær. Að sögn var sönn GKG stemning og á eftir bauð Siggi Vert öllum upp á eðal lambarétt de la classe! Búið er að reisa bráðabrigða klúbbhús s.s. sjá má á mynd Golf 1 hér að ofan. Óhætt að segja að allir hafi skemmt sér, þótt erfiðað hafi verið við að koma Leirdalsvelli í sem best horf! Sjá má myndir frá hreinsunardeginum með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 11:00

GK: Keiliskonur í Englandi

Það er ekki óalgengt að Íslendingar fari í hópum til annarra landa til að spila golf. Oftar en ekki eru þetta karlvinahópar, sem fara saman í árlega ferð til Spánar, Flórída eða Skotlands, eða staða sem þekktir eru fyrir ríka golfmenningu. Það er ekki eins algengt að konur taki sig saman og ferðist erlendis til þess að spila golf. Þar sem karlarnir sameina oft golf og fótbolta geta konurnar t.a.m. sameinað golf og verslunar- og/eða menningarferð.  Möguleikarnir óteljandi! Það er búið að vera fjör í ferð Keiliskvenna til Englands, en þessar hressu konur á meðfylgjandi mynd léku  Shendish Manor Hotel & Golf Course í gær, í Apsley í Hertfordskíri. Ef Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 10:05

GO: Helga, Jóhanna Dröfn, Einar og Rögnvaldur sigruðu á Opnunarmóti Odds

Urriðavöllur opnaði með glæsilegu opnunarmóti sem fram fór 16. maí 2015. Um 170 kylfingar tóku þátt í mótinu og voru margir kylfingar að leika fínt golf. Í höggleik karla var það Rögnvaldur Magnússon sem lék best eða á 72 höggum (+1) og varð tveimur höggum betri en næstu kylfingar. Í kvennaflokki var það Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir sem lék best eða á 88 höggum. Golf 1 var á staðnum og má sjá myndaseríu Golf 1 með því að SMELLA HÉR:  Úrslit í mótinu urðu eftirfarandi: Kvennaflokkur: 1. sæti Helga Hermannsdóttir 37 punktar 19 á seinni 2. sæti Rósa Pálína Sigtryggsdóttir 37 punktar 16 á seinni 3. sæti Jóhann Dröfn Kristinsdóttir 36 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 08:00

LPGA: Delacour efst á Kingsmill

Franski kylfingurinn Perrine Delacour er efst á Kingsmill Championship eftir 3. keppnisdag. Hún er búin að spila á samtals 11 undir pari, 202 höggum (67 68 67). Í 2. sæti er forystukonan e. 2. dag, nýliðinn snjalli Alison Lee, sem er aðeins 1 höggi á eftir á samtals 10 undir pari. Í 3. sæti eru síðan 3 kylfingar: Mijee Lee, So Yeon Ryu og Paula Creamer; allar á samtals  9 undir pari, hver. Til þess að sjá stöðuna á Kingsmill e. 3. dag SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 07:00

GÞH: Úrslit úr Olís Open

Laugardaginn 16. maí fór fram texas scramble mót að Hellishólum, nefnt Olís Open. Eftirfarandi eru úrsltin úr því: 1. sæti Litlu byssurnar 66 högg 2*40 þús. 2. sæti Birde Bræður 66 högg 2* 25 þús. 3. sæti Chelsea 67 högg 2*15 þús. Nándarverðlaun:  Næstur holu á 3 braut Svanur og Ingvar 2*borvélar + pólu bolir. Næstur holu á 17 braut Sveinn Andri 2 * goskassi. Næstu holu á 14 braut Björn Bjarnason 2 * rauðvín.


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 00:30

PGA: Rory á 61 og leiðir

Rory McIlroy sló vallarmetið á Quail Hollow á 3. hring Wells Fargo mótsins í dag.  Rory átti fyrra metið 62 högg, sem jafnað var af Brendon De Jonge í fyrra. Rory þurfti aðeins 2 fugla á síðustu 2 holurnar til þess að brjóta 60, þ.e. spila á töfratölunni 59, en því var ekki ætlað að verða – hann lék síðustu tvær holurnar á pari. Rory lék á 11 undir pari, 61 höggi og hefir tekið 4 högga forystu á Wells Fargo fyrir lokahringinn, sem leikinn verður á morgun. Samtals er Rory búinn að spila á 18 undir pari, 198 höggum (70 67 61). „Þetta er einfaldlega völlur sem er að Lesa meira