Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2015 | 12:00

Reed dregur sig úr mótum í Evrópu

Patrick Reed, sem er með keppnisrétt á Evróputúrnum dró sig úr flaggskipsmóti mótaraðarinnar PGA Championship á Wentworth. Jafnframt hefir hann gefið út að hann ætli ekki að vera með á Opna írska. Í staðinn ætlar hann að keppa á Crowne Plaza mótinu á PGA mótaröðinni í þessari viku. „Ég hlakka virkilega til að spila á Evrópumótaröðinni á þessu ári, sem gerir mig enn vonsviknari að draga mig úr Wentworth og Opna írska,“ sagði hinn 24 ára Reed. „Ég get ekki alltaf ferðast til Evrópu.  Einlægar afsakanir til skipuleggjenda mótsins og áhangendanna. Þakka ykkur fyrir stuðninginn.“


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2015 | 10:00

GVG: Stjórnarfundur 17/5 2015

Stjórnarfundur fór fram hjá Golfklúbbnum Vestarr á Grundarfirði sunnudaginn 17. maí 2015. Skýrsla stjórnar er eftirfarandi: Stjórnarfundur Golfklúbbsins Vestarr þann 17.05.2015 Haldinn í húsnæði HSH í Samkomuhúsinu. Mættir: Garðar, Ágúst, Ásgeir, Guðrún Björg, Kristín og Systa sem ritar fundargerð í fjarveru Unnar Birnu. 1. Fundur settur. Guðrún formaður kvennanefndar boðin velkomin 2. Fundargerð síðasta fundar. Var ekki lesin þar sem gleymdist að prenta hana út. 3. Verðlaun. Garðar sagði frá til boðum Golfskálans varðandi verðlaun. 4. Samráðsfundur golfklúbba þann 5.maí. Mostri, Vestarr og Staðarsveit hittust. Mótaröð verður á sunnudögum og mótsgjald hækkað í 2000.- Góð umræða um samstarf og samvinnu milli klúbbanna. 5. Vinnudagur 23.maí. Vinnudagur verður þann 23.maí kl.14.00. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 18. 2015 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þorkell Þór Gunnarsson – 18. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Þorkell Þór Gunnarsson. Þorkell Þór er fæddur 18. maí 1980 og er því 35 ára í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ágústu Dúu til hamingju með daginn hér fyrir neðan: Þorkell Þór Gunnarsson,  (35 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Roger Davis 18. maí 1951 (64 ára); Joe Naomichi Ozaki 18. maí 1956 (59 ára); Ágústa Dúa Jónsdóttir, NK, 18. maí 1956 (59 ár) Tom Jackson 18. maí 1960 (55 ára); Sigurrós Allansdóttir, 18. maí 1964  (51 árs) Jaime Gomez 18. maí 1967 (48 ára); Sideri Vanova, 18. maí 1989 (26 ára), tékknesk spilar á LET Access. Golf 1 óskar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 18. 2015 | 16:00

LPGA: Lee sigurvegari Kingsmill!

Það var nýliðinn Minjee Lee, sem stóð uppi sem sigurvegari í Kingsmill Championship, sem lauk í gær 17. maí 2015 í Williamsburg, Virginíu. Minjee er ein af þessum ofurnýliðum í nýliðahópnum á LPGA í ár og er þetta hennar fyrsti sigur á mótaröðinni. Minjee lék á samtals á 15 undir pari, 269 höggum (68 67 69 65) og vann sér inn $ 195.000 þ.e. rúmar 25 milljónir íslenskra króna. Hún átti 2 högg á So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu, sem hafnaði í 2. sæti og 3 högg á bandaríska nýliðann á LPGA (og nöfnu sína) Alison Lee, sem lék á samtals 12 undir pari. Til þess að sjá lokastöðuna á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 18. 2015 | 14:00

GK: Ólafur Arnar 12 ára með ás!

Nú þegar farið er að glitta í sumarið og kylfingar farnir á stjá, þá er alltaf gaman að segja frá skemmtilegum uppákomum Þann 4. maí síðastliðinn fór ungur kylfingur í Keili, Ólafur Arnar Jónsson holu í höggi á Sveinskotsvelli á 5. braut. Við verkið notaði Ólafur Arnar 8 járn. . Ólafur Arnar er einn af efnilegri kylfingum í klúbbnum og er einungis 12 ára gamall. Golf 1 óskar Ólafi til innilega til hamingju með draumahöggið!


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 18. 2015 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst keppir um stóra titilinn

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, tryggði sér sæti á lokamóti NCAA háskólamótaraðarinnar, með því að enda í sjötta sæti á San Diego Regional meistaramótinu sem lauk í gær. Guðmundur Ágúst er fyrsti kylfingurinn úr röðum ETSU háskólaliðsins sem kemst í úrslitakeppni NCAA frá árinu 2010 – en ETSU liðið komst ekki í úrslitakeppnina. Guðmundur Ágúst lék hringina þrjá á samtals þremur höggum undir pari á The Farms vellinum í San Diego, 213 höggum. Hann var með bestan árangur af þeim kylfingum sem voru í liðum sem náðu ekki að komast í úrslitakeppnina. Alls fékk Guðmundur Ágúst ellefu fugla á hringjunum þremur og þar af þrjá á fyrri 9 holunum á lokahringnum. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 18. 2015 | 10:00

GV: Tilkynning til skráðra í Guinot-mótið

Keppendur sem skráðir eru til leiks í Guinot Open kvennamótið sem haldið verður í Eyjum 20.júní nk. Kæru keppendur Fullt er orðið í mótið og langur biðlisti kominn, er hér með farið fram á það að þeir sem skráðir eru til leiks greiði staðfestingargjald kr. 3,000,- Sem fyrst og eigi síðar en 5.júní nk. Leggja má inn á reikning GV 0582-26-2550 Kt. 580169-7759 Frekari upplýsingar veitir Elsa Valgeirs sími 8932363 golf@eyjar.is


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 18. 2015 | 06:15

PGA: Rory sigraði á Wells Fargo

Nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy sigraði á Wells Fargo mótinu í Quail Hollow, Charlotte, N-Karólínu í gær. Alls spilaði Rory á samtals 21 undir pari, 267 höggum (70 67 61 69). Sigur hans var sannfærandi því hann átti 7 högg á næstu keppendur þá Webb Simpson og Patrick Rodgers, sem léku báðir á samtals 14 undir pari. Rory bætti heildarmetskorið í mótinu um 5 högg.  Þetta er 2. sigur hans á Wells Fargo og 11 sigur hans á PGA Tour. Sjá má lokastöðuna á Wells Fargo með því að SMELLA HÉR:  Sjá má hápunkta lokahrings Wells Fargo mótsins með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 17:05

GK: Vikar sigurvegari hreinsunarmóts Keilis!

Frábær mæting var á Hreinsunarmót Golfklúbbsins Keilis, sem haldið var í gær laugardaginn, 16. maí 2015; þátttakendur voru 80 en aðeins 32 skiluðu inn skorkortum. Golf 1 var á staðnum og má sjá eftirfarandi myndir úr mótinu SMELLIÐ HÉR: Úrslitin voru annars eftirfarandi: Höggleikur: 1. sæti:  Vikar Jónasson lék Hvaleyrina á glæsilegum 2 undir pari, 69 höggum!!! Punktakeppni: 1. sæti Vikar Jónasson, 40 punktar 2. sæti Karl Ólafur Karlsson, 38 punktar (20 punktar á seinni 9) 3. sæti Benedikt Árni Harðarson, 38 punktar (17 punktar á seinni 9) Sjá má úrslitin í heild á golf.is með því að SMELLA HÉR:  Segja má að veðrið hafi leikið við Keilismenn á þessum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2015 | 17:00

Hreinsunarmót Keilis – Opnun vallar 16. maí 2015 – Myndasería