Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Anna Sólveig, Bjartmar Már og Hilmar Ingi – 20. maí 2015

Afmæliskylfingar dagsins eru eru Anna Sólveig Snorradóttir, GK, Bjartmar Már Björnsson og Hilmar Ingi Jónsson.  Anna Sólveig er fædd 20. maí 1995 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Anna Sólveig er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hún byrjaði 9 ára að æfa golf, en var 8 ára þegar hún byrjaði fyrst að prófa. Þótt ung sé að árum á hún langan og farsælan feril í golfinu. Hún varð m.a. Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni stúlkna 2013.      Í fyrra 2014 spilaði Anna Sólveig á Eimskipsmótaröðinni og var  í sveit GK, sem varð  Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ. Í dag er Anna Sólveig  í afrekshóp GSÍ.  Anna Sólveig er m.a. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2015 | 13:00

Rory heiðraður af Evróputúrnum

Nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy  var valinn leikmaður ársins og Players leikmaður ársins á  European Tour Players verðlaunahátíðinni í gær. Rory fékk bæði verðlaunin við hátíðlega athöfn á Sofitel Heathrow eftir frábært ár 2014 þar sem hann sigraði á Opna breska og PGA Championship í Bandaríkjunum auk þess sem hann var lykilmaður í sigurliði Evrópu í Ryder bikarnum. Í s.l. 10 mótum á Evrópumótaröðinni hefir Rory sigrað í 5 mótum, orðið 3 sinnum í 2. sæti og 2 sinnum á topp-10. Í viðtali við Sky Sports sagði Rory: „S.l. 12 mánuðir hafa verið algerlega ótrúlegir. Ég hef unnið mikið og það hefir skilað sér.  Ég hef sigrað 7 sinnum á sl. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2015 | 08:00

LET: Reid efst fyrir 4. dag í Tyrklandi

Enski kylfingurinn Melissa Reid er í efsta sæti fyrir lokahringinn á Turkish Airlines Ladies Open, en mótinu lýkur í dag. Mótið stendur 17.-20. maí 2015 í Carya Club, í Belek, Tyrklandi. Reid er búin að spila á samtals 11 undir pari, 208 höggum (65 69 74), en nokkrum áhyggjum hefir valdið að hún leikur sífellt verr þ.e. byrjaði mótið vel á 65 höggum en síðan hafa hringirnir versnað um 4 og síðan 5 högg s.l. daga. Á hæla Reid er skoska stúlkan Pamela Pretswell aðeins 1 höggi á eftir á 10 undir pari og hin skoska Sally Watson er síðan í 3. sæti; 3 höggum á eftir Reid. Verður þetta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2015 | 07:30

Tony Jacklin: Rory þarf konu til þess halda áfram að sigra í risamótum

Tony Jacklin 70 ára er tvöfaldur risamótsmeistari (sigraði í Opna breska 1969 og Opna bandaríska 1970). Fyrir þá sem ekki þekkja Jacklin getið þið lesið kynningu Golf 1 á honum með því að  SMELLA HÉR:  Jacklin er mjög eftirsóttur í Bretlandi í dag til þess að tala við hátíðleg tækifæri í golfklúbbum, en hann er með mjög ákveðnar skoðanir á golfi og kylfingum, sem hann liggur ekkert á. Í miklu uppáhaldi hjá honum er bandaríski kylfingurinn Dustin Johnson, sem hann spáir góðu gengi í ár. Um nr. 1 á heimslistanum sagði Jacklin nú nýverið að hann þyrfti konu við hlið sér til þess að halda áfram að sigra í risamótum. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2015 | 22:00

Hættir Rory um 40 ára aldurinn?

Rory McIlroy var í viðtali hjá BBC og þá bar til tals langlífi hans í íþróttinni. Sjá má viðtal BBC við Rory með því að SMELLA HÉR: Rory hafði m.a. eftirfarandi að segja: „Ég býst ekki við að spila á öldungamótaröð (Evrópu) eða Champions Tour (öldungamótaröð PGA Tour). Ég hef alltaf talið [að ég myndi fara á eftirlaun] 40 ára. Það eru enn 14 ár eftir. Það er lengri ferill í íþróttum en flestir íþróttamenn eiga. Ég á þegar 8 ára feril …. 25 ár í þessum leik ættu væntanlega að duga til þess að ná því sem mig langar í.“


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2015 | 21:15

Ef DJ vinnur Opna bandaríska gefur TaylorMade drævera

Dustin Johnson (DJ) er nú þegar vinsæll. En hann á líklega eftir að verða enn vinsælli…. þ.e. ef hann sigrar á Opna bandaríska á þessu ári. Ef DJ sigrar á Chambers Bay í júní þá munu þeir sem kaupa sér dræver í PGA Tour Superstor milli 18. maí og 17. júní fá endurgreitt fyrir dræverinn sinn. Þannig að nýr  R15 ($430) eða AeroBurner ($300) gætu fengist fyrir frítt! Nú er bara að vona að hinn nýbakaði pabbi, DJ, vinni fyrsta risatitil sinn!!!5


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2015 | 21:00

GA: Opnun Jaðars á sunnudag

Næstkomandi laugardag, 23, maí verður vinnudagur á Jaðri. Hefst vinnudagurinn kl. 10:00 og vonast þeir hjá GA að sjálfsögðu til þess að sjá sem flesta GA félaga 🙂 Að vinnudegi loknum verður boðið upp á léttar veitingar og svo munu þeir sem tóku til hendinni skella sér í golf. Jaðar opnar svo formlega sunnudaginn 24. maí. Við munum því miður ekki geta opnað meira en holur 1 – 9 þar sem enn er nokkur bleyta í suður vellinum. Hann verður opnaður um leið og tækifæri gefst til í næstu viku. Einnig hefur verið tekið ákvörðun um það að bíða aðeins með að opna nýju brautirnar. Vorið hefur verið kalt og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2015 | 18:00

GÁS: Ásatúnsvöllur opnar á laugard.

Starfsdagur verður á laugardaginn 23 mai, kl 9.00. Vænst er að félagar mæti með hrífu eða skóflu og taki til hendinni. Opnunarmót verður síðan kl 14.00 og er það texas scramble 18 holur. Eftir mót verður grillað . VÖLLURINN VERÐUR OPNAÐUR KL.10.00 OG ERU ALLIR VELKOMNIR. Félögum golfklúbbsins er bent á að nota fríann hring sem er innifalinn í félagsgjaldinu.


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Áslaug Birna Bergsveinsdóttir – 19. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Áslaug Birna Bergsveinsdóttir. Áslaug Birna er fædd 19. maí 1995 og því 20 ára stór- afmæli í dag.  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju hér: Áslaug Birna Bergsveinsdóttir (20 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Vilborg Ingvaldsdottir, 19. maí 1951 (64 ára) Ingjaldur Gjalli Valdimarsson, 19. maí 1961 (54 ára) Michael Dean Standly 19. maí 1964 (51 árs); KJ Choi 19. maí 1970 (45 ára); Brynja Þórhallsdóttir, GK, 19. maí 1970 (45 ára); Kærleikskrásir Og Kruðerí Flúðum (21 árs)og Fatasíða Á Akureyri. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2015 | 14:00

Kaymer vill láta fresta PGA Championship

Tvöfaldur risamótssigurvegari Martin Kaymer hefir hvatt Evrópumótaröðina til þess að færa flaggskipsmót sitt þar til síðar í sumar. The European PGA Championship hefst á Wentworth n.k. fimmtudag og Þjóðverjinn (Kaymer) finnst að það sé of snemmt á keppnistímabilinu og að keppendur muni ekki sjá völlinn í sínu besta. Kaymer, sem er US PGA Champion árið 2010 og sigurvegari Opna bandaríska 2014 og nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy munu spila í mótinu en margar stórstjörnur hafa dregið sig úr mótinu. Þeir sem hafa dregið sig úr mótinu eru:  Sergio Garcia, Ian Poulter, Henrik Stenson og Paul Casey og nú á síðustu og verstu hefir enn eitt stóra nafnið dregið sig úr mótinu, þ.e. nr. Lesa meira