Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 20:00

Gulbis komst í gegnum úrtökumót f. US Open

Natalie Gulbis sýndi og sannaði að hún er meira en bara fallegt andlit. 2015 keppnistímabilið hefir ekkert verið neitt sérstakt hjá henni… og reyndar 2014 keppnistímabilið ekki heldur. Reyndar hefir Gulbis ekki verið meðal topp-10 í nokkru móti á LPGA síðan árið 2013 á Women’s British Open. Og eini sigur hinnar 32 ára Gulbis er enn Evian Masters árið 2007. En hvað sem öðru líður var hún a.m.k. á tímabili alltaf valin uppáhaldskvenkylfingur í viðtölum við karlkylfinga hér á Golf1 og er a.m.k. á Golf 1 mestnefndi uppáhaldskvenkylfingurinn; en svo er reyndar ekki bara hér á Golf 1 heldur víðar í golfpressunni. Hún er ein af þeim kvenkylfingum sem allan feril Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 19:30

Els eys Rory lofi

Ernie Els bloggaði lofromsu um nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy, fyrir að styrkja mjög svo vel heppnað Opna írska nú um helgina. Rory tók jafnvel þátt í mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurð, í 3. sinn á jafnmörgum árum. Engu að síður sagði Els að hann ætti að vera stoltur af þeirri peningafjárhæð sem safnaðist til góðgerðarmálefnis hans (krabbameinssjúk börn). Meðal þess sem Els sagði  á ernieels.com var eftirfarandi: „Rory McIlroy getur verið mjög stoltur af því sem honum tókst með því að styrkja Dubai Duty Free Irish Open hosted by the Rory Foundation.“ „Reyndar tek ég (Ernie Els) hatt minn ofan fyrir öllum þeim sem þátt tóku venga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Nannette Hill (37/45)

Nú hafa allar stúlkurnar verið kynntar sem urðu í 11.-45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014. Þær sem eru í 1.-20. sæti eru með fullan spilarétt en hinar sem urðu í 21.-45. sæti með takmarkaðan spilarétt. Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á  LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Nú er komið að því að kynna þær sem urðu T-10, þ.e. Kelly Shon og Nannette Hill. Í dag verður Hill kynnt. Nannette Hill lék á samtals 6 undir pari, 354 höggum (71 70 72 70 71). Nannette Hill fæddist 3. apríl 1987 og er dóttir William og Nannette Hill. Nannette er því 28 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Charles Sifford —— 2. júní 2015

Það er Charles Sifford sem er afmæliskylfingur dagsins. Charles Sifford fæddist í Charlotte, Norður-Karólínu 2. júní 1922 og lést 3. febrúar á þessu ári, 92 ára að aldri. Sjá með því að SMELLA HÉR:   Hann hefði orðið 93 ára í dag. Hann hóf feril sinn í golfi 13 ára þegar hann gegndi störfum kaddýs. Seinna keppti hann á golfmótum svartra þar sem svörtum var ekki heimiluð þátttaka á PGA. Hann reyndi fyrst að komast á PGA 1952 á Phoenix Open og notaði boð þáverandi heimsmeistara í boxi Joe Louis, en varð m.a. fyrir líflátshótunum vegna litarháttar síns og mátti þola allskyns kynþáttatengd meiðyrði þegar hann keppti í mótum upp frá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 14:00

Hver er kylfingurinn: Rickie Fowler? (3/5)

Nafnið sem er á allra vörum þessa dagana er Rickie Fowler. Hann sannaði það  helgina 9.-10. maí 2015 að hann er ekki bara sætur strákur, kynþokkafullur kylfingur, Boys banda meðlimur með bíladellu heldur frábær kylfingur. Félagar hans á PGA Tour voru stuttu fyrir sigur hans á The Players mótinu, sem oft er nefnt 5. risamótið, búnir að velja hann ásamt Ian Poulter „ofmetnustu kylfingana á PGA Tour.“ Fowler er svo sannarlega búinn að þvo þau hallmæli af sér og nú er m.a. talað um hann sem „verðandi golfgoðsögn“! En hver er kylfingurinn Rickie Fowler? Því verður reynt að svara í 5 greinum og birtist 3. greinin nú í dag og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 11:45

Tumi og Björn Óskar tóku þátt í Welsh Open Youth Championship

Tumi Hrafn Kúld, GA og Björn Óskar Guðjónsson, GM tóku þátt í  Welsh Open Youth Championship, sem fram fór í Maesdu golfklúbbnum í Wales, dagana 29. maí – 31. maí 2015. Hvorugur þeirra komst í gegnum niðurskurð, en til þess að gera svo varð að vera á samtals 5 yfir pari eða betra en báðir spiluðu þeir Tumi og Björn á samtals 12 yfir pari, hvor. Báðir spiluðu sem sagt á 12 yfir pari, 156 höggum; Björn (79 77) en Tumi (74 82). Sigurvegari í mótinu varð heimamaðurinn Thomas Williams á samtals 4 undir pari, 284 höggum (74 68 73 69). Til þess að sjá lokastöðuna á Welsh Open Youth Championship Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 11:30

Smáþjóðaleikar settir í gær – golf meðal keppnisgreina í fyrsta sinn!

Smáþjóðaleikarnir voru settir í gær í Laugardalshöll á glæsilegri opnunarhátíð. Þetta er í annað sinn sem leikarnir fara fram í Reykjavík en árið 1997 var opnunarhátíðin á Laugardalsvelli og þá snjóaði á gesti. Hátíðin í gær var því undir þaki Laugardalshallar og var Þóra Arnórsdóttir kynnir. Páll Óskar Hjálmtýsson sá um að skemmta áhorfendum og gestum en hátíðin var í beinni útsendingu á RÚV. Lárus Blöndal forseti ÍSÍ og Marc Theisen, fulltrúi evrópsku Ólympíunefndarinnar, héldu ávörp en keppnin hefst í dag. Keppt er í golfi í fyrsta sinn í sögunni á Smáþjóðaleikunum en þetta er í 16. sinn sem leikarnir eru haldnir. Keppnin fer fram á Korpúlfsstaðarvelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 11:00

Fowler ánægður á Írlandi

Þrátt fyrir erfiðar keppnisaðstæður þá sagðist Rickie Fowler hafa notið keppninnar á Dubai Duty Free Irish Open nú um helgina. Það voru einkum vindar og rigning sem settu strik í reikninginn hjá keppendum á Royal County Down og voru aðeins 5 keppendur á heildarskori undir pari í keppninni. Þrátt fyrir það mættu 80.000 manns til þess að fylgjast með heimamanninum nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy, sem styrkti mótið en náði sjálfur ekki að komast í gegnum niðurskurð. „Ég átti frábæran tíma … áhangendurnir voru æðislegir á einum uppáhaldsvalla mínum í heiminum,“ sagði Fowler í viðtali við irishtimes.com. „Það var virkilega svalt að vinur minn Rory skyldi biðja mig um að koma og styðja Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 10:00

Rolex-heimslistinn: Nordqvist í 7. sæti!

Anna Nordqvist sigraði nú um helgina á ShopRite LPGA Classic, en við það fór þessi sænski draumakylfingur úr 14. sæti Rolex-heimslistans upp um 7 sæti eða í 7. sætið. Sigurinn var fyrsti sigur Nordqvist á þessu keppnistímabili en sá 5. á ferli hennar. Nr. 1 á Rolex-heimslistanum Lydia Ko lék ekki um helgina og missti við það svolítið af forskoti sínu á toppi Rolex-listans en Inbee Park nagar í hælana á henni, aðeins munar 0,16 stigum á þeim tveimur. Á eftir Park koma þær (í réttri röð): Stacy Lewis (3. sæti), Hyo-Joo Kim (4. sæti), Shanshan Feng (5. sæti) og  So Yeon Ryu (6. sæti). Brittany Lincicome er síðan í 8. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Þrumuveður setti mótshald á lokamóti NCAA úr skorðum

Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR náði ekki að ljúka leik á þriðja hringnum á lokamóti NCAA NCAA háskóladeildarinnar í Bandaríkjunum í gær. Keppni var frestað vegna þrumuveðurs en Guðmundur hafði leikið 13 holur í gær á þriðja hringum. GR-ingurinn sem keppir fyrir hönd ast Tennessee State háskólans í einstaklingskeppninni var á +3 eftir 13 holur í gær og samtals á +9 í 74. sæti af alls 156 keppendum. Guðmundur hafði fengið þrjá skolla á hringnum í gær. Guðmundur lék á 78 höggum á fyrsta hringnum þar sem hann fór m.a. holu í höggi og á öðrum hringnum lék hann á pari vallar. Guðmundur er annar íslenski kylfingurinn sem nær að komast í Lesa meira