Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2015 | 07:00

Tiger tékkar á mótsstað Opna bandaríska í ár – Chambers Bay

Mike Davis hjá bandaríska golfsambandinu sagði nýlega að kylfingar þyrftu aukaæfingahringi á Chambers Bay til þess að vera nægilega undirbúnir til keppni, en Opna bandaríska fer fram á vellinum 18. júní n.k. Chambers Bay er í Washington ríki, nálægt Tacoma við Puget sund og er talinn besti golfvöllur ríkisins – Sjá má heimasíðu vallarins með því að SMELLA HÉR:  Einn af þeim sem virðist hafa tekið mark á Davis er Tiger Woods. Einkaflugvél hans sást á flugvellinum við völlinn og sagt var að Tiger væri að ganga völlinn og kynna sér aðstæður, jafnframt því að taka æfingahringi. Í síðustu viku sást til Phil Mickelson, sem var þar í sömu erindagjörðum. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2015 | 20:00

Williams aftur kaddý Scott!

Kylfusveinninn Steve Williams frá Nýja-Sjálandi er aftur genginn til liðs við Masters meistarann ástralska Adam Scott og mun verða á pokanum hjá honum í öllum 3 risamótunum. Adam tókst að beita Williams fortölum til þess að vera aftur á pokanum hjá honum. Williams verður á poka Scott á Opna bandaríska, Opna breska og PGA Championship í ágúst. Hinn 50 ára Williams mun líka bera pokann fyrir Scott á Bridgestone Invitational tournament, vikuna fyrir US PGA Championship. Scott sagði fyrrum kylfusveini sínum Mike Kerr upp enda hefir samstarfið ekki gengið að óskum. „Steve (Williams) var ákveðinn í að vera ekki í kaddýstörfum 2015 þannig að það þurfti að vera ansi sannfærandi en ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rafnkell Kr. Guttormsson – 1. júní 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Rafnkell Guttormsson. Rafnkell er fæddur 1. júní 1970 og er því 45 ára í dag.  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn Rafnkell Kr. Guttormsson (45 ára Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Dísa Í Blómabúðinni, 1. júní 1960  (55 ára)Marisa Isabel Baena, 1. júní 1977 (38 ára) kólombísk á LPGA; Hansína Þorkelsdóttir, GKG, 1. júní 1979 (36 ára) Dagmar Una Ólafsdóttir, 1. júní 1981 (34 ára) Tano Goya (Argentínumaður á Evróputúrnum) 1. júní 1988 (27 ára) og Carlota Ciganda, 1. júní 1990 (25 ára); Villimey Iceland, 1. júní 1990 (25 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2015 | 14:00

LET Access: Valdís Þóra lauk leik T-25

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni lék lokahringinn á Drøbak Ladies meistaramótinu á einu höggi yfir pari eða 71 höggi í gær í Noregi. Mótið er hluti ef LETAS mótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Valdís endaði í 25. – 30. sæti af alls 113 keppendum á +8 (73-74-71). Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á þessu móti. Valdís Þóra er í 15. sæti á peningalista LETAS mótaraðarinnar en þetta var fimmta mótið sem hún leikur á þessu tímabili. Ólafía Þórunn er í 20. sæti á þessum lista en hún hefur einnig tekið þátt á fimm mótum. Það er að miklu að keppa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2015 | 12:00

GH: Vel sóttur reglufundur

Félagar í Golfklúbbi Húsavíkur fjölmenntu á reglufund nú á dögunum. Á meðfylgjandi mynd má sjá Magnús Hreiðarsson fara yfir lausnir frá stígum. Mjög fróðlegur fundur og að sögn afar vel heppnaður!


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2015 | 10:00

GÖ: Aron Bjarni og Elísabet sigruðu á Opna Mapei

Opna Mapei Húsasmiðjan fór fram á Öndverðarnesvelli á laugardaginn 30. maí. Það var býsna hvasst meðan á mótinu stóð en keppendur létu það ekki hafa áhrif á sig og mættu til leiks með bros á vör. Úrslit urðu eftirfarandi: Besta skori án forgjafar náði Aron Bjarni Stefánsson GVS en hann lék á 40 punktum eða 69 höggum sem er einu höggi undir pari vallarins. Í þremur eftstu sætum með forgjöf urðu: 1. sæti Elísabet K. Jósefsdóttir GO 34 punktar 2. sæti Trausti Rúnar Hallsteinsson GK 31 punktar 3. sæti Jason Kristinn Ólafsson GÖ 30 punktar 4. sæti Stefán B. Gunnarsson GÖ varð í fjórða sæti með forgjöf á 29 punktum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2015 | 08:00

Fyrstu myndir af Rory og Ericu

Nú við verðlaunaafhendingu Opna írska, þar sem Rory var styrktaraðili, voru fyrstu meðfylgjandi myndir teknar af honum og kærustu hans Ericu Stoll saman, þar sem þau haldast í hendur. Rory tilkynnti í síðustu viku um samband sitt við Stoll, sem er 3 árum eldri en hann, en Stoll er 29 ára meðan Rory er nýorðinn 26 ára. Í síðustu viku sagði Rory að þau Stoll hefðu kynnst 2012, meðan hann var ennþá saman með Caroline Wozniacki og þau hefðu farið að deita fyrir um 6 til 7 mánuðum síðan þ.e. í nóvember/desember á s.l. ári, 2014. Rory sleit sem kunnugt er trúlofun sinni við Wozniacki í maí 2014 eftir að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2015 | 07:00

LPGA: Nordqvist sigurvegari Shoprite!

Sænski kylfingurinn Anna Nordqvist stóð uppi sem sigurvegari á Shoprite Classic mótinu í gær, 31. maí 2015. Hún lék á samtals 8 undir pari (67 69 69). Þetta er 5. sigurinn á ferli Nordqvist, sem er 27 ára. Í 2. sæti varð hollenski kylfingurinn Christel Boeljon aðeins 1 höggi á eftir Nordqvist. Þriðja sætinu deildu síðan nýliðinn Kelly Shon og Morgan Pressel, sem búin er að vera ótrúlega óheppin þetta keppnistímabil en stöðugt í forystu í mótum en nær aldrei almennilega að landa sigri. Til þess að sjá lokastöðuna á Shoprite Classic SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta lokahringsins á Shoprite Classic SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2015 | 02:00

PGA: Bowditch vann í Texas!

Ástralski kylfingurinn Steven Bowditch stóð uppi sem sigurvegari á AT&T Byron Nelson á Four Seasons Resort í Irving, Texas. Hann var í forystu allt mótið og var ekkert að gefa eftir. Bowditch lék á samtals 18 undir pari, 259 höggum og átti heil 4 högg á næstu menn þ.e. bandarísku kylfingana Jimmy Walker, Charley Hoffman og Scott Pickney sem deildu 2. sætinu. Til þess að sjá lokastöðuna á  AT&T Byron Nelson Championship SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta frá 4. degi Byron Nelson SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2015 | 01:00

Evróputúrinn: Kjeldsen sigraði!

Það var Daninn Sören Kjeldsen, sem bar sigur úr býtum á Opna írska. Kjeldsen lék Royal County Down á samtals 2 undir pari, 282 höggum líkt og þeir Eddie Peppernell og Bernd Wiesberger og því varð að koma til bráðabana milli þeirra. Kjeldsen sigraði í bráðabananum með fugli þegar á fyrstu holu meðan að hinir fengu báðir par. Þetta er fyrsti sigur Kjeldsen í 6 ár. Til þess að sjá lokastöðuna á Opna írska SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta Opna írska lokadaginn SMELLIÐ HÉR: