Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 07:00
Áhangandi Fowler fer út í á til að ná í bolta frá goðinu!

Krakkar hreint og beint elska bandaríska kylfinginn Rickie Fowler. Einn lítill aðdáandi hans stökk barasta út í á, í Muirfield Village til þess að ná sér í bolta frá goðinu. Í meðfylgjandi myndskeiði af atvikinu segir þulurinn að Rickie muni líklegast gjarna árita boltann. Það er mikið sem áhangendur leggja á sig til þess að fá hluta af einhverju sem Rickie hefir snert eða gefur eins og t.d. „high five“, áritun á bolta eins og e.t.v. er í vændum fyrir þennan aðdáanda eða eiginhandaráritanir og þar fram eftir götunum. Hér má sjá myndskeið af því þegar aðdáandi Rickie fer út í á á eftir bolta Rickie SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2015 | 23:30
Afmæliskylfingar dagsins: Sandra Haynie og Sandra Post – 4. júní 2015

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir og þær heita báðar Sandra: Sandra Haynie, f. 4. júní 1943 í Fort Worth, Texas og Sandra Post, f. 4. júní 1948. Sandra Haynie á því 72 ára afmæli í dag og Sandra Post er 67 ára í dag. Sandra Haynie er gerðist atvinnumaður í golfi, 18 ára, árið 1961 og strax sama ár komst hún á LPGA. Þar á hún að baki 43 sigra, þ.á.m. í 3 risamótum kvennagolfsins. Sandra Post er ekki síður frábær kylfingur en nafna hennar Haynie. Hún er fyrsti kvenkylfingurinn frá Kanada til þess að spila á LPGA. Ein af fyrstu greinunum, sem skrifuð var á Golf 1 var um Söndru Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2015 | 20:15
Gríðarlegir yfirburðir hjá stelpunum okkar á Smáþjóðaleikunum

Íslenska kvennalandsliðið í golfi heldur sínu striki á Smáþjóðaleikunum en annar keppnisdagur af alls fjórum fór fram í dag. Leikið er á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur / Sjórinn og Áin. Guðrún Brá Björgvinsdóttir er efst í kvennaflokknum á -4 samtals en hún lék á -1 í dag eða 71 höggi. Guðrún átti frábæran lokakafla þar sem hún fékk þrjá fugla í röð á síðustu þremur holunum. Guðrún er með sex högga forskot á Sophie Sandolo frá Mónakó sem er á +2 samtals en hún hefur leikið báða hringina á 73 höggum. Karen Guðnadóttir er í þriðja sæti á +6 (77-73) og Sunna Víðisdóttir er þar á eftir á +8 (74-78). Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2015 | 20:00
Birgir Leifur T-65 e. 1. dag

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf í dag leik á Swiss Challenge, en mótið fer fram í Lucerne, Sviss og er hluti af evrópsku Áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur lék á 1 yfir pari, 72 höggum ; fékk glæsiörn, 1 fugl, 2 skolla og því miður líka 1 skramba. Sem stendur deilir Birgir Leifur 65. sætinu og er því yfir niðurskurðarlínu en þátttakendur í mótinu eru 156. Efstur eftir 1. dag eru Englendingarnir Jack Senior og Gary Boyd, en báðir hafa spilað á 5 undir pari, 66 höggum. Það er vonandi að Birgi Leif gangi sem allra best á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Swiss Challenge SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2015 | 19:45
PGA: Tiger byrjar illa – 73 högg!

Tiger byrjar hræðilega illa á Memorial mótinu, sem er mót vikunnar á PGA Tour. Hann kom í hús á 1 yfir pari, 73 höggum; en á hringnum leit lengi vel út að hann myndi aftur spila á 80 höggum en t.a.m. var hann á 40 höggum fyrri 9. Tiger byrjaði á 10. teig og átti skrautlegar fyrri 9; þar fékk hann 2 fugla en líka 4 skolla og 1 skramba! Honum gekk síðar skár á seinni 9 þ.e. holum 1-9 en þær spilaði hann á 3 undir pari 33 höggum og því samtals 73 höggum! Sem stendur er hann T-85 og á eflaust eftir að fara enn neðar á skortöflunni; Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2015 | 18:34
LPGA: Cheyenne efst e. 1. dag Manulife ásamt Kerr og Kongkraphan

Tiger er kannski að dala en frænka hans og fyrrum liðsfélagi Ólafíu okkar Þórunnar Kristinsdóttur í bandaríska háskólagolfinu í liði Wake Forest, Cheyenne Woods, er að gera það gott. Cheyenne átti frábært skor í dag á 1. degi Manulife LPGA Classic mótsins. Hún lék á 9 undir pari, 63 höggum og er í efsta sæti eftir 1. dag mótsins! Á hringnum fékk Cheyenne 1 örn, 8 fugla og 1 skolla. Tveimur öðrum tókst að jafna við Cheyenne þeim Cristie Kerr frá Bandaríkjunum og thailensku stúlkunni PK Kongkraphan sem báðar voru líka á 63 höggum og deila þær 3 því efsta sætinu eftir 1. dag. Margir af bestu kylfingum heims taka þátt í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2015 | 18:00
Strákarnir okkar efstir og m/11 högga forskot í hálfleik Smáþjóðaleikanna

Íslenska karlalandsliðið er með ellefu högga forskot í liðakeppninni þegar keppni er hálfnuð í golfkeppninni á Smáþjóðaleikunum. Íslenska liðið raðar sér í þrjú efstu sætin í einstaklingskeppninni og skor þeirra er gott. Kristján Þór Einarsson er efstur á -5 samtals, Haraldur Franklín Magnús er þar næstur á -2 samtals og Andri Þór Björnsson deilir þriðja sætinu á pari vallar með Daniel Holland frá Möltu. Kristján Þór lék á 69 höggum í dag eða -2 en hann fékk alls sex fugla en tapaði fjórum höggum. Haraldur Franklín lék á einu höggi yfir pari vallar í dag eða 72 höggum en hann fékk þrjá fugla og fjóra skolla. Andri Þór lék á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2015 | 12:45
LPGA: Manulife mótið hafið

Mót vikunnar á LPGA er Manulife LPGA Classic sem fram fer í Cambridge í Ontario, Kanada. Margt af bestu kvenkylfingum heims tekur þátt í mótinu þ.á.m. nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Lydia Ko. Eins taka m.a. þátt: Catriona Matthew, Laura Davies, Brittany Lincicome, Azahara Munoz, Morgan Pressel, Charley Hull, Inbee Park, Yani Tseng, Shanshan Feng o.m.fl. Fyrsti hringur er þegar hafinn. Til þess að fylgjast með stöðunni á Manulife LPGA Classic SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2015 | 12:15
GF: Midnight Sun Open 20. júní n.k.

Hið gríðarlega vinsæla mót Golfklúbbsins að Flúðum, Midnight Sun Open fer nú fram 20. júní n.k. eða eftir rúmar 2 vikur. Ræst verður út á sama tíma, kl. 19.30 og leikið fram að miðnætti. NÝTT! Leikfyrirkomulag er betri bolti. Hægt er komast á síðu GSÍ til að skrá sig í mótið með því að SMELLA HÉR: Tveir leikmenn leika saman í betri bolta. Báðir leika sínum bolta á hverri holu eins og um hefðbundinn höggleik eða punktakeppni sé að ræða. Hins vegar er aðeins betra skorið á hverri holu skráð á skorkortið. Í þessu móti er verður leikinn höggleikur með forgjöf þar sem leikforgjöf kylfinga er lögð saman og deilt með Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 4. 2015 | 12:05
Birgir Leifur keppir í Sviss

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf leik í dag kl. 11.45 að íslenskum tíma á móti á Áskorendamótaröðinni í Sviss. Mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu og er þetta fyrsta mótið á þessu ári sem Íslandsmeistarinn úr GKG kemst inn á. Birgir leikur einnig á Áskorendamótaröðinni í næstu viku á móti í Belgíu. Fylgjast má með stöðunni í mótinu með því að SMELLA HÉR: Birgir hefur leikið á nokkrum mótum á Nordea Ecco mótaröðinni á þessu tímabili en hann er með takmarkaðann keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. „Einu væntingar mínar fyrir þetta mót eru að hugarfarið og ákvarðanatakan verði í lagi. Og að ég slái eins mörg góð golfhögg og ég mögulega Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

