Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2015 | 00:45

PGA: Spieth m/16 m arnarpútt – Myndskeið

Masterssigurvegarinn í ár, Jordan Spieth átti glæsilegt 16 metra arnarpútt á 2. hring Memorial mótsins, sem fram fer í Ohio, sem stendur. Arnarpúttið setti Spieth niður á par-5 5. braut Muirfield vallarins. Sjá má arnarpútt Spieth með því að SMELLA HÉR:  Sjá má stöðuna á 2. degi Memorial mótsins með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 23:00

LPGA: Pettersen og Uribe leiða á Manulife í hálfleik

Það eru norska frænka okkar, Suzann Pettersen og Mariajo Uribe frá Kólombíu sem leiða eftir 2. keppnisdag Manulife LPGA Classic. Báðar hafa þær spilað á 13 undir pari, 131 höggi; Suzann (66 65) og Mariajo (65 66). Í þriðja sæti er bandaríski kylfingurinn Cristie Kerr, sem leiddie eftir 1. dag en hún er aðeins 1 höggi á eftir forystukonunum. Fjórða sætinu deila síðan 6 kylfingar, m.a. fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum Yani Tseng og nýliði á LPGA Laetitia Baek, sem er fyrsti ísraelski kylfingurinn til þess að spila á LPGA. Hinar sem eru í 4. sæti eru: Victoria Elizabeth og Kim Kaufmann frá Bandaríkjunum og Hyo Joo Kim frá S-Kóreu og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 21:00

Íslandsbankamótaröðin 2015 (2): Íslandsmótið í holukeppni – Staðan e. 1. dag

Það er ljóst að hvaða kylfingar komust áfram á Íslandsmótinu í holukeppni barna – og unglinga sem fram fer á Strandavelli á Hellu. Keppt er í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum og komast 16 áfram úr hverjum flokki – og leika þeir í holukeppninni sem hefst á laugardag. Sjá má þá sem mætast í 16-manna úrslitum á morgun, laugardag með því að SMELLA HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 19:55

Fannar Ingi byrjar vel í Þýskalandi!

Fannar Ingi Steingrímsson úr Golfklúbbi Hveragerðis lék vel á sterku áhugamannamóti sem fram fer í Þýskalandi, þ.e. German International Boys & Girls Amateur Championship 2015. Fannar, sem verður 17 ára á þessu ári, lék fyrsta hringinn á -1 eða 71 högg. Mótið fer fram á St. Leon Rot vellinum er þetta í 12. sinn sem þetta áhugamannamót fyrir börn – og unglinga fer fram. Fannar Ingi er í 11.– 19. sæti af alls 89 keppendum. Þess má geta að mót á Evrópumótaröð karla hefur farið fram á þessum velli með reglulegu millibili. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag German International Boys & Girls Amateur Championship 2015 SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 19:49

Birgir Leifur T-29 e. 2. dag!!!

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tekur þátt í  Swiss Challenge, en mótið fer fram í Lucerne, Sviss og er hluti af evrópsku Áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur lék á glæsilegum 2 undir pari, 69 höggum í dag og flaug í gegnum niðurskurðinn. Samtals er hann búin að spila á 1 undir pari, 141 höggi (72 69), en niðurskurður var miðaður við 1 yfir pari. Efstur í mótinu sem stendur er Oliver Bekker frá Suður-Afríku, en hann hefir leikið á samtals 9 undir pari. Það er vonandi að Birgi Leif gangi sem allra best á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Swiss Challenge SMELLIÐ HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 19:30

Guðrún Brá með yfirburði í kvennaflokki í golfi á Smáþjóðaleikunum!

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, er með yfirburði í kvennaflokki í golfi á Smáþjóðaleikunum. Eftir 3. dag hefir Guðrún Brá 6 högga forystu á þann keppanda sem næstur kemur en það er LET kylfingurinn Sophie Sandolo, frá Monaco. Guðrún Brá er líka sú eina sem spilað hefir samtals undir pari; en hún búin að spila á samtals 6 undir pari, 210 höggum (69 71 70). Í 3. sæti er Karen Guðnadóttir á samtals 9 yfir pari og í 4. sæti er Sunna Víðisdóttir á samtals 12 yfir pari. Íslenska kvenlandsliðið er langefst í liðakeppninni. Til þess að sjá stöðuna í kvennaflokki í golfi á Smáþjóðaleikunum SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 19:00

Gísli á +4 e. 1. dag St. Andrews Trophy

Okkar maður Gísli Sveinbergsson GK er meðal keppanda á St.Andrews Links Trophy 2015. Hann átti rástíma klukkan 13:50 í dag og 9:30 á morgun. Þetta mót er eitt af flottari mótum á Bretlandseyjum og verður það haldið á hinu fræga golfsvæði St.Andrews. Verða fyrstu tveir hringir í mótinu spilaðir á Jubilee vellinum. Eftir 36 holur munu aðeins 40 keppendur komast áfram í gegnum niðurskurðinn. Ef Gísli kemst í gegnum niðurskurðinn þá mun hann spila 36 holur á hinum fræga Old Course þar sem Opna breska meistaramótið verður haldið í ár. Gísli lék á 4 yfir pari, 76 höggum í dag og er í 109. sæti af 144 þátttakendum og því fátt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 18:00

Evróputúrinn: Svíar á toppnum e. 2. dag Nordea Masters

Það eru tveir sænskir kylfingar sem leiða á heimavelli á móti vikunnar á Evrópumótaröðinni, Nordea Masters. Þetta eru þeir Jens Dantorp og Marcus Kinhult. Báðir hafa þeir spilað PGA Sweden National á nákvæmlega sama skorinu; samtals 9 undir pari, 135 höggum; Dantorp (67 68) og Kinhult (67 68). Þriðja sætinu deila Þjóðverjinn Maximilian Kiefer og enn annar Svíi Sebastian Söderberg, 2 höggum á eftir forystunni þ.e. á 7 undir pari, 137 höggum. Hæst rankaði keppandi mótsins, Svíinn Henrik Stenson, sem er í 4. sæti heimslistans og ætlaði að bæta árangur sinn í mótinu, en besti árangur hans er 5. sætið, er T-34 og hefir hann samtals spilað á 2 undir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 17:00

Miklir yfirburðir Kristjáns Þórs á Smáþjóðaleikunum – á 64 höggum í dag!!!

Stigameistari GSÍ 2014, Kristján Þór Einarsson, GM hefir mikla yfirburði í einstaklingskeppninni á Smáþjóðaleikunum. Hann er langefstur, búinn að spila samtals á 12 undir pari (68 69 64). Í dag átti hann síðan stórglæsilegan hring upp á 7 undir pari, 64 högg og er þar með kominn með 9 högga forskot á næsta mann!!!  Frábært!!! Íslensku strákarnir eru langefstir í liðkeppninni líka. Haraldur Franklín Magnús er í 3. sæti á 2 undir pari og Andri Þór Björnsson er T-4 á 2 yfir pari. Sjá má stöðuna eftir 3. dag á golfmótinu á Smáþjóðaleikunum með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Marinó Örn Ólafsson – 5. júní 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Marinó Örn Ólafsson. Marínó Örn fæddist í 5. júní 1996 er er því 19 ára í dag. Hann er í Golfklúbbi Suðurnesja (GS). Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Katrín Baldvinsdóttir, 5. júní 1959 (56 ára); John Scott, 5. júní 1965 (50 ára stórafmæli!!!)Massimo Scarpa, 5. júní 1970 (45 ára) Dylan Fritelli (frá Suður-Afríku) 5. júní 1990 (25 ára) ….. og ….. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is