LET: Ólafía T-44 e. 3. dag Estrella Damm
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, GR, lék 3. hring á Estrella Damm mótinu á 69 höggum og er sem stendur T-44 eftir 3. dag mótsins. Samtals er Ólafía Þórunn búin að spila á 3 undir pari, 210 höggum (72 69 69). Hollenska stúlkan Anne Van Dam hefir tekið afgerandi forystu í mótinu á 5 högg á þá sem næst kemur, en er búin að spila á glæsilegum 20 undir pari, 193 höggum (64 64 65). Í 2. sæti er Solheim Cup kylfingurinn Caroline Hedwall, en hún hefir spilað á samtals 15 undir pari, 198 höggum (69 67 62) og átti lægsta skorið í dag eftir 3. hring; stórglæsileg 62 högg þar sem Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Arnar Geir og Missouri í 1. sæti á Evangel Fall Inv.
Arnar Geir Hjartarson og lið hans Missouri Valley urðu í 1. sæti á Evangel Fall Invite sem fram fór dagana 17.-18. september á Rivercut golfvellinum í Springfield, Missouri. Þátttakendur í mótinu voru 61 frá 11 háskólum. Arnar Geir varð T-20 í einstaklingskeppninni á samtals 13 yfir pari, 157 höggum (79 78). Sjá má lokastöðuna á Evangel Fall Invite með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Arnars Geirs og Missouri Valley er 24. september n.k.
Bandaríska háskólagolfið: 3 Íslendingar v/keppni í Arizona
Þeir Egill Gunnar Ragnarsson,GKG og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, Georgia State; Bjarki Pétursson, GB og Gísli Sveinbergsson, GK eru allir við keppni á Maui Jim Intercollegiate mótinu, sem fram fer í Mirabel golf- klúbbnum, í Scottsdale, Arizona, dagana 21.-23. september, en mótinu lýkur á morgun. Þátttakendur í mótinu eru 78 frá 14 háskólum. Bjarki átti stórglæsilegan 2. hring í dag, kom í hús á 66 glæsihöggum og er samtals búinn að spila á 136 höggum (70 66) og er T-19 í mótinu í einstaklingskeppninni. Gísli er búinn að spila best Íslendinganna, er 1 höggi á undan Bjarka á 135 höggum (67 68) og er T-12. Lið Bjarka og Gísla, Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Sigurlaug og félagar í 2. sæti á Loyola Fall Inv.
Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK og félagar hennar í Drake, golfliði Drake University í Des Moins, Iowa urðu í 2. sæti í Loyola Fall Invite, sem fram fór í Flossmoor Country Club, í Flossmoor, Illinois, 17.-18. september sl. Þátttakendur voru 70 frá 12 háskólum. Sigurlaug Rún lék á samtals 23 yfir pari, 239 höggum (80 79 80) og varð T-18 þ.e. deildi 18. sætinu í mótinu ásamt 3 öðrum. Sjá má lokastöðuna á Loyola Fall Invite með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Sigurlaugar Rún og Drake er 29. september n.k.
EM piltalandsliða: Ísland tapaði f. Portúgal
Ísland tapaði gegn liði Portúgals í undanúrslitum í 2. deild Evrópumóts piltalandsliða í dag 4,5 – 2,5. Ísland endaði í 2. sæti í höggleiknum og var einum sigri frá því að tryggja sér sæti á meðal þeirra bestu á EM á næsta ári. Með sigrinum tryggði Portúgal sér sæti í efstu deild ásamt Noregi. Ísland getur með sigri gegn Slóvakíu á laugardag tryggt sér sæti í efstu deild. Noregur sigraði Slóvaka naumlega 4/3 í undanúrslitum í dag. Í undanúrslitaleiknum gegn Portúgal var byrjað á því að leika tvo fjórmenninga fyrir hádegi. Tveir leikmenn úr sama liði liði skiptust á um að slá einum bolta til skiptis út holuna í holukeppni. Lesa meira
PGA: Justin Rose og Tiger efstir á Tour Championship í hálfleik
Það eru nr. 1 á heimslistanum, Justin Rose og sjálfur Tiger Woods, sem eru efstir og jafnir í hálfleik á Tour Championship. Báðir hafa þeir spilað á samtals 7 undir pari, 133 höggum; Rose (66 67) og Tiger (65 68). Í 3. sæti, aðeins 2 höggum á eftir er Rory McIlroy, á 5 undir pari, 135 höggum (67 68). Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Tour Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá stöðuna á Tour Championship SMELLIÐ HÉR:
Evróputúrinn: Birgir Leifur á 66 og komst g. niðurskurð á Portugal Masters!!!
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG komst gegnum niðurskurðinn á Portugal Masters nú í dag. Birgir lék 2. hringinn á stórglæsilegum 5 undir pari, 66 höggum; hring þar sem hann fékk 2 erni, 4 fugla og 3 skolla. Samtals lék Birgir Leifur því á 3 undir pari, 139 höggum (73 66) og það dugði til þess að komast gegnum niðurskurð! Spilað er á Dom Pedro Victoria vellinum í Vilamoura í Portúgal. Sjá má stöðuna á Portugal Masters með því að SMELLA HÉR:
Evróputúrinn: Haraldur Franklín komst á 2. stig úrtökumótsins
Haraldur Franklín Magnús atvinnumaður úr GR, komst í gegnum niðurskurð á 1. stigi úrtökumóts fyrir þátttökurétt á Evrópumótaröð karla, sem fram fór í Austurríki 18.-21. september 2018 í Schloss Ebreichsdorf golfklúbbnum í Austurríki. Haraldur Franklín lék á samtals 9 undir pari, 279 höggum (69 70 69 71). Hann varð T-20 sem dugði til en 20 efstu og þeir sem jafnir voru í 20. sætinu fá þátttökurétt á 2. stigi úrtökumótsins. Ólafur Björn Loftsson, tók einnig þátt í úrtökumótinu en komst því miður ekki áfram. Hann lék á 5 undir pari, 283 höggum (75 70 67 71). Sjá má lokastöðuna á úrtökumótinu í Schloss Ebreichsdorf með því að SMELLA HÉR:
Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-10 á Harboe Open
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GR, tók þátt í Harboe Open – by Slagelse Kommune & Sparekassen Kronjylland mótinu, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni, en mótið fór fram dagana 19.-21. september og lauk í dag. Guðmundur lék á samtals 5 undir pari, 211 höggum (70 68 73). Hann lauk keppni T-10 þ.e. deildi 10. sætinu ásamt þeim Stefan Idstam frá Svíþjóð og Elías Valàs Falkenér Bertheussen frá Danmörku. Sjá má lokastöðuna á Harboe Open með því að SMELLA HÉR:
LET: Ólafía komst g. niðurskurð á Estrella Damm
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, GR komst í gegnum niðurskurð á móti vikunnar á Evrópumótaröð kvenna (LET), þ.e. Estrella Damm mótinu. Samtals lék Ólafía Þórunn á 1 undir pari (72 69) og rétt slapp gegnum niðurskurð þ.e. gerði það sem gera þurfti að spila á 1 undir pari samtals. Í efsta sæti er hollenska stúlkan Anne Van Dam á samtals 14 undir pari (64 64). Í 2. sæti er síðan heimakonan Carmen Alonso á 10 undir pari (67 65). Sjá má stöðuna á Estrella Damm með því að SMELLA HÉR:










