Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2018 | 17:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur og félagar T-5 á Mercedes Benz Int.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og félagar hennar í Earstern Kentucky háskólanum(EKU) urðu í 5. sæti á stóru háskólamóti sem fram fór dagana 17.-18. september sl., Mercedes Benz Intercollegiate Mótsstaður var í Cherokee CC í  Knoxville, Tennessee. Þátttakendur voru 93 frá 17 háskólum. Ragnhildur varð T-41 í einstaklingskeppninni með skor upp á samtals 226 högg (80 77 69). Lið Ragnhildar, EKU, varð T-5 þ.e. deildi 5. sætinu með 2 öðrum háskólaliðum. Til þess að sjá lokastöðuna á Mercedes Benz Intercollegiate SMELLIÐ HÉR:  Næsta mót Ragnhildar er 24. september n.k.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Albína Unndórsdóttir – 21. september 2018

Það er Albína Unndórsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins. Albína er fædd 21. september 1947. Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Albína Unndórsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Sólveig Leifsdóttir, 21. september 1951 (67 ára); Siglfirðingur Siglufirði, 21. september 1958 (60 ára MERKISAFMÆLI!!!); Hulda Björg Birgisdóttir, 21. september 1960 (58 ára); Lia Biehl, (spilaði á LPGA) 21. september 1969 (49 ára); Svana Jónsdóttir 21. september 1976 (42 ára); Hannes Jóhannsson, GSG, 21. september 1979 (39 ára) ….. og ….. Erna Nielsen Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2018 | 00:30

Evróputúrinn: Haraldur Franklín og Ólafur Björn á úrtökumóti í Austurríki

Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín Magnús, GR og Ólafur Björn Loftsson, GKG taka þátt í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð karla. Úrtökumótið fer fram í Austurríki 18.-21. september 2018 í Schloss Ebreichsdorf golfklúbbnum. Haraldur Franklín er T-18 eftir 3 hringi, búinn að spila á samtals 8 undir pari, 208 höggum (69 70 69). Ólafur Björn er T-37 eftir 3 hringi, búinn að spila á samtals 4 undir pari, 212 höggum  (75 70 67). Fylgjast má með gengi þeirra Haraldar Franklín og Ólafs Björns á skortöflu með því að SMELLA HÉR:   

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2018 | 23:59

Tiger og Fowler efstir á Tour Championship e. 1. dag

Þeir Tiger Woods og Rickie Fowler eru efstir og jafnir á lokamóti FedExCup umspilsins, Tour Championship,  eftir 1. dag mótsins. Báðir léku á 5 undir pari, 65 höggum. Þriðja sætinu deila nr. 1 á heimslistanum, Justin Rose og Gary Woodland á 4 undir pari, 66 höggum. Í 5. sæti eru síðan 3 kylfingar: Rory McIlroy, Justin Thomas og Tony Finau allir á 3 undir pari, 67 höggum. Einungis 30 spila í Tour Championship. Sjá má stöðuna á Tour Championship með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2018 | 22:00

EM piltalandsliða: Ísland 1 sigri frá sæti í efstu deild

Ísland mætir liði Portúgals í undanúrslitum í 2. deild Evrópumóts piltalandsliða. Ísland endaði í 2. sæti í höggleiknum og er einum sigri frá því að tryggja sér sæti á meðal þeirra bestu á EM á næsta ári. Ungverjaland, Ísland, Noregur, Pólland, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía og Tyrkland hófu leik í 2. deild Evrópumóts piltalandsliða miðvikudaginn 19. september. Keppnin fer fram á Pannonia vellinum í Búdapest í Ungverjalandi. Fyrstu tvo keppnisdagana (miðvikudaginn og fimmtudaginn) var leikinn höggleikur og síðan tekur við holukeppni föstudag og laugardag. Alls eru þrjú sæti í boði í efstu deild EM á næsta ári. Jussi Pitkänen, afreksstjóri GSÍ, segir að markmið Íslands sé að komast upp í efstu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2018 | 18:00

LET: Ólafía T-68 e. 1. dag Estrella Damm

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir spilar þessa vikuna á Estrella Damm Ladies Open, sem er hluti af Evrópumótaröð kvenna (LET). Þátttakendur eru 108. Eftir 1. dag er Ólafía Þórunn T-68 þ.e. deilir 68. sætinu með 13 öðrum, sem allar spiluðu á 1 yfir pari, 72 höggum. Á hringnum fékk Ólafía Þórunn 2 fugla og 3 skolla. Sjá má stöðuna á Estrella Damm Ladies Open með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Adam Örn Jóhannsson – 20. september 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Adam Örn Jóhannsson. Adam Örn er fæddur 20. september 1980 og er því 38 ára í dag. Adam Örn Jóhannsson · 38 ára (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Marty Schiene, 20. september 1958 (60 ára STÓRAFMÆLI!!!); Becky Larson, 20. september 1961 (57 ára); Jenny Murdock, 20. september 1971 (47 ára); Chad Collins, 20. september 1978 (40 ára STÓRAFMÆLI!!! – spilar á PGA Tour) Golf 1 óskar öllum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2018 | 11:55

Nordic Golf League: Fylgist með Guðmundi Ágúst á Harboe Open HÉR!

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GR, er nú að leika 2. hring sinn á  Harboe Open mótinu, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Guðmundur lék 1. hring mótsins á 2 undir pari, 70 höggum; fékk 4 fugla og 2 skolla og var T-15 eftir 1. dag. Eftir 6 holu leik á 2. hring er Guðmundur á 3 undir pari. Skorið verður niður eftir hringinn í dag. Fylgjast má með Guðmundi Ágúst á Harboe Open á skortöflu með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2018 | 11:20

Bandaríska háskólagolfið: Birgir Björn, Gunnar og Bethany í 2. sæti á Ranger Inv.

Birgir Björn Magnússon GK og Gunnar Blöndahl Guðmundsson GKG, tóku þátt í Ranger Fall Invitational, sem er einvígi milli Bethany háskóla þeirra beggja í Kansas og Northwestern Oklahoma State háskólans. Þetta árið hafði Northwestern betur og varð Bethany að láta sér 2. sætið lynda, en mótið fór fram á heimavelli Northwestern í Meadowlake golfklúbbnum í Enid, Oklahoma, dagana 17.-18. september sl. Birgir Björn var á næstbesta og Gunnar á 3. besta skori Bethany. Spilaðir voru 2 hringir og lék Birgir Björn á samtals 8 yfir pari, 150 höggum (78 72). Gunnar lék á samtals 10 yfir pari, 152 höggum (79 73). Sjá má lokastöðuna á Ranger Fall Inv. með því að SMELLA HÉR: Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2018 | 11:00

Evróputúrinn: Fylgist m/Birgi Leif á Portugal Masters HÉR

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnumaður úr GKG, hefir nú lokið við leik á 9 holum á Portugal Masters, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum. Spilað er á Dom Pedro Victoria golfvellinum í Vilamoura í Portúgal. Birgir Leifur er á sléttu pari eftir 9 holur, hefir fengið 1 fugl og 1 skolla. Snemma dags eru Haotong Li frá Kína og Englendingurinn Matt Wallace efstir á 7 undir pari hvor, en það getur allt breyst enn. Sjá má stöðuna á Portugal Masters með því að SMELLA HÉR: