Hvað var í sigurpoka Tiger?
Eftirfarandi verkfæri voru í poka Tiger Woods þegar hann vann 80. PGA Tour sigur sinn á Tour Championship: Dræver: TaylorMade M3 460 (Mitsubishi Chemical Diamana D+ White Board 73TX skaft), 9.5°. 3-tré: TaylorMade M3 (Mitsubishi Chemical Diamana D+ White Board 83TX skaft), 13°. 5-tré: TaylorMade M3 (Mitsubishi Chemical Diamana D+ White Board 83TX skaft), 19°. Járn: TaylorMade TW Phase1 Prototype (3-PW; True Temper Dynamic Gold Tour Issue X100 sköft). Fleygjárn: TaylorMade Milled Grind (56 og 60°; True Temper Dynamic Gold Tour Issue S400 sköft). Pútter: Scotty Cameron Newport 2 GSS. Bolti: Bridgestone Tour B XS.
PGA: Rose tók FedExCup – Tiger sigraði á Tour Championship
Það var Tiger Woods sem sigraði á Tour Championship og er þetta fyrsti sigur Tiger frá 2013 og sá 80. á PGA Tour. Nr. 1 á heimslistanum Justin Rose varð stigameistari þ.e. vann FedEx bikarinn eftirsótta og 10 milljón dollara bónus-pottinn, sem honum fylgir Tiger lék lokahringinn á East Lake á 1 yfir pari, 71 höggi; fékk 2 fugla og 3 skolla. Sigurskor Tiger var samtals 11 undir pari, 269 högg (65 68 65 71). Í 2. sæti varð Billy Horschel 2 höggum á eftir Tiger á 9 undir pari, 271 höggi (71 65 69 66 ) og í 3. sæti varð Dustin Johnson á 7 undir pari, 273 höggum Lesa meira
Tiger mætir afslappaður til keppni á Tour Championship
Tiger Woods gekk nú rétt í þessu til búningsklefa en hann fer út eftir u.þ.b. 1 klukkustund. Hann hefir 3 högga forystu á næstu keppendur sína Rory McIlroy og Justin Rose eftir 3. keppnisdag. Spurningin sem brennur á öllum er hvort Tiger takist að næla sér í fyrsta PGA Tour sigur sinn frá árinu 2013? Sjá má meðfylgjandi myndskeið þar sem Tiger gengur afslappaður til búningsklefa síns, með rauða Nike golfbolinn, sem hann hefir gert heimsfrægan. Skyldi sigurvegari Tour Championship 2018 klæðast rauðum Nike golfbol? https://www.instagram.com/p/BoEycdQF4-z/?taken-by=golfmagic.com_
Afmæliskylfingur dagsins: Lilja G. Gunnarsdóttir – 23. september 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Lilja G. Gunnarsdóttir. Lilja er fædd 23. september 1967 og á því 51 árs afmæli í dag. Lilja er kylfingur og margt stórkylfinga í kringum hana. Innilega til hamingju með afmælið, Lilja! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Rodney Pampling, 23. september 1969 (49 ára) og Stacy Prammanasudh,(W-7 módel) 23. september 1979 (39 ára); Inga María Björgvinsdóttir, 23. september 1997 (21 árs) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
LET: Ólafía lauk keppni T-50 á Estrella Damm
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, GR, atvinnukylfingur á LPGA, lauk keppni á Estrella Damm mótinu nú rétt í þessu. Ólafía Þórunn lék samtals á 3 undir pari, 281 höggi (72 69 69 71) og lauk keppni T-50 þ.e. fór niður um 6 sæti frá deginum áður. Sigurvegari í mótinu varð hollenska stúlkan Anne Van Dam á glæsilegum 26 undir pari, 258 höggum (64 64 65 65). Van Dam átti heil 8 högg á þær sem deildu 2. sætinu, sem léku á 18 undir pari, 266 höggum; hina þýsku Caroline Masson (68 65 67 66); hina sænsku Caroline Hedwall (69 67 62 68) og áhugamanninn frá S-Kóreu, hina stórefnilegu Selin Hyun (67 69 Lesa meira
Sigrar Tiger í 3. sinn á Tour Championship?
Tiger Woods er efstur á Tour Championship eftir 3. dag mótsins. Nú þegar aðeins á eftir að spila lokahringinn er spurning hvort Tiger takist að sigra Tour Championship enn á ný, en hann hefir á ferli sínum tvívegis áður sigrað í mótinu? Tiger hefir sótt sig með hverju mótinu, er í feykiformi og m.a. í Ryder liði Bandaríkjanna sem keppir 30. september n.k. á Le Golf National vellinum í París. Tiger er búinn að spila á 12 undir pari, 198 höggum (65 68 65) og á 3 högg á þá Rory McIlroy og Justin Rose, sem báðir hafa spilað á samtals 9 undir pari, hvor. Kyle Stanley og Jon Rahm Lesa meira
EM piltalandsliða: Ísland tryggði sér sæti í efstu deild EM
Íslenska piltalandsliðið í golfi tryggði sér sæti í efstu deild Evrópumótsins í dag með stórsigri gegn Slóvakíu í leik um 3.-4. sætið. Ísland endaði í 2. sæti í höggleiknum og var einum sigri frá því að tryggja sér sæti á meðal þeirra bestu á EM á næsta ári þegar liðið mætti Portúgal í undanúrslitum. Þrátt fyrir tap í undanúrslitum náði Ísland að vinna leikinn um 3. sætið sem skipti öllu máli um sæti í efstu deild. Noregur og Portúgal tryggðu sér sæti í efstu deild með sigri í undanúrslitaleikjunum. Úrslit í viðureigna Íslands gegn Slóvakíu:
Golfgrín á laugardegi 2018 (20)
Jimmy Stewart segir hér einn gamla og góðan Sjá með því að SMELLA HÉR:
Evróputúrinn: Birgir Leifur fór ekki g. 2. niðurskurð á Portugal Masters
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er úr leik á móti vikunnar á Evróputúrnum, Portugal Masters. Eftir 3. hring í dag var skorið niður að nýju og komust aðeins 70 efstu og þeir sem jafnir voru í 70. sætinu áfram. Birgir Leifur varð einn í 79. sæti og sárgrætilegum 2 höggum frá því að komast í gegnum 2. niðurskurðinn. Samtals lék Birgir Leifur á 1 undir pari, 212 höggum (73 66 73), en spila varð á 3 undir pari eða betur til þess að ná í gegnum lokaniðurskurðinn. Efstur í mótinu, eftir 3. dag, er ástralski kylfingurinn Lucas Herbert en hann hefir spilað á 19 undir pari, 194 höggum (63 Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Áslaug Jónsdóttir – 22. september 2018
Það er Áslaug Jónsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Áslaug er fædd 22. september 1992 og á því 26 ára afmæli í dag!!! Áslaug Þóra Jónsdóttir 26 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Bland, frá S-Afríku, 22. september 1945 (73 ára); Halldóra Helgadottir, 22. september 1949 (69 ára); Jerry Anderson 22. september 1955 (63 ára); Philip Arnold Blackmar, 22. september 1957 (61 árs); Greg Bruckner, 22. september 1959 (59 ára); Michele Berteotti, 22. september 1963 (55 ára); Ingólfur Theodor Bachmann, 22. september 1975 (43 ára); Mikaela Parmlid (W-7 módel), 22. september 1980 (38 ára); Joaquin Estevez, (frá Argentínu), 22. september Lesa meira










