Bandaríska háskólagolfið: Hlynur og félagar urðu í 3. sæti á Maridoe mótinu
Hlynur Bergsson, GKG og golflið hans í bandaríska háskólagolfinu, University of North Texas (UNT) tóku þátt í Maridoe Intercollegiate, sem fram fór á heimavelli liðsins, 6.-8. október og lauk í gær. Þátttakendur í mótinu voru 75 frá 14 háskólum. Hlynur lék á samtals 15 yfir pari, 225 höggum (73 75 77) og varð T-24 í einstaklingskeppninni. Lið Hlyns (eða Lenny Bergsson eins og hann er kallaður í Bandaríkjunum) varð í 3. sæti í liðakeppninni. Næsta mót Hlyns og UNT er 21. október n.k. í Windermere, Flórída, þar sem Tigerinn býr.
Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur og félagar T-6 á Betty Lou Evans Inv.
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og félagar í Eastern Kentucky University (EKU) tóku þátt í Betty Lou Evans Invitational mótinu, sem fram fór 5.-7. október sl. Þátttakendur voru 72 frá 12 háskólum og fór mótið fram í University Club of Kentucky í Lexington, Kentucky. Ragnhildur varð T-47 í einstaklingskeppninni með skor upp á 229 högg (80 76 73). Lið Ragnhildar, EKU varð T-6 þ.e. deildi 6. sæti í mótinu með Toledo háskóla. Sjá má lokastöðuna á Betty Lou Evans mótinu með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Ragnhildar og EKU er 21. október n.k. í S-Karólínu.
Bandaríska háskólagolfið: Helga Kristín og Særós Eva luku keppni á Yale mótinu
Helga Kristín Einarsdóttir, GK og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu Albany og Særós Eva Óskarsdóttir, GKG og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Boston University tóku þátt í Yale Women´s Fall Intercollegiate. Þátttakendur voru 89 frá 16 háskólum. Mótið fór fram dagana 5.-6. október sl. á golfvelli Yale í New Haven í Conneticut. Helga Kristín varð T-29 í einstaklingskeppninni en hún lék hringina 3 sem voru spilaðir á samtals 17 yfir pari, 230 höggum (79 76 75). Lið Helgu Kristínar, Albany varð í 6. sæti í liðakeppninni. Særós Eva varð T-68 í einstaklingskeppninni en hún lék á samtals 37 yfir pari, 250 höggum (81 87 82). Lið Særósar Evu Boston University Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Guðmundur Ágúst Kristjánsson – 8. október 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Guðmundur Ágúst er fæddur 8. október 1992 og á því 26 ára afmæli í dag! Guðmundur Ágúst hefir m.a. orðið Íslandsmeistari í holukeppni 2013. Hann spilaði golf í bandaríska háskólagolfinu, með golfliði Eeast Tennessee State University (ETSU). Guðmundur Ágúst er einn af 3 Íslendingum sem unnið hafa Duke of York keppnina, en hann vann hana fyrstur Íslendinga árið 2010. Hann hefir á undanförnum misserum spilað í mótum á Nordic Golf League mótaröðinni. Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Guðmundur Ágúst Kristjánsson (26 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar Lesa meira
PGA: Tway sigraði á Safeway – Hápunktar
Það var bandaríski kylfingurinn Kevin Tway, sem sigraði á Safeway Classic. Mótið fór að venju fram í Silverado Resort and Spa í Napa, Kaliforníu. Tway var jafn þeim Ryan Moore og Brandt Snedeker að loknu hefðbundnu 72 holu spili og varð því að koma til bráðabana milli þeirra. Allir léku þeir á samtals 14 undir pari, 274 höggum; Tway (68 67 68 71); Snedeker (66 65 69 74) og Moore (67 67 73 67) Það varð því að koma til bráðabana milli þeirra þriggja þar sem 18 hola Norðurvallar Silverado Resort var spiluð að nýju en þar datt Snedeker út á pari meðan Moore og Tway fengu fugla. Því var 18 Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Saga og félagar urðu í 1. sæti á Ron Moore
Saga Traustadóttir og félagar í Colorado State University (CSU) tóku þátt í Ron Moore Intercollegiate mótinu, sem fram fór 5.-7. október sl. og lönduðu 1. sætinu. Þátttakendur voru 90 keppendur frá 16 háskólaliðum. Saga lék á samtals sléttu pari, 216 höggum (70 73 73) og varð T-5 í einstaklingskeppninni. Hún var á 3. besta skorinu í liði sínu en liðsfélagar hennar lönduðu 1. og 2. sætinu. Sjá má lokastöðuna á Ron Moore Intercollegiate með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Sögu og CSU verður 21.-23 október n.k.
Afmæliskylfingur dagsins: Fannar Ingi Steingrímsson – 7. október 2018
Það er klúbbmeistari GHG 2018 Fannar Ingi Steingrímsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Fannar Ingi er fæddur 7. október 1998 og er því 20 ára stórafmæli í dag. Fannar Ingi er í GHG, þ.e. Golfklúbbi Hveragerðis. Fannar Ingi spilaði á Arionbankamótaröðinni 2012 með góðum árangri. Sem fyrr tók Fannar Ingi einnig þátt í nokkrum mótum erlendis með góðum árangri. Þannig keppti hann í maí 2013 á US Kids European Championship sem fram fór á golfvelli Luffness New Golf Club í Skotlandi. Þar lauk Fannar Ingi keppni í 2. sæti. Eftirminnilegasta afrek Fannars Inga frá árinu 2013 er e.t.v. 2. mótið á Íslandsbankamótaröðinni, sem fram fór á Strandarvelli á Hellu. Þar sigraði Fannar Lesa meira
PGA: Snedeker efstur f. lokahringinn á Safeway Open – Hápunktar 3. dags
Það er Brandt Snedeker, sem er efstur f. lokahring Safeway Open, sem er mót vikunnar á PGA mótaröðinni. Snedeker er búinn að spila á samtals 16 undir pari, 200 höggum (66 65 69) og á 3 högg á þann sem er í 2. sæti, en það er landi Snedeker, Kevin Tway, sem spilað hefir á 13 undir pari, 203 höggum (68 67 68). Í 3. sæti er síðan tiltölulega óþekktur kylfingur Sungjae Im frá S-Kóreu, en hann hefir spilað á 12 undir pari, 204 höggum (66 69 69). Að venju fer mótið fram á Norðurvelli Silverado Resort, í Napa Kaliforníu. Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Safeway Open SMELLIÐ Lesa meira
Golfgrín á laugardegi 2018 (21)
Hér koma nokkrir gamlir og nokkrir ekki svo gamlir: 1 Af hverju segja golfkennararnir alltaf: „Niður með höfuðið?“ … Maður á ekki að sjá þá hlægja. 2 Tveir eldri kylfingar sitja í klúbbhúsinu, drekkandi te og eru að tala um golfspil sitt. Segir einn við hinn:„Á þessu tímabili spilaði ég svo illa að ég varð jafnvel að endurnýja gripið á boltaveiðistönginni minni.“ 3 Walter ákveður dag einn að spila á öðrum golfvelli, þar sem enginn þekkir hann. Hann vill komast að því hvort ekki gangi betur á öðrum velli. Þar sem hann er nýr á þessum velli, fær hann sér kylfubera. Eftir hræðilegan hring með fullt af lofthöggum, slæsum Lesa meira
Afmæliskylfingar dagsins: Stefán Teitur – 6. október 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Stefán Teitur Þórðarson, GL. Hann er fæddur 6. október 2016 og því 22 árs í dag. Stefán Teitur – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Herdís Guðmundsdóttir, (f. 16. október 1910- d. 29.1.1997) Fyrsti íslenski kvenkylfingurinn, sem hlaut meistaratign í golfi. Meistari Golfklúbbs Íslands, síðar GR, 1938, 1939, 1944, 1945 og 1948; Margrét Óskarsdóttir, GM, 16. október 1951 (67 ára) ; Val Skinner, 16. október 1960 (58 ára); Kay Cockerill, 16. október 1964 (54 ára); Agnes Ingadóttir, GM, 6. október 1965 (53 ára); Flosi Sig 6. október 1969 (49 ára); Sigrún Helgadóttir 6. október 1969 (49 ára); ….. og Lesa meira










