Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2018 | 17:00

Evróputúrinn: Pepperell efstur í hálfleik á Walton Heath – Hápunktar 2. dags

Enski kylfingurinn Eddie Pepperell er efstur á Sky Sports British Masters mótinu, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum. Pepperell er búinn að spila á samtals 8 undir pari, 136 höggum (67 69). Ekki tókst þó öllum að ljúka 2. hring vegna veðurs og verður haldið fram þar sem frá var horfið á morgun, laugardagsmorgun og gæti staðan breyst eitthvað við það. Sjá má stöðuna á British Masters eftir 2. dag með því að SMELLA HÉR:  Sjá má hápunkta 2. dags á British Masters með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Cristie Kerr ———- 12. október 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Cristie Kerr. Cristie er fædd 12. október 1977 og því 41 árs í dag. Hún er nr. XX á Rolex-heimslistanum yfir bestu kvenkylfinga heims. Sjá má samantekt Golf 1 yfir þennan frábæra og vinsæla kylfing með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ragnheiður Adda Þorsteinsdóttir (61 árs); Freydís Ágústa Halldórsdóttir (57 ára); Todd Gibson (50 STÓRAFMÆLI!!!); Dóróthea Jóhannesdóttir (24 ára); …. og … Reynir Línberg Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2018 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Egill Ragnar bestur í liði Georgia State

Egill Ragnar Gunnarsson, GKG og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, Georgia State tóku þátt í Wolfpack Intercollegiate. Mótið fór fram dagana 6.-7. október sl. á Lonnie Poole golfvellinu í Raleigh, Norður-Karólínu. Þátttakendur voru 90 frá 15 háskólum. Egill Ragnar var á besta skorinu í liði Georgia State en hann lék hringina 3 á 1 yfir pari, 217 höggum (74 72 71) og varð jafn 4 öðrum í 35. sæti. Lið Egils Ragnars, Georgia State varð í 12. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá lokastöðuna á Wolfpack Intercollegiate SMELLIÐ HÉR:  Næsta mót Egils Ragnars og Georgia State er 15. október n.k. en það er jafnframt það síðasta á haustönn.

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2018 | 20:00

Hulda endaði í 29. sæti ı Ingvar í 9. sæti á ÓL ungmenna

Hulda Clara Gestsdóttir og Ingvar Andri Magnússon, bæði úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, kepptu fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikum ungmenna sem fram fór í Buenos Aires í Argentínu. Einstaklingskeppninni lauk í dag, þar sem leiknir voru þrír keppnishringir á þremur dögum. Ingvar Andri endaði í 9. sæti á +8 samtals (74-73-71). Ingvar Andri var í 12. sæti fyrir lokahringinn. Karl Vilips frá Ástralíu fékk gullverðlaunin á -4 samtals. Hulda Clara endaði í 29. sæti á +35 samtals (81-82-82). Grace Kim frá Ástralíu fékk gullverðlaunin á +1 samtals. Laugardaginn 13. okt hefst liðakeppnin og er leikinn fjórmenningur þann 13., fjórbolti þann 14. og sameiginlegt skor í höggleik telur á lokahringnum þann Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Guðrún og Valgerður Bjarnadætur – 11. október 2018

Afmæliskylfingar dagsins eru Guðrún og Valgerður Bjarnadætur, báðar í Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði. Þær eru tvíburar, fæddar 11. október 1960. Komast má á heimasíðu Guðrúnar og Valgerðar hér að neðan til þess að óska þeim til hamingju með afmælið: Valgerður Bjarnadóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!! Guðrún Bjarnadóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Richard Burton, f. 11. október 1907 – d. febrúar 1974 (vann m.a. Opna breska 1939); Fred Daly, f. 11. október 1911 – d. 18. nóvember 1990 (vann m.a. Opna breska 1947); Greg Chalmers, 11. október 1973 (45 ára) – (vann m.a. Australian Open og Australian PGA Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2018 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Stefán varð T-22 á NSU Shark Inv.

Stefán Þór Bogason, GR tók þátt í NSU Shark Invitational, sem fram fór dagana 8.-9. október sl. á PGA National í Palm Beach Gardens í Flórída. Stefán Þór er við nám í Flórída Tech, en að þessu sinni keppti hann sem einstaklingur. Þátttakendur voru 95 frá 16 háskólum. Stefán Þór deildi 22. sætinu, sem er frábær árangur á skori upp á 228 höggum (76 81 71) og var á 3. besta skorinu af þeim, sem kepptu sem einstaklingar í mótinu. Hefði Stefán Þór verið í liði Florida Tech hefði hann einnig verið á 3. besta skorinu í liði sínu. Sjá má lokastöðuna á NSU Shark Inv. með því að SMELLA Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rakel Kristjánsdóttir – 10. október 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Rakel Kristjánsdóttir. Rakel fæddist 10. október 1951. Rakel er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með daginn: Rakel Kristjánsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Galleri Ozone Selfossi (108 ára); Bruce Devlin, 10. október 1937 (81 árs); Craig Marseilles, 10. október 1957 (61 árs); Jody Anschutz, 10. október 1962 (56 ára) ; Bryn Parry, 10. október 1971 (47 ára); Golfara Sumar (43 ára); Johan Edfors, 10. október 1975 (43 ára); Haukur Dór, 10. október 1976 (42 ára); Mika Miyazato, 10. október 1989 (29 ára) – vann Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2018 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Bjarki, Gísli og félagar luku keppni á Jack Nicklaus Inv.

Bjarki Pétursson og Gísli Sveinbergsson og félagar í Kent State tóku þátt í Jack Nicklaus Invitational. Mótið fór fram dagana 8. – 9. október sl. í Columbus Ohio. Um holukeppni var að ræða. Sjá má umfjöllun um mótið á heimasíðu Kent State með því að SMELLA HÉR:  Næsta mót Bjarka, Gísla og félaga hefst 12. október n.k.

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur B. Sveinsson – 9. október 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Guðlaugur B. Sveinsson, læknir. Guðlaugur er fæddur 9. október 1959 og er því 59 ára í dag. Guðlaugur er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og duglegur að taka þátt í opnum mótum. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Panton f. 9. október 1916 – d. 24. júlí 2009; Sigríður Elín Þórðardóttir, GSS, 9. október 1960 (58 ára); Annika Sörenstam, 9. október 1970 (48 ára), Henric Sturehed, 9. október 1990 (28 ára) …. Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2018 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Arna Rún og félagar urðu í 2. sæti á William Beall

Arna Rún Kristjánsdóttir og félagar hennar í bandaríska háskólagolfinu í liði Grand Valley State University (GVSU) í Michigan tóku þátt í hinu árlega William Beall Fall Classic. Mótið fór fram dagana 7.-8. október 2018 í Findlay CC í Ohio og lauk í gær. Þátttakendur voru 90 frá 15 háskólum. Arna Rún lék á samtals 26 yfir pari, 170 höggum (84 86) og varð T-62. Lið Örnu Rún, GVSU, varð í 2. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á William Beall Fall Classic með því að SMELLA HÉR:  Næsta mót Örnu Rún og félaga er 15.-16. október n.k. í  Palm Beach Gardens, Flórída en þar tekur liðið þátt í NCAA DII Lesa meira