Hulda Clara og Ingvar Andri eru mætt til Buenos Aires – Taka þátt í ÓL ungmenna
Hulda Clara Gestsdóttir og Ingvar Andri Magnússon, bæði úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, eru fulltrúar Íslands á Ólympíuleikum ungmenna sem fram fara í Buenos Aires í Argentínu. Keppnishópurinn mætti 3 dögum fyrir keppni til Buenos Aires til þess að undirbúa sig fyrir stórmótið. Hópurinn flaug til Amsterdam frá Íslandi og þaðan til Buenos Aires. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskir kylfingar keppa á golfmóti sem tengist Ólympíuleikunum – og er þetta því sögulegur viðburður í íslenskri golfsögu. Jussi Pitkänen, afreksstjóri GSÍ, er með í för en alls eru níu keppendur frá Íslandi. Keppnigreinarnar eru alls 32 og er Ísland með keppendur í fimleikum, frjálsíþróttum, golfi og sundi. Alls eru Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir – 5. október 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir. Margrét Grímlaug er fædd 5. október 1958 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Margréti Grímlaugu til hamingju með merkisafmælið hér að neðan Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir 60 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Inga Þöll Þórgnýsdóttir, 5. október 1961 (57 ára); Geir Hörður Ágústsson GÓ, 5. október 1962 (56 árs); Dame Laura Davies, 5. október 1963 (55 ára); Sigurveig Árnadóttir, 5. október 1965 (53 ára); Paul Moloney, 5. október 1965 (53 ára); Ellie Gibson, 5. október 1967 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Sally Smith, 5. Lesa meira
Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur úr leik
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tók þátt í Monaghan Irish Challenge, sem er mót vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu. Mótið fer fram á Concra Wood golfvellinum í Castleblayney í Monaghan sýslu á Írlandi, dagana 4.-7. október og lýkur því á sunnudaginn. Birgir Leifur lék á samtals 6 yfir pari, 150 höggum (76 74), en það dugði ekki til því niðurskurður var miðaður við 2 yfir pari eða betra og Birgir Leifur því úr leik. Í hálfleik eru 3 kylfingar efstir og jafnir á samtals 7 undir pari, hver en það eru þeir: Ricardo Santos frá Portúgal; Niklas Lemke frá Svíþjóð og Skotinn Callum Hill. Sjá má stöðuna á Monaghan Irish Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Sunna Víðisdóttir – 4. oktober 2018
Þetta er stór afmælisdagur kylfinga þ.e. það eru margir frábærir kylfingar, sem eiga afmæli í dag. Þegar unnið er alla daga við að skrifa afmælisgreinar sést fljótt að suma daga er varla hægt að finna kylfing sem fæddur er á viðkomandi degi og svo aðra daga, sem margir stórkylfingar eru fæddir á. Þeir sem fæddir eru í dag virðast fæddir undir stórri golfstjörnu!!! Afmæliskylfingur dagsins er Sunna Víðisdóttir en hún er fædd 4. október 1994 og á því 24 ára afmæli í dag!!! Sunna lék í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Elon, en er nú útskrifuð (fyrir 2 árum). Sunna varð m.a. Íslandsmeistari í höggleik kvenna 2013. Og þá er aðeins Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Tumi og félagar luku keppni í 12. sæti
Tumi Hrafn Kúld, GA og félagar í Western Carolina University (WCU) tóku þátt í Hummingbird Intercollegiate háskólamótinu, sem fram fór 2.-3. október, í Country Club of Sapphire Valley í N-Karólínu og lauk í gær. Þátttakendur voru 84 frá 16 háskólum. Tumi Hrafn lék á samtals 10 yfir pari, 223 höggum (70 75 78) og varð T-67 þ.e. deildi 67. sætinu með 4 öðrum kylfingum. Lið Tuma, WCU lauk keppni í 12. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna í Hummingbird Intercollegiate með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Tuma og félaga verður haldið 14.-16. október n.k.
Afmæliskylfingur dagsins: Ásta M. Sigurðardóttir – 3. október 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Ásta Sigurðardóttir. Ásta er fædd 3. október 1966 og á því 52 ára afmæli. Ásta er í Golfklúbbi Selfoss (GOS). Hún var formaður GOS 2014 og jafnframt fyrsta konan til að gegna þeirri stöðu. Ásta Sigurðardóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Elsa Þuríður Þórisdóttir, 3. október 1955 (63 ára); Fred Couples, 3. október 1959 (59 ára); Jack Wagner, 3. október 1959 (59 ára); Tösku Og Hanskabúðin, 3. október 1961 (57 ára); Asta Sigurdardottir, 3. október 1966 (52 ára); Esther Ágústsdóttir, 3. október 1968 (50 ára STÓRAFMÆLI – Innilega til hamingju!!!); Matthew Southgate, 3. október 1988 (30 ára Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Arnar Geir og félagar urðu í 1. sæti á Porto Cima Inv.!
Arnar Geir Hjartarson, margfaldur klúbbmeistari GSS og lið hans í bandaríska háskólagolfinu Missouri Valley tóku þátt í Porto Cima Invitational mótinu. Mótið fór fram í The Club at Porto Cima á Sunrise Beach í Missouri, dagana 1.-2. október 2018. Þátttakendur voru 40 frá 7 háskólum. Arnar Geir hafnaði í 16. sætinu í einstaklingskeppninni með skor upp á samtals 18 yfir pari, 162 höggum (79 83). Lið Missouri Valley varð í 1. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á Porto Cima Inv. með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Arnars Geirs og Missouri Valley er 15.-16. október n.k.
Bandaríska háskólagolfið: Sigurlaug Rún varð T-4 á Creighton Classic
Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Drake, tóku þátt í Creighton Classic mótinu. Mótið fór fram í Oak Hills CC, í Omaha Nebraska dagana 1.-2. október og lauk því í gær. Þátttakendur voru 47 frá 8 háskólum. Sigurlaug Rún lék á samtals 4 yfir pari, 150 höggum (76 74) og var á besta skorinu í liði Drake. Drake hafnaði í 3. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá lokastöðuna á Creighton Classic SMELLIÐ HÉR: Næsta mót Sigurlaugar Rún og Drake er 14.-16. október n.k.
Afmæliskylfingur dagsins: Phill Hunter ———- 2. október 2018
Það er Phill Hunter, golfkennari í MP Golf Academy hjá Golfklúbbnum Oddi (GO) sem er afmæliskylfingur dagsins. Phill er breskur, fæddist 2. október 1964 og á því 54 ára afmæli í dag. Hann er kvæntur og á 1 strák. Phill hefir yfir 30 ára reynslu af golfkennslu. Á árunum 1983-1986 vann hann við Wath Golf Club og á árunum 1986-1988 við Grange Park Golf Club í Englandi. Hér á landi var Phill golfkennari hjá GR 1988-1991 og hjá GS 1992-1996, auk þess sem hann þjálfaði unglingalandsliðið á þessum árum. Phill og fjölskylda bjuggu síðan um 11 ára skeið í Þýskalandi þar sem hann var yfirgolfkennari við Golfclub Haus Kambach í Lesa meira
Ryder Cup 2018: Thorbjörn Olesen stóð sig vel í 1. Ryder bikars móti sínu!!!
Danski kylfingurinn Thorbjörn Olesen ávann sér sæti í Ryder liði vinar síns, landa og fyrirmyndar Thomas Björn, á síðustu stundu. Og það verður ekki annað sagt en að Thorbjörn hafi staðið sig vel í fyrsta Ryder bikars móti sínu. Það eina var að hann á hvorki eiginkonu né kærustu, en WAGs evrópsku leikmannanna hópuðust allar í kringum þennan myndarlega Dana og þann eina sem var á lausu í liðinu – þetta er jú liðakeppni eftir allt saman og enginn sem stendur einn! (Sjá mynd í aðalmyndaglugga. Eiginkonur og kærustur evrópsku leikmannanna, sem stilltu sér upp kringum Thorbjörn Olesen eru að ofan f.v.: Emily Braisher (kærasta Tyrrell Hatton) Clare Fleetwood (eiginkona Tommy Fleetwood); Katie Lesa meira










