Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2011 | 14:00

Ryo Ishikawa tilkynnir um þátttöku í Thailand Golf Open

Japanska golfstjarnan Ryo Ishikawa hefir tilkynnt um þátttöku sína í lokamóti Asíutúrsins,  Thailand Golf Championship. Mótið fer fram á Amata Spring Country Club í útjaðri Bankok, dagana 15-18. desember. Meðal annarra þátttakenda í mótinu, þar sem aðalverðlaun eru $ 1 milljón eru Lee Westwood, Rory McIlroy og Darren Clarke . Ryo sagði þegar hann hafði tilkynnt um þátttöku sína: „Ég er mjög spenntur að spila á Thailand Golf Championship mótinu. Margir af bestu kylfingum heims hafa staðfest þátttöku og ég er glaður að vera með.“

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2011 | 12:00

Davis Love III gæti hugsað sér Tiger í Ryder Cup liði sínu 2012

Fyrirliði liðs Bandaríkjanna í Ryder Cup 2012, Davis Love III hefir látið hafa eftir sér að hann geti vel hugsað sér að fylgja fordæmi fyrirliða Presidents Cup, Fred Couples og valið Tiger í lið sitt 2012 sem spilar f.h. Bandaríkjanna í Medinah, þrátt fyrir slæmt leikform sem fyrrum nr. 1 í heiminum er í nú. Tiger hefir ekki sigrað í 2 ár og hefir verið skugginn af sjálfum sér, eftir að hafa tekið sér frí til að sinna vandamálum í einkalífinu. Tiger, 35 ára, sem nú er í 50. sæti heimslistans var tryggt sæti í bandaríska liðinu, sem spilar á Presidents Cup, af fyrirliðanum Fred Couples. Á blaðamannafundi sem haldinn Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2011 | 10:50

Afmæliskylfingur dagsins: Kathy Whitworth – 27. september 2011

Afmæliskylfingur dagsins er Kathy Whitworth.  Kathy fæddist 27. september 1939 í Monahans, Texas og er því 72 ára í dag. Kathy er sá kylfingur (hvort heldur er karl/kvenkyns) sem sigrað hefir á flestum golfmótum atvinnumanna með 98 titla, þar af 88 á LPGA (og þar af 6 sigra á risamótum) , 1 á Evrópumótaröð kvenna og 9 á öðrum mótum. Þessi hávaxna kona frá Texas (1,75 m á hæð) með smitandi hláturinn varð atvinnumaður í golfi árið 1959 og var atvinnukylfingur í 38 ár. Hún vann sér inn $ 1.7 milljónir (um 221 milljón íslenskra króna) á mótaröð, sem var rétt að hefja gang sinn. Árið 1981 varð hún fyrsti Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 20:00

13 kvenstjörnur golfsins

Hér á næstu tveimur vikum verður hér á Golf 1 fjallað um 13 kvenstjörnur golfíþróttarinnar. Þegar talað er um kvenstjörnu í golfi dettur mörgum e.t.v. Annika Sörenstam í hug. Blómaskeið hennar er frá 1994, þegar hún gerist atvinnumaður í golfi til ársins 2008, þegar hún hættir í keppnisgolfi og snýr sér að barneignum og fyrirtækjarekstri. Í 14 ár var Annika sá kvenkylfingur, sem réði lögum og lofum á golfvöllum heimsins. En Annika er ekki ein af stjörnunum sem fjallað verður um hér. Það sem Annika afrekaði á 14 ára ferli sínum, sem atvinnumaður í golfi er efni í heilu bækurnar. Athyglinni verður hér einkum beint að nokkrum kvengolfstjörnum, sem voru Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 18:00

GH: Arnþór Hermannsson fór holu í höggi!

Húsvíkingurinn og fótboltakappinn Arnþór Hermannsson fór holu í höggi sunnudaginn 18. september s.l.  Draumahöggið var slegið á 5. braut Katlavallar sem er 152 metra par-3 braut.  Pabbi Arnþórs var kaddý og sagði honum að 8 járnið yrði aldrei nóg þannig að Arnþór sló höggið góða með 7 unni! Golf 1 óskar Arnþóri til hamingju með afrekið!

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 16:00

Hver er kylfingurinn Bill Haas?

Bill Haas er kylfingurinn ungi, 29 ára, sem vann sér inn $11,4 (u.þ.b. 1345 milljónir ísl. króna) í gær þegar hann sigraði á lokamóti FedExCup, Tour Championship í East Lake í Atlanta. En hver er kylfingurinn Bill Haas? Bill er af mikilli golffjölskyldu. Hann fæddist  24. maí 1982 í Charlotte, Norður Karólínu og ólst upp í Greer, Suður-Karólínu, sem er úthverfi Greenville.  Hann er sá 3. í fjölskyldu sinni til þess að spila golf með golfliði Wake Forest háskólanum (þar sem Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, er við nám nú og spilar með kvennagolfliði skólans). Hinir tveir í fjölskyldu Bill er faðir hans Jay og föðurbróðir Jerry. Jerry varð reyndar golfþjálfari Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 14:00

Stjörnurnar á Solheim Cup

Eftirfarandi grein birtist á Sky Sports fyrir um 3 klst síðan: Við vissum að Evrópa myndi keppa fyrstu 2 daga Solheim Cup – sagan segir okkur að svo sé. Við vissum að hinir þjóðernisræknu Bandaríkjamenn myndu verða grimmir og stoltir andstæðingar á lokadeginum – sagan sagði að það séu þeir ávallt. Við vissum líka að sagan sagði okkur að Evrópa myndi gefa eftir í tvímenningsleikjunum – en okkur grunaði (og við vonuðum) og það yrði öðruvísi í ár. Það sem við gætum aldrei hafa ímyndað okkur er að allt myndi verða svo ólíkt á svo dramatískan hátt.   Venjan Venju samkvæmt hefir Evrópa ekki aðeins átt í erfiðleikum á lokadeginum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 12:47

PGA: Lögreglan skaut á mann fyrir utan East Lake

Skotið var á mann sem keyrði í gegnum vegartálma nálægt East Lake Golf Club í Atlanta meðan Tour Championship fór þar fram, en bíllinn, sem hafði verið stöðvaður ók af stað með lögreglumann hálfan inn í honum skv. dagblaðinu Atlanta Journal-Constitution. Skv. blaðinu átti atburðurinn sér stað þegar lögreglan hafði gefið Gerald Williams merki um að stöðva bifreið sína, en hann reyndi að keyra gegnum vegartálmann u.þ.b. kl. 7 að kvöldi á lokadegi mótsins.  Williams hafði ekki heimild til að keyra á parkstæði (við klúbbhúsið) var haft eftir heimildarmönnum dagblaðsins. Í stað þess að stöðva Saturn bifreið sína reyndi Williams að taka af stað með annan lögreglumanninn enn hálfan inn Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 10:18

Afmæliskylfingur dagsins: Tryggvi Valtýr Traustason – 26. september 2011

Afmæliskylfingur dagsins, Tryggvi Valtýr Traustason, GSE, er 49 ára í dag, fæddur 26. september 1962. Tryggvi er í Golfklúbbi Setbergs í Hafnarfirði.  Hann varð m.a. Íslandsmeistari 35+ s.l. sumar í Kiðjaberginu. En það er aðeins eitt af fjölmörgum afrekum Trygga á sviði golfíþróttarinnar. Sem dæmi mætti nefna að Tryggvi varð klúbbmeistari GK 1983 og 1999. Hann varð klúbbmeistari GSE 2001 og Íslandsmeistari í sveitakeppni með GK 1988, 1989, 1991 og 1995. Tryggvi er kvæntur Kristínu Þorvaldsdóttur Golf 1 óskar Tryggva innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag: Neil Coles, 26. september 1934 (77 ára)

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 09:26

La Cava er nýi kaddý Tiger Woods

Tiger Woods hefir tilnefnt Joe La Cava, sem eitt sinn var kaddý Fred Couples og nú síðast kaddý Dustin Johnson, sem nýja manninn á pokanum hjá sér. Tiger, sem öllum að óvörum sagði skilið við kaddýinn sinn til langs tíma, Steve Williams, í júlí s.l. mun mæta með nýja kaddýinn sinn í fyrsta sinn á Frys.com Open í San Martin Open í Kaliforníu, en mótið fer fram dagana 6.-9. október n.k. „Fjöldi manna hafði samband við (umboðsmann Tigers), Mark (Steinberg) og mig, þ.á.m. Joe, sem lýsti áhuga á að verða kaddýinn minn,” sagði Tiger á opinberri vefsíðu sinni. (Sjá með því að smella HÉR:) „Þetta var mikilvæg ákvörðun og ég Lesa meira