Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 09:19

PGA: Bill Haas vann Tour Championship

Það var bandaríski kylfingurinn Bill Haas, sem stóð uppi sem sigurvegari á 4. og síðasta móti FedExCup, Tour Championship að East Lake í Atlanta í gærkvöldi. Bill Haas spilaði hringina fjóra á samtals -8 undir pari, samtals 272 höggum (68 67 69 68) og var að lokum venjulegs leiktíma á sama skori og Hunter Mahan. Því kom til umspils milli þeirra og sigraði Bill, Hunter á 3. holu umspilsins. ÚRSLIT:  Til þess að sjá myndskeið um Bill Haas sigra Tour Championship, smellið HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2011 | 20:53

Úrslit: Árni efstur á 1. móti Ecco haustmótaraðar GS

Í gær, 24. september 2011, fór fram 1. mót á Ecco haustmótaröð GS. Það eru Golfklúbbur Suðurnesja, Ecco og Bláa lónið standa saman að haustmótaröð. Það leit ekki út fyrir að það yrði gott veður, fremur hvasst og rigning á leið frá Reykjavík. En… þegar komið var á Hólmsvöll tók við leirulognið með öfugum formerkjum (þ.e. án gæsalappa) – þ.e. það var alvöru logn og sólskin og það seint í september! Besta golfveður í Leirunni lengi og völlurinn skartaði haustskrúði og var í góðu ásigkomulagi. Þátttakendur í þessu fyrsta Ecco haustmóti GS voru 53, þar af 1 kona. Veitt voru verðlaun fyrir efstu 3 sætin í höggleik og punktakeppni með Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2011 | 20:02

Evróputúrinn: Kenneth Ferrie sigraði á Austrian Golf Open – Birgir Leifur varð í 52. sæti –

Birgi Leif okkar Hafþórssyni gekk ekki að óskum í dag á Austrian Golf Open, spilaði á næstversta skori sínu í keppninni og náði ekki að fylgja eftir frábæru gengi í gær.  Birgir spilaði á samtals +2 yfir pari í Diamond Golf & Country Club í Atzenbrügg í Austurríki, samtals 290 höggum (69 77 68 78). Fyrir sigurinn hlaut Birgir € 4200 (u.þ.b. 700.000 ísl. krónur). Það var Bretinn Kenneth Ferrie sem vann mótið á -12 undi pari, samtals 276 höggum (72 70 67 67) eftir umspil við landa sinn Simon Wakefield, sem er nýliði á Evróputúrnum og vann Q-school s.l. desember. Kenneth tryggði sér sigurinn á 1. holu umspilsins, sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2011 | 19:29

Solheim Cup: Evrópa vann Bandaríkin 15:13

Það fór svo að Solheim bikarinn er kominn aftur til Evrópu, vannst í Killeen Castle, Dunsany í Meath héraði á Írlandi núna síðdegis í tvímenningsleikjunum tólf. Eftir leiki gærdagsins var allt jafnt og í járnum 8:8. Evrópa fékk hins vegar 7 vinninga eftir hádegi í dag en Bandaríkin aðeins 5. Staðan 15:13 því staðreynd. Niðurstöður í tvímenningsleikjum dagsins í dag voru eftirfarandi: 1. Hins skoska Catriona Matthews vann glæstan sigur 6&5 á einum erfiðasta andstæðingi Evrópu, Paulu Creamer, en Bleiki Pardusinn var búinn að standa sig ótrúlega vel í keppninni. 2. Hin ótrúlega Sophie Gustafsson vann Stacy Lewis í liði Bandaríkjanna með 2 up. 3. Hin bandaríska Morgan Pressel vann Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2011 | 18:00

Úrslit: Styrktarmót Tinnu Jóhannsdóttur

Í gær, laugardaginn 24. september fór fram á Hvaleyrinni í Hafnarfirði, mót til styrktar Tinnu Jóhannsdóttur, GK. Alls tóku um 60 fyrirtæki þátt í Styrktarmóti Tinnu. Tinna hefur eins og kunnugt er, ákveðið að gerast atvinnukylfingur og stefnir að því að verða fyrsta íslenska golfkonan sem vinnur sér varanlegan sess á Evrópumótaröð kvenna. Sjá má úrslit í mótinu með því að smella HÉR:   Nándarverðlaun hlutu: 4. flöt Sigurmann Rafn Sigurmannsson GK 1,17 m 6.   flöt Heimir Þór GVG 1,13 10. flöt  Ágústa Sveinsdóttir GK 17 cm 16. flöt Gísli Sigurbergsson GK 2,28 m

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2011 | 15:50

Afmæliskylfingur dagsins: Heather Locklear – 25. september 2011

Afmæliskylfingur dagsins: Heather Locklear – 25. september 2011 Bandaríska leikkonan Heather Locklear á 50 ára afmæli í dag. Hún fæddist 25. september 1961 í Westwood, Los Angeles í Kaliforníu. Heather ólst upp í Thousand Oaks í Kaliforníu og útskrifaðist frá Newbury Park High School.  Hún er sú yngsta af 4 börnum William Robert Locklear og konu hans Diönu. Sem leikkona er Heather frægust í hlutverki Sammy Jo Carrington í Dynasty, sem Officer Stacy Sheridan í T.J. Hooker, sem Amanda Woodward í Melrose Place og sem Caitlin Moore í Spin City. Heather hefir átt í mörgum samböndum um ævina m.a. var hún með Scott Baio og var hún gift trommara Mötley Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2011 | 13:21

Frægir kylfingar: John F. Kennedy

John Fitzgerald Kennedy, JFK, fæddist 29. maí 1917 í Brookline, Massachusetts. Hann var 35. forseti Bandaríkjanna og gegndi embætti frá árinu 1961 til 22. nóvember 1963, þegar hann var skotinn til bana af óþekktri leyniskyttu, þegar hann ók í opnum bíl í gegnum Dallas í Texas. Kona hans var Jacqueline Bouvier Kennedy og saman áttu þau 2 börn, Caroline og John John. JFK hóf að spila golf sem táningur og þar sem hann var mikill íþróttamaður varð hann fljótt góður kylfingur. Hann var m.a. í golfliði Harvard þegar hann var við nám, sem busi í háskólanum fræga.  Þó Kennedy gæti oft ekki spilað golf langtímum saman vegna krónísks bakverks er Lesa meira