Tiger Woods
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 09:26

La Cava er nýi kaddý Tiger Woods

Tiger Woods hefir tilnefnt Joe La Cava, sem eitt sinn var kaddý Fred Couples og nú síðast kaddý Dustin Johnson, sem nýja manninn á pokanum hjá sér.

Tiger, sem öllum að óvörum sagði skilið við kaddýinn sinn til langs tíma, Steve Williams, í júlí s.l. mun mæta með nýja kaddýinn sinn í fyrsta sinn á Frys.com Open í San Martin Open í Kaliforníu, en mótið fer fram dagana 6.-9. október n.k.

„Fjöldi manna hafði samband við (umboðsmann Tigers), Mark (Steinberg) og mig, þ.á.m. Joe, sem lýsti áhuga á að verða kaddýinn minn,” sagði Tiger á opinberri vefsíðu sinni. (Sjá með því að smella HÉR:)

„Þetta var mikilvæg ákvörðun og ég vildi hugsa mig rækilega um. Af tillitssemi við FedExCup umspilið ákvað ég að bíða þar til þeir lykju að tala efnislega um málið. Við töluðum síðan við Joe og komumst að ákvörðun. Joe er framúrskarandi kaddý og ég hef þekkt hann í mörg ár. Ég hef persónulega séð það frábæra verk sem hann vann hjá Freddie (Couples). Ég er spenntur fyrir samstarfi okkar.”

LaCava hóf störf hjá Bandaríkjamanninum (Dustin) Johnson í júní og saman unnu þeir upphafsmót FedExCup, The Barclays, fyrir mánuði síðan.

Síðasta mót þeirra saman var Tour Championship í East Lake Golf Club í gær þar sem Johnson deildi 23. sæti með öðrum.

„Ég hlakka til að starfa með Tiger,” er haft eftir LaCava á vefsíðu Tiger. „Tiger og ég höfum verið vinir í mjög langan tíma og ég veit hvers hann er megnugur. Ég vil þakka Dustin fyrir tækifærið til þess að starfa með honum og ég óska honum ekkert nema hins besta.”

Tiger, sem er 14-faldur sigurvegari risamóta hefir ekki keppt á PGA túrnum síðan á PGA Championship í Atlanta, þar sem hann komst ekki í gegnum niðurskurð.

Hann komst ekki í FedExCup umspilið og hefir verið skugginn af yfirburða sjálfi sínu frá lokum 2009, en er að reyna að ná golfsveiflu sinni og einkalífi aftur á strik eftir að að hjúskapur hans brotlenti.