East Lake í Atlanta
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2011 | 12:47

PGA: Lögreglan skaut á mann fyrir utan East Lake

Skotið var á mann sem keyrði í gegnum vegartálma nálægt East Lake Golf Club í Atlanta meðan Tour Championship fór þar fram, en bíllinn, sem hafði verið stöðvaður ók af stað með lögreglumann hálfan inn í honum skv. dagblaðinu Atlanta Journal-Constitution.

Skv. blaðinu átti atburðurinn sér stað þegar lögreglan hafði gefið Gerald Williams merki um að stöðva bifreið sína, en hann reyndi að keyra gegnum vegartálmann u.þ.b. kl. 7 að kvöldi á lokadegi mótsins.  Williams hafði ekki heimild til að keyra á parkstæði (við klúbbhúsið) var haft eftir heimildarmönnum dagblaðsins.

Í stað þess að stöðva Saturn bifreið sína reyndi Williams að taka af stað með annan lögreglumanninn enn hálfan inn í bifreiðinni og þá skaut félagi hans til að stöðva bifreiðina.

Skv. Atlanta Journal Constitution var farið með Williams í Grady Memorial Hospital og voru áverkar hans ekki lífshættulegir né lögreglumaðurinn sem dróst með bílnum hættulega slasaður.

Williams bíður þess að vera ákærður.