
Hver er kylfingurinn Bill Haas?
Bill Haas er kylfingurinn ungi, 29 ára, sem vann sér inn $11,4 (u.þ.b. 1345 milljónir ísl. króna) í gær þegar hann sigraði á lokamóti FedExCup, Tour Championship í East Lake í Atlanta.
En hver er kylfingurinn Bill Haas?
Bill er af mikilli golffjölskyldu. Hann fæddist 24. maí 1982 í Charlotte, Norður Karólínu og ólst upp í Greer, Suður-Karólínu, sem er úthverfi Greenville. Hann er sá 3. í fjölskyldu sinni til þess að spila golf með golfliði Wake Forest háskólanum (þar sem Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, er við nám nú og spilar með kvennagolfliði skólans). Hinir tveir í fjölskyldu Bill er faðir hans Jay og föðurbróðir Jerry. Jerry varð reyndar golfþjálfari við Wake Forest. Annar frændi Bill, Bob Goalby sigraði á Mastersmótinu 1968. Bróðir Bill, Jay Jr. hefir leikið á Masters.
Pabbi Bill, Jay Haas, vann á sínum tíma NCAA háskólamótið, 9 mót á PGA-mótaröðinni frá 1978-1993 og hefir 14 sinnum sigrað á Champions Tour. Í fyrra urðu Bill og Jay fyrstu feðgar í þó nokkurn tíma til að spila samtímis á PGA (það hefir nokkrum sinnum gerst, en er afar sjaldgæft). Saman unnu þeir CVS Charity Classic mótið, árið 2004.
Bill gerðist atvinnukylfingur árið 2004. Hann var þrívegis first-time All-American, fjórum sinnum All-ACC, tvisvar sinnum ACC kylfingur ársins og nýliði ársins í ACC, 2011.
Á háskólaárum sínum vann hann 10 mót og á lokaári sínu í háskóla 2004 vann hann Haskins verðlaunin, Jack Nicklaus verðlaunin og Ben Hogan verlaunin. Hann setti líka met í NCAA í lægsta skori. Bill Haas var í Walker Cup liði Bandaríkjanna 2003, sem og í 2 Palmer Cup liðum. Bill hans varð atvinnumaður í golfi 2004.
Bill Haas var fyrst á Nationwide Tour 2005 eftir að honum tókst ekki að vinna sér inn kortið sitt 2004 á PGA Q-school. Besti árangur hans á Nationwide túrnum var 2. sætið í Scholarship America Showdown mótinu 2005.
Árið 2005 gekk Bill betur í PGA Q-school, en hann fékk fugl á síðustu 2 holunum og vann sér inn kortið sitt á PGA mótaröðina fyrir árið 2006. Hann varð 99., 104,, 104. og í 61. sæti á peningalista PGA fyrstu 4 árin á túrnum.
Bill Haas vann sinn fyrsta sigur á PGA í fyrra, 2010, á Bob Hope Classic á La Quinta í Kaliforníu. Pabbi hans vann sama mót 22 árum áður, þ.e. 1988. Aðeins viku fyrir mótið fékk Bill ráð frá föður sínum og frænda Bob Goalby um fótaburð í sveiflu, með þessum líka frábæra árangri. Bill átti 1 högg á þá Matt Kuchar, Tim Clark og Bubba Watson, sem deildu 2. sætinu.
Bill vann síðan aftur fyrir ári síðan, þ.e. í október 2010 á Viking Classic, þar sem hann átti 3 högg á Michael Annen. Hann lauk 2010 tímabilinu í 20. sæti á peningalistanum – það er nokkuð öruggt hvar á peningalistanum Bill Haas verður í ár – þetta er 200% bæting milli ára! Með sigri sínum á Tour Championship hækkaði Bill sig líka úr 45. sætinu á heimslistanum í það 20. – þ.e. er í fyrsta sinn kominn meðal 20 bestu kylfinga í heimi – heilum 30 sætum ofar en aumingja Tiger Woods.
Heimild: Wikipedia
- mars. 31. 2023 | 16:30 Gary Player þarf að „grátbiðja“ til að fá að spila á Augusta National
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Sigurbergsdóttir – 23. mars 2023
- mars. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Peter McEvoy og Davíð Arthur Friðriksson – 22. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore