Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2011 | 16:30

LET: Felicity Johnson sigraði á Lacoste Open

Það var enska stúlkan Felicity Johnson, sem stóð uppi sem sigurvegari á París International golfvellinum, hafði betur í umspili gegn hinni ítölsku Díönu Luna, sem hafði forystuna í gær. Þetta var sagan að endurtaka sig fyrir aumingja Díönu Luna því hún tapaði fyrir 11 mánuðum síðan fyrir nöfnu Felicity Johnson þ.e. Trish Johnson í umspili á sama velli. Eftir venjulegan leiktíma voru Felicity og Díana jafnar, báðar búnar að spila hringina 4 á mótinu á – 14 undir pari, samtals 274 höggum; Díana (69 68 67 70  ) og Felicity (68 70 69 67). Felicity Johnson er 24 ára frá Halesowen, nálægt Birmingham á Englandi. Hún var að vonum ánægð Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Phill Hunter – 2. október 2011

Það er Phill Hunter, golfkennari í MP Golf Academy hjá Golfklúbbnum Oddi, sem er afmæliskylfingur dagsins.  Phill er breskur og fæddist 2. október 1964.  Hann er kvæntur og á 1 strák. Phill hefir yfir 27 ára reynslu af golfkennslu. Á árunum 1983-1986 vann hann við Wath Golf Club og á árunum 1986-1988 við Grange Park Golf Club í Englandi. Hér á landi var Phill golfkennari hjá GR 1988-1991 og hjá GS 1992-1996 auk þess sem hann þjálfaði unglingalandsliðið á þessum árum. Phill og fjölskylda bjuggu síðan um 11 ára skeið í Þýskalandi þar sem hann var yfirgolfkennari við Golfclub Haus Kambach í Eschweiler.  Þar stofnaði hann H20 Golf Academy. Eftir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2011 | 10:00

Hver er kylfingurinn Alexis Thompson?

Alexis „Lexi” Thompson hlaut nú í vikunni, nánar tiltekið 30. september 2011 , aldursundanþágu til þess að mega spila á LPGA. Lexi er aðeins 16 ára og er sú yngsta sem unnið hefir mót á LPGA þ.e. Navistar Classic, sem fram fór í Alabama í síðasta mánuði. Þá var Lexi 16 ára, 7 mánaða og 8 daga gömul. En hver er þessi 16 ára kylfingur Lexi Thompson? Lexi fæddist 10. febrúar 1995 í Coral Springs í Flórída. Hún á tvo bræður Nicholas, sem er 12 árum eldri en hún og spilar á PGA og Curtis, sem spilar golf með golfliði Louisiana State University. Lexi gerðist atvinnumaður í golfi 15 ára.  Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2011 | 06:00

PGA: Nick og Na leiða fyrir lokahring JT Shriner Hospital for Children mótsins

Það eru Bandaríkjamennirnir Nick Watney og Kevin Na, sem leiða fyrir lokahring Justin Timberlake Shriner Hospital for Children mótsins. Báðir eru á -17 undir pari; á samtals 196 höggum, Nick Watney (65 67 64) og Kevin Na (67 63 66). „Ég er að reyna að einfalda allt,“ sagði Nick Watney eftir 3. hring.  „Ég hef verið að dræva vel og það hefir verið frekar auðvelt að hitta inn á flestar flatir. Ég hugsa að það sé það sem maður verður að gera til þess að gefa sjálfum sér sjéns og eins mörg tækifæri og mögulegt er. Það er það sem ég hef verið að gera fram að þessu.“ „Þessi völlur er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2011 | 20:00

13 kvenstjörnur golfsins nr. 4: Donna Caponi-Byrnes

Donna Caponi-Byrnes fæddist 29. janúar 1945 í Detroit, Michigan. Sem dóttir golfkennara byjaði Donna að spila golf 8 ára og fékk þátttökurétt á LPGA mótaröðinni, 20 ára. Það tók Donnu 4 ár að knýja fram fyrsta sigur sinn, en hún gerði það með stæl, sigraði á einu af risamótum kvennagolfsins, US Women´s Open. Hún vann með 1 höggi, eftir dramatískan lokahring, með skor upp á 69 högg, þ.á.m. fugl á lokaholunni, sem hún þurfti til sigurs. Aðeins Mickey Wright hafði sigrað á US Women´s Open tvö ár í röð, þegar Donna endurtók leikinn ári síðar, 1970 og sigraði aftur á US Women´s Open, en nú jafnaði hún einnig annað met Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2011 | 18:30

LET: Michl og Luna leiða fyrir lokahring Lacoste Open

Það eru Stefanie Michl frá Austurríki og Diana Luna frá Ítalíu sem leiða fyrir lokadag Lacoste Open í París.  Báðar eru samtals -12 undir pari, eða samtals á 204 höggum; Michl á (68 67 69) og Luna á (69 68 67). Þess mætti geta að Diana er nýsnúin aftur til keppni eftir að hafa tekið sér árs frí 2010, frá keppnisgolfi, vegna barnseigna. Í 3. sæti er Kaisa Ruuttila frá Finnlandi höggi á eftir forystunni og í 4. sæti er sú sem leiddi eftir 1. daginn,  franska stúlkan Cassandra Kirkland, 2 höggum á eftir Luna og Michl. Munur milli efstu stúlkna er mjór og spennandi að sjá hver stendur uppi Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2011 | 18:00

Evróputúrinn: Hoey trónir á toppnum á 3. degi Alfred Dunhill-mótsins

Það er frábært skorið hjá Norður-Íranum Michael Hoey;  66 högg á hverjum hinna þriggja golfvalla sem spilað er á, á Alfred Dunhill mótinu: St. Andrews, Carnoustie og Kingsbarns. Frábær stöðugleiki og árangur hjá hinum 32 ára Hoey. Í 2. sæti er landi hans Graeme McDowell, sem er 3 höggum á eftir Michael, eða samtals eða á 201 höggi (67 67 67). Í 3. sæti er síðan Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku, sem virðist kunna einstaklega vel við sig í Skotlandi, höggi á eftir McDowell. Fjórða sætinu deila síðan 7 kylfingar, m.a. enn einn Norður-Írinn, nr. 3 á heimslistanum:  Rory McIlroy og sá sem leiddi mótið í gær Tommy Fleetwood, en hann Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2011 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þórdís Geirsdóttir – 1. október 2011

Það er Þórdís Geirsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins en hún fæddist í Reykjavík 1. október 1965.  Þórdís er gift Guðbrandi Sigurbergssyni og á 3 syni, Sigurberg, Geir og Þráinn. Guðbrandur og Sigurberg eru líkt og Þórdís í GK og spila golf. Þórdís var aðeins 11 ára þegar hún byrjaði í golfi og strax 1976 gekk hún í Golfklúbbinn Keili í Hafnarfirði, sem hún hefir síðan verið í alla tíð.  Þórdís segist hafa elt bræður sína, Lúðvík og Hörð út á golfvöll og ekki leið á löngu þar til hún hnuplaði kylfum frá þeim og fór að æfa sig. Það var stór og skemmtilegur hópur krakka í Keili á þessum árum, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2011 | 14:30

Sólskinstúrinn: Hennie Otto sigraði á Platinum Classic

Það var Suður-Afríkubúinn Hennie Otto, sem sigraði á Platinum Classic mótinu sem lauk í dag í MooiNooi Golf Club (North West). Mótið stóð frá 29. september – 1. október. Hennie Otto lauk leik á -17 undir pari, þ.e. samtals 199 höggum (69 63 67).  En hver er svo sigurvegarinn Hennie Otto í stuttu máli?  Hennie heitir fullu nafni Hendrik Johannes Otto, en er alltaf kallaður Hennie. Hann fæddist 25. júní 1976 í Boksburg, Suður-Afríku og er því 35 ára. Hennie gerðist atvinnukylfingur 1998 og hefir á ferli sínum sigrað 13 sinnum, þarf af 11 sinnum á Sólskinstúrnum, 1 sinni á Evrópumótaröðinni (þ.e. á Opna ítalska, 11. maí 2008) og 1 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2011 | 09:00

PGA: Viðtal við Hunter Haas eftir hring upp á 61 högg í Las Vegas

Í ár hefir röð nánast óþekktra kylfinga stigið fram á sjónarsviðið og staðið sig einstaklega vel á mótum. Nöfn eins og Keegan Bradley, Bill Haas og Webb Simpson hringdu þar til fyrir skemmstu engum bjöllum hjá hinum almenna golfunnanda, jafnvel þeim sem fylgist ávallt vel með öllu. Og nú er enn einn PGA kylfingurinn, Bandaríkjamaðurinn Hunter Haas að slá í gegn.  Hann átti lægsta skor á 2. hring Justin Timberlake for Shriner Hospital for Children Open á TPC Sumerlin í Las Vegas, Nevada, í síðasta mánuði, þ.e. í gær, 30. september 2011. Í brennandi hitanum í Las Vegas þar sem hann sagðist hafa drukkið um 300 ml á vatni við Lesa meira