Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2011 | 16:00

Tiger ekki lengur meðal 50 bestu kylfinga heims

LONDON (AP) – Tiger Woods er dottinn út af topp 50 á heimslistanum í fyrsta skipti í næstum 15 ár. Tiger sem ekki hefir sigrað á móti í næstum 2 ár, var vís til að falla af topp 50 þegar Louis Oosthuizen deildi 5. sætinu með 2 öðrum á Dunhill Links Championship. Í dag lýkur því 778 vikna veru Tigers á topp-50 í röð og leita þarf aftur til 13. október 1996, þegar Tiger var í 61. sæti og þar með neðar á listanum en hann er í dag. (Tiger er í 51. sæti á nýja heimslistanum, sem birtist í dag. ) Tiger sem hefir ekki spilað keppnisgolf frá því að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2011 | 14:00

Fallegir haustlitir, sólskin og gott golfveður sunnanlands í dag

Dagurinn í dag, 3. október , er eflaust einn með þeim betri hér sunnanland til golfleiks í haust.  Sólin skein og fallegu 18 holu golfvellir höfuðborgarsvæðisins skörtuðu sínu fegursta haustskrúð í dag. Í svona veðri er hvergi betra að vera en heima hjá sér; fjarri t.d. hitasvækju sem nú gengur yfir mið-og suðurhluta Evrópu og rigningu sem, sem betur fer er farin að þokast austur á bóginn og af landinu. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru af 5 golfvöllum í dag (GK, GKG, GKJ, GO og GR).      

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Fred Couples – 3. október 2011

Frederick Steven Couples fæddist í dag fyrir 52 árum, í Seattle, Washington.  Fred gerðist atvinnumaður í golfi árið 1980. Á ferli sínum sem atvinnukylfingur hefir hann sigrað í 52 skipti, þ.á.m. 14 sinnum á PGA túrnum, 3 á Evrópumótaröðinni og í 5 skipti á Champions Tour. Einn frægasti sigur Fred er þegar hann vann Masters 1992, en það er eini risamótssigur hans, þó hann hafi orðið ofarlega í öðrum risamótum (T-3 á US Open 1991; T-3 á Opna breska 1991 og 2005 og í 2. sæti á PGA Championship 1990). Couples hefir verið í fréttunum að undanförnu vegna vals hans, sem fyrirliða liðs Bandaríkjanna á 2 kylfingum, sem hann á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2011 | 10:00

Evróputúrinn: Michael Hoey hlakkar til að spila í Dubai – fer upp um 173 sæti á heimslistanum

Norður-Írinn Michael Hoey, sem sigraði svo glæsilega á Alfred Dunhill mótinu í Skotlandi nú um helgina vann sér ekki aðeins inn 100 milljón íslenskra króna heldur fær einnig undanþágu til þess að spila á lokamóti Evrópumótaraðarinnar, Dubai World Championship. Við sigurinn fór Hoey nefnilega úr 83. sætinu á The Race to Dubai í 15. sætið. Á Dubai World Championship er spilað um $ 7,5 milljóna bónuspott (u.þ.b. 840 milljónir íslenskra króna) og því eftirsóknarvert að fá keppnisrétt á mótinu. „Það er ótrúlegt hvað það að sigra á stóru móti getur gert fyrir mann,” sagði Hoey.  „Að sigra á Dunhill Links mun opna margar dyr fyrir mig og ég fæ að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2011 | 08:00

Ólafía Þórunn keppir á Windy City Collegiate Championship, sem hefst í dag 3. okt.

Í dag hefst Windy City Collegiate Championship, í bandaríska háskólagolfinu.  Þátttakendur eru lið 15 háskóla og 81 einstaklingur. Meðal keppenda er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og lið hennar Wake Forest.  Ólafía Þórunn er í 3. hollinu, sem fer út á mótinu, sem ætti að vera gott. Hún fer út kl. 12:48 að íslenskum tíma. Spilað er í Glen View Club í Illinois, en sjá má heimasíðu klúbbsins með því að smella HÉR:  Fylgjast má með gengi Ólafíu Þórunnar og Wake Forest HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2011 | 07:00

Valdís Þóra spilar á Johnny Imes Invitational, sem hefst í dag, mánudaginn 3. okt., í Missouri

Í dag hefst Johnnie Imes Invitational mótið, í bandaríska háskólagolfinu. Þátttakendur eru lið 15 háskóla og 87 einstaklingar. Meðal keppenda er Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og lið hennar Texas State. Valdís Þóra á rástíma kl. 13:00 að íslenskum tíma. Spilað er á The Club Old Hawthorne i Columbía, Missouri. Sjá má myndir frá The Old Hawthorne golfvellinum með því að smella HÉR:  Fylgjast má með gengi Valdísar Þóru og Texas State HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2011 | 23:00

PGA: Kevin Na sigraði á Justin Timberlake mótinu

Það var Kevin Na sem reyndist sterkari á lokasprettinum en Nick Watney, sem varð í 2. sæti.  Na lauk keppni á – 23 undir pari, samtals 261 höggi  (67 63 66 65). Aðeins 2 höggum munaði á Na og Nick. Nick Watney spilaði á – 21 undir pari, 263 höggum (65 67 64 67). Þriðja sætinu deildu Bandaríkjamennirnir Tommy Gainey og Paul Goydon, báðir á samtals 266 höggum. Fimmta sætinu deildu síðan 5 kylfingar:  Bandaríkjamennirnir Tim Herron og Spencer Levin, Jhonattan Vegas frá Venezuela, sem nokkrum sinnum var búinn að leiða mótið, Carl Petterson frá Svíþjóð og Kanadamaðurinn David Hearn, allir á 267 höggum, 6 höggum á eftir Na. Sigurvegari Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2011 | 20:30

13 kvenstjörnur golfsins nr. 5: Sandra Post

Sandra Post er fyrsti kanadíski atvinnukylfingurinn til þess að spila á LPGA mótaröðinni. Sandra fæddist 4. júní 1948 í Oakville, Ontario. Hún lærði að spila golf nálægt heimili sínu í Tafalgar Golf Club og þótti snemma skara framúr. Hún var farin að keppa í mótum kringum Ontario 13 ára gömul. Hún vann m.a. Ontario og Canadian Junior Girls Championships þrívegis hvort mót. Sandra fór ekki í háskóla en gerðist þess í stað atvinnumaður í golfi vorið 1968, 19 ára að aldri og fékk þegar inngöngu á LPGA. Á nýliðaári sínu varð Sandra yngsti kylfingur þess tíma til þess að sigra á risamóti, þ.e. LPGA Championship. Sandra lenti í umspili við Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2011 | 19:16

Ólafur Loftsson varð í 6. sæti á Rod Myers Invitational

Ólafur Björn Loftsson, NK og Charlotte, deildi 6. sætinu með 3 öðrum á Rod Myers Invitational í bandaríska háskólagolfinu. Mótið fór fram í Duke Golf Club í Durham í Norður-Karólínu. Þetta var 2 daga mót (fór fram 1.-2. október þ.e. nú um helgina) og spilaðir voru 3 hringir. Þátttakendur voru 63 einstaklingar og 11 háskólalið. Ólafur spilaði hringina þrjá á +1 yfir pari, samtals 217 höggum (72 73 72). Glæsilegt! Heimalið Duke var í 1. sæti í liðakeppninni en lið Charlotte í 3. sæti. Til þess að sjá öll úrslit smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2011 | 18:30

Evróputúrinn: Michael Hoey stóð uppi sem sigurvegari í Skotlandi

Michael Hoey sigraði Alfred Dunhill Links Championship nú fyrir skemmstu.  Hoey, sem byrjaði vikuna í 271. sæti á heimslistanum spilaði lokahringinn á 68 höggum og lauk keppni á -22 undir pari með samtals skor upp á 266 högg (66 66 66 68).  Hann tók með sér verðlaunatékka upp á € 588.148 (97 milljónir íslenskra króna). Rory McIlroy landi Hoey varð í 2. sæti 2 höggum á eftir frábæran lokahring upp á 65 högg og enn einn Norður-Írinn, Graeme McDowell deildi 3. sætinu með Skotanum George Murray. „Ég er ekki enn búinn að ná þessu og mun ekki gera það um stund” viðurkenndi Hoey. „Þetta (að sigra) hefir tekið langan tíma Lesa meira