Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2011 | 17:00

GR: Grímur og Óskar léku best í Opna Under Armour

Opna Under Armour mótið fór fram í gær, sunnudaginn 2. október 2011 og er það þriðja mótið í styrktarmótaröð GR. Mótið fór fram á Korpúlfsstaðavelli. Þátttakendur fengu ekta íslenskt haustveður þar sem skiptust á skin og skúrir. Alls léku 68 kylfingar í mótinu.
Helstu úrslit urðu:
Forgafarflokkur 0-8,4

1.sæti Grímur Þórisson  GÓ, 34 punktar (14+20)
2.sæti Eyþór Ágúst Kristjánsson GOB 34 punktar (15+19)
3.sæti Leifur Kristjánsson GR 33 punktar


Forgjafarflokkur 8,5 og hærra

1.sæti Óskar Kristjánsson GR 39 punktar
2.sæti Guðmundur Hreiðarsson GL 37 punktar
3.sæti Ágúst Þorsteinsson NK 36 punktar


Næstur holu í upphafshöggi á:

3. braut – Reynir Ámundason GVS – 7,75m
6. braut – Leifur Kristjánsson GR – 2,23m
9. braut – Ágúst Þorsteinsson NK – 4,03m (gjafabréf)
13. braut – Davíð Örn Kjartansson GKG – 3,61m
16. braut – Steingrímur Gautur Pétursson NK – 6,37m

Heimild: grgolf.is