Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2011 | 21:00

13 kvenstjörnur golfsins nr. 13: Grace Park

Grace Park alías Park Ji-eun (á kóreönsku: 박지은) fæddist 6. mars 1979 í Seoul í Suður-Kóreu og er því 32 ára. Hún er suður-kóreanskur atvinnukylfingur, sem spilar á LPGA mótaröðinni. Hún á að baki 12 sigra á ferli sínum sem atvinnumaður í golfi, 6 á LPGA, 5 á Duramed og 1 annan sigur. Hún vann 2004 Kraft Nabisco risamótið. Grace fluttist til Hawaii þegar hún var 12 ára og þaðan til Arízóna. Hún hlaut  Dial Award sem topp náms- og íþróttamaður í menntaskóla í Bandaríkjunum, árið 1996. Hún spilaði með golfliði Arizona State University og útskrifaðist frá Ewha Womans University árið 2003. Áhugamannsferill Grace er framúrskarandi hún var m.a. Rolex Junior Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2011 | 19:00

Hvað er heitt og hvað afleitt í golfinu?

Alan Shipnuck aðalpenni Sports Illustrated tekur hér saman lista yfir það sem honum finnst heitt og hvað afleitt í golfheiminum eftir mót helgarinnar: HEITT 1. Yani. Alan finnst Yani Tseng sameina nákvæmni Anniku, sprengikraft Lorenu og hráa íþróttamennsku Karrie (Webb).  Tseng mun eiga golfið  næsta áratuginn … nema Lexi fái að hafa síðasta orðið, að mati Alans. 2. Haustmótaröð PGA. Frys.com Open var frábært mót og atlaga Webb Simpson að efsta sætinu á peningalistanum breytir Sea Island úr litlu, heillandi móti í eitthvað sem skiptir meira máli.  Nú ef við gætum bara séð Tiger spila í Disney. 3. Rickie. Hver sigur er  STÓR  þegar maður er metnaðargjarn 22 ára kylfingur sem er að reyna að rísa Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2011 | 17:00

Ungi ítalski ástríðukylfingurinn: Matteo Manassero – V. hluti

Hér birtist V. og síðasti hluti þýðingar á viðtali við Matteo, sem birtist í júní blaði Golf World: Matteo, þjálfarinn hans og golfkennari eru mjög samrýmdir, þeir deila máltíðum og sögum. Matteo segir að hann njóti þess að ferðast um heiminn og er ekkert matvandur nema hvað hann er svolítið veikur fyrir sushi. Hins vegar var t.d. aldrei breytt út af venjunni á velli/íþróttasal/veitingastaðar/svefnvenju ritmanum í heimsmeistarakeppninni í holukeppni í vor og er það sama upp á teningnum fyrir öll stærstu mót Matteo. „Mér líkar þannig líf“ segir Matteo, sem aldrei hefir átt kærustu. „Þetta er það sem ég vil gera. Að æfa allan daginn, fara í ræktina, fá nudd, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2011 | 13:30

Bandaríska háskólagolfið: Berglind Björnsdóttir, GR og Ingunn Gunnarsdóttir, GKG taka þátt í Lady Pirate Intercollegiate.

Í dag og í gær fer fram í Greenville Country Club, í Norður-Karólínu,  tveggja daga mót í bandaríska háskólagolfinu: Lady Pirate Intercollegiate. Í mótinu taka þátt Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og Berglind Björnsdóttir, GR. Þátttakendur eru 103 frá 20 háskólum. Í gær voru spilaðir 2 hringir og var skor Ingunnar (76 81) og Berglindar (82 77).  Ingunn er í 71. sæti fyrir lokahringinn, sem spilaður verður í dag og Berglind í 80. sæti. UNCG háskólinn sem Berglind er í er í 2. sæti en Furman háskóli Ingunnar er í 6. sæti í liðakeppninni. Til þess að fygjast með stöðunni í mótinu smellið hér: LADY PIRATE INTERCOLLEGIATE  

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2011 | 13:30

Bandaríska háskólagolfið: Kristján Þór Einarsson á glæsilegum 65 höggum! Efstur á Harold Funston Invitational

Kristján Þór Einarsson, GKJ og Nicholls kom inn á glæsilegum 65 höggum á Harold Funston Invitational mótinu í Texas í gær og er þetta besti árangur hans í háskólagolfinu vestra. Mótið fer fram dagana 10.-11. október.  Spila átti 2 hringi á fyrri degi þessa 2 daga móts, en vegna mikilla rigninga í Texas, var 2. hring aflýst. Þátttakendur eru 60 frá 12 háskólum og er Nicholls háskóli Kristjáns í 3. sæti. Kristján er í efsta sæti mótsins eftir 1. dag. Glæsilegt! Smellið hér til þess að sjá stöðuna í mótinu: HAROLD FUNSTAL INVITATIONAL

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2011 | 12:30

Afmæliskylfingar dagsins: Richard Burton, Fred Daly, Valgerður Bjarna, Michelle Wie og Heiða Guðna – 11. október 2011

Afmæliskylfingar dagsins eru þó nokkrir: Bandaríski kylfingurinn Michelle Wie, sem flestum er að góðu kunn og Heiða Guðnadóttir, GKJ eiga sama afmælisdag eru báðar 22 ára í dag. Michelle spilar á LPGA og hefir tvívegis unnið á þeirri mótaröð: Lorena Ocha Invitational 15. nóvember 2009 og CN Canadian Women´s Open, 29. ágúst 2010. Hún nemur sem stendur í háskóla fyrirmyndar sinnar í golfinu Tiger Woods, Stanford University í Kaliforníu, en má ekki spila með golfliði skólans vegna þess að hún er atvinnumaður. Wie gerðist atvinnumaður aðeins 15 ára. Skemmst er að minnast að hún var í Solheim Cup liði Bandaríkjanna, sem tapaði fyrir Evrópu nú í s.l. mánuði í Killeen Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2011 | 11:00

Kvikmynd um unglingsár Seve Ballesteros væntanleg

Seve Ballesteros var einn af bestu kylfingum okkar tíma, en mikið af ungu kynslóðinni í dag veit ekkert um Spánverjann með sterka persónuleikann nema kannski af myndböndum og bókum. Fæstir vita nokkuð um uppvaxtarár Seve, sem ólst upp í sárustu fátækt, kvæntist inn í eina ríkustu ætt Spánar, vann hvern sigurinn á fætur öðrum í golfheiminum þ.á.m. 5 risamót, kom  Spán ef ekki Evrópu á blað í golfinu, skildi við konu sína, þjáðist af bakverk, sem varð til þess að hann dró úr keppnisgolfinu og  barðist að lokum (frá árinu 2008) við heilaæxli, sem bar hann ofurliði 7. maí á þessu ári. Nú hefir hinn margverðlaunaði Stephen Evans hafið undirbúning Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2011 | 21:00

13 kvenstjörnur golfsins nr. 12: Se Ri Pak

Se Ri Pak (á kóreönsku: 박세리, einnig 朴世莉) fæddist 28. september 1977 í Daejeon í Kóreu. Hún fékk inngöngu í frægðarhöll kylfinga í nóvember 2007. Se Ri gerðist atvinnumaður í golfi 1996, ári áður en hún fluttist til Bandaríkjanna tæp 20 ára að aldri. Árin 1996 og 1997 vann hún 6 mót á kóreönsku LPGA mótaröðinni. Se Ri hlaut fullan þátttökurétt á LPGA árið 1998, og vann strax 2 risamót fyrsta árið sitt: McDonalds LPGA Championship og US Women´s Open. Tvítug að aldi varð hún yngsti sigurvegari US Women´s Open. Se Ri vann 20 holu umspil fyrir sigrinum – en þetta mót – með 92 holum spiluðum – er lengsta Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2011 | 18:30

Lee Westwood vill risamót í Asíu

Nr. 2 á heimslistanum, Lee Westwood , telur að það ætti að búa til nýtt risamót í karlagolfinu í Asíu eða á Kyrrahafssvæðinu. Lee, 38 ára, stakk upp á þessu, þó honum finnist mikið um sögu núverandi 4 risamótanna. „Mér líkar við hefðina í kringum risamótin. Ég hugsa að í karlagolfinu sé nokkuð verið að gera réttu hlutina, þó mér myndi líka að sjá annað mót einhvers staðar í heiminum. Einhvers staðar á borð við Asíu eða Ástralíu,“ sagði Westwood, sem mun spila í World Golf Championships-HSBC Champions — sem er eina heimsklassa mót Asíu — en mótið verður haldið í Shaghaí í nóvember. HSBC Champions mótinu var bætt við World Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2011 | 12:30

Afmæliskylfingur dagsins: Johann Edfors – 10. október 2011

Afmæliskylfingur dagsins Johan Edfors frá Svíþjóð. Johan fæddist í Varberg 10. október 1975 og er því 36 ára í dag.  Hann spilar aðallega á Evrópumótaröðinni í dag. Á háskólaárunum spilaði Edfors 2 ár með University of Texas San Antonio, sem er í 1. deild og það á golfstyrk.  Þjálfari hans var Barry Denton. Edfors gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 14 árum, þ.e. 1997 og var í mörg ár á Challenge Tour, þar sem hann hefir sigrað tvívegis: Stanbic Zambia Open, 9. mars 2003 og Fortis Challenge Open 25. maí 2003. Hann rétt missti af því að halda kortinu sínu 2004 en endurheimti það í Q-school 2005. Árið 2006, nánar tiltekið Lesa meira