Afmæliskylfingur dagsins: Ernie Els – 17. október 2011
Einhver vinsælasti kylfingur okkar tíma, Ernie Els, maðurinn með mjúku sveifluna á afmæli í dag – er 42 ára. Ernie er oft uppnefndur „The Big Easy“ vegna hæðar sinnar, en hann er með hávaxnari kylfingum á túrnum, 1,91 m á hæð. Ernie gerðist atvinnumaður í golfi 1989 og hefir á löngum og farsælum atvinnumannsferli sínum sigrað 64 sinnum, þ.á.m. 18 sinnum á PGA, 26 sinnum á Evróputúrnum, 1 sinni á japanska PGA, 16 sinnum á Sólskinstúrnum og 14 sinnum í öðrum mótum. Þar af hefir Ernie þrívegis unnið risamót; þ.e. 1994 og 1997 US Open og 2002 á Opna breska. Ernie var nú í ár, 2011, tekinn í frægðarhöll kylfinga. Lesa meira
Champions Tour: Fred Couples sigraði á AT&T
Fred Couples sigraði á AT&T Championship, þegar hann lauk leik í gær á 66 höggum og sigraði þetta 3 hringja mót með 7 högga mun – stærsta mun á þessari mótaröð 50+ Samtals var Couples á -23 undi rpari spilaði fyrri hringi á 65 62 á TPC San Antonio’s Canyon golfvellinum. Þetta er 2. sigur Couples á keppnistímabilinu. „Ég ef ekki verið með 7 högga forystu síðan ’92 eða ’90 eða hvenær í fjáranum sem þetta var nú,“ sagði Couples, sem tíaði upp með 7 högga forystu í gær. „Ég mun líklega aldrei fá aðra eins forystu. Þetta er skrítin tilfinning og þetta var bara stresslaust (á fyrri 9). En síðan Lesa meira
Lee Westwood sigraði í Shui On Land China Golf Challenge
Nokkuð sérstakt mót fór fram í Kína, þar sem 3 af þekktustu kylfingum heims: Lee Westwood, Rory McIlroy og Ian Poulter kepptu við þekktasta kylfing Kína: Liang Wen-chong. Spilaðar voru 18 bestu golfholur á völlum í Kína. Var m.a. ferðast 5600 km leið til þess að komast milli valla. Að loknum 18 spiluðum holum voru Lee Westwood og Liang Wen-chong jafnir og kom því til umspils milli þeirra, sem Westwood vann. Mótið var gert fyrir kínverska sjónvarpið en golf er vaxandi íþróttagrein í þessu fjölmennasta ríki veraldar, en til marks um það er að gífurleg uppbygging golfvalla hefir átt sér stað í Kína á undanförnum árum. „Ég held að mér Lesa meira
Donald Trump hefir áhuga á Doral í Miami
Donald Trump hefir lýst áhuga sínum á að kaupa Doral Golf Resort & Spa golfvallarkomplex-inn í Miami, en þar er m.a. „Bláa skrímslið” (ens. Blue Monster) þar sem hið árlega WGC–Cadillac Championship fer fram. Doral er í skiptameðferð og hefir Trump boðið $ 170 milljónir í golfvallarsvæðið fræga. Það verður fróðlegt að sjá hvort Doral verður eitt af Trump golfvallarsvæðunum í framtíðinni – en Doral í Miami er mörgum kært og líklegt að fleiri tilboð berist. Trump er eigandi fjölda golfvalla um allan heim og hefir fjármagnað og staðið að byggingu fjölmargra annarra. Hann færði m.a. út kvíarnar í karabíska hafið með því að byggja Raffles á eyjunni Canouan sem Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Ólafur Loftsson spilaði á Windon Memorial
Í dag er spilaður seinni hluti Windon Memorial mótsins, sem hófst í gær í Evanston Golf Club í Skokie, Illinois. Meðal liða 17 háskóla, sem þátt taka í mótinu er lið Ólafs Loftssonar, Charlotte háskóli. Charlotte var í 5. sæti eftir gærdaginn. Ólafur spilaði á 75 höggum í gær og þegar tvær holur eru eftir óspilaðar var hann á +1 yfir pari, búinn að fá 3 skolla og 2 fugla, þegar mótinu var frestað vegna myrkurs. Við seinni hringinn lyftir Ólafur sér úr T-68 sætinu, sem hann var í, í gær í T-50, en hann á enn eftir að klára 2 holur. Þátttakendur í mótinu eru 90. Spáð er góðu Lesa meira
Greg Norman: „Hefði ekki valið Tiger í Forsetabikarsliðið“
Greg Norman alías „hvíti hákarlinn” hefir ekki mikið álit á hvernig Tiger Woods er að spila þessa dagana og segir að hann hefði ekki valið hann til þess að spila í Forsetabikarskeppninni. Greg sem sagði í nýlegu tímaritsviðtali að hann hefði enga trú á að Tiger myndi sigra annað risamót sagði við Fort Myers (Fla.) News-Press að sigurvegarinn á PGA Championship, Keegan Bradley, hefði verið rökréttara val fyrir fyrirliða Bandaríkjanna, Fred Couples. Greg er fyrirliði alþjóðaliðsins, sem keppir í Forsetabikarskeppninni, nákvæmlega eftir mánuð þ.e. dagana 17.-20. nóvember í Royal Melbourne.„Ég get skilið (hvaða aðdráttarafl) nafnið Tiger Woods hefir og söguna um hvað hann hefir gert á golfvellinum,” sagði Greg Norman. Lesa meira
Wie styður Lexi: „Hún hefir hæfileikana til þess að keppa sem atvinnumaður”
Nýjasta viðbót LPGA, Lexi Thompson hefir það sem þarf til þess að keppa meðal atvinnumanna, sagði fyrrverandi táningsundrið Michelle Wie fyrr í dag (mánudaginn 17. október 2011). Hin 16 ára Lexi mun verða yngsti keppandinn á túrnum á næsta ári og Wie, sem gerðist atvinnumaður í golfi stuttu eftir 16 ára afmæli sitt 2005, sem vakti gífurlegt fjölmiðlafár og flóðbylgju styrkja, styður við bakið á henni (Lexi). (Michelle) Wie, nú 22 ára, viðurkenndi að erfitt hefði verið að takast á við breytingarnar frá því að koma úr tiltölulega afsöppuðu áhugamannaumhverfi, en staðhæfði að Lexi myndi takast á við þær á skilvirkan máta. „Ég hugsa að það verði í lagi með Lesa meira
GSG: Úrslit í Vetrarmóti nr. 1
Nú á sunnudaginn fór fram á Kirkjubólsvelli þeirra Sandgerðinga 1. mótið í Vetrarmótaröð GSG. Það voru 43 skráðir til leiks og luku 39 keppni, þar af 2 konur. Alltaf er jafngaman að koma í Sandgerði og nýbakaðar vöfflur eða súpa voru innifalin í mótsgjöldum, sem var vel þegið eftir heldur kaldan og vindasaman hring. Úrslit urðu eftirfarandi: Höggleikur: 1. sæti Örn Ævar Hjartarson, GS, 72 högg 2. sæti Þór Ríkharðsson, GSG, 75 högg 3. sæti Hafþór Barði Birgisson, GSG, 77 högg Punktakeppni: 1. sæti Þór Ríkharðsson, GSG, 34 pkt. 2. sæti Hafþór Barði Birgisson, GSG, 34 pkt. 3. sæti Örn Ævar Hjartarson, GS, 32 pkt. 4. sæti Hafþór Kristjánsson, GK, Lesa meira
GS: Úrslit á Ecco haustmótaröð GS nr. 2
Í Leirunni fór í gær, sunnudaginn 16. október, fram 2. mótið í Ecco haustmótaröð GS. Þátttakendur voru 66, þar af 2 konur og létu þeir kulda og nokkurn vind ekki á sig fá og var skor almennt fremur gott. Úrslit urðu eftirfarandi: Höggleikur: 1. sæti Einar Haukur Óskarsson, GOB, 70 högg 2. sæti Helgi Dan Steinsson, GL, 75 högg 3. sæti Gunnar Árnason, GKG, 77 högg 4. sæti Björgvin Sigmundsson, GS, 77 högg 5. sæti Björn Ragnar Mortens, GOB, 77 högg Punktakeppni: 1. sæti Sighvatur Dýri Guðmundsson, GKG, 40 pkt. 2. sæti Björn Ragnar Mortens, GOB, 40 pkt. 3. sæti Gunnar Árnason, GKG, 39 pkt. 4. sæti Stefán S. Lesa meira
Sólskinstúrinn: Doug McGuigan sigraði á Zambía Open
Það voru Doug McGuigan sem fyrir skemmstu varð í 1. sæti á úrtökumóti í Portúgal fyrir Evrópumótaröðina og Jean Hugo, sem voru efstir og jafnir eftir hefðbundna 4 hringi á Zambía Open. Hvor um sig var á -16 undir pari, 272 höggum; Doug (69 68 66 69) og Jean (70 66 69 67). Það kom því til æsispennandi umspils milli þeirra og voru úrslit ekki ljós fyrr en á 5. holu umspils, þar sem Doug hafði betur. Í 3. sæti varð Svisslendingurinn Robert Wiederkehr á -13 undir pari; í 4. sæti varð Bradford Vaughan á -11 undir pari og í 5. sæti varð Allan Versfeld á -9 undir pari. Til Lesa meira








