Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2011 | 20:00

Keegan og Rory efstir á móti risameistaranna

Í dag hófst í Bermúda árlegt mót sigurvegara  risamótanna árið 2011, Grand Slam. Í ár eru það Charl Schwarzel frá Suður-Afríku, sem vann Masters; Rory McIlroy, frá Norður-Írlandi, sem vann Opna bandaríska; Darren Clarke, frá Norður-Írlandi, sem vann Opna breska og Bandaríkjamaðurinn Keegan Bradley, sem vann PGA meistaramótið, sem etja kappi. Eftir fyrsta dag mótsins eru sigurvegari Opna bandaríska og PGA meistaramótsins, sem leiða en báðir komu inn á 67 höggum í dag.  Rory og Keegan hafa afgerandi forystu (báðir sem fyrr segir á 67 höggum), því Charl kom inn á 74 höggum og Darren er á 77 höggum og verður því erfitt fyrir síðarnefndu tvo að vinna upp 7-10 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2011 | 18:00

Nýr „fljótandi” golfvöllur á Maldíveyjum – komist milli teiga um neðansjávarglergöng

Maldíveyjar eru klasi baugeyja í Indlandshafi, suð-suðvestur af Indlandsskaga. Baugarnir eða hringrifin eru 26 talsins með 1.196 kóraleyjum. Mannfjöldinn á eyjunum er svipaður og hér á Íslandi um 300.000 og opinbert tungumál er divehí. Maldíveyjar komust í fréttir fyrir nokkru vegna þess að þær eru í mikilli hættu að sökkva í sæ.  Eyjarnar eru vinsæll áfangastaður brúðkaupsferðamanna, enda hvítar draumastrendur, með djúpbláu hafi og fallegum pálmatrjám, sem mæta hjónunum nýbökuðu, sem öðrum ferðamönnum. Nokkuð sem manni dreymir um á norðlægari slóðum þegar kólnar í veðri og golfvellir loka hverjir af öðrum. Til þess að mæta því að hitabeltisdraumurinn sökkvi í sæ hefir stjórn eyjanna ákveðið að verja $ 500.000,- til Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2011 | 17:00

LPGA: Yani Tseng kylfingur ársins 2011

Röð svartra Audi bíla í lögreglufylgd stöðvaði umferð í mannmergðinni á götum Taipei, þegar nr. 1 í heiminum Yani Tseng var ekið á blaðamannafund fyrsta Sunrise LPGA Championship mótsins (sem hefst nú á fimmtudaginn í heimalandi Yani, Taíwan).  Með Taipei 101 – heimsins hæstu byggingu – í bakrunni þá héldu Yani og vinir hennar Suzann Pettersen og Na Yeon Choi ræður á fundi sem vafalaust var best sótti blaðamannafundur LPGA á árinu. Suzann Pettersen, Yani Tseng og Na Yeon Choi héldu ræður sínar fyrir framan mikinn mannfjölda, sem safnast hafði saman á blaðamannafundinum. Það var vel við hæfi að framkvæmdastjóri LPGA, Mike Whan tilkynnti við þetta tækifæri að Yani hefði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2011 | 16:00

Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi var í 1. sæti eftir 1. dag á Will Wilson mótinu – spilaði á 68 höggum!

Golflið Belmont Abbey, háskóla Arnórs Inga Finnbjörnsson, GR, Íslandsmeistarans okkar í holukeppni, tekur þátt í Will Wilson Tanglewood Intercollegiate mótinu, sem stendur dagana 16.-18. október í Clemmons, Norður-Karólínu. Síðasti hringurinn verður spilaður í dag. Eftir fyrsta hringinn var Arnór Ingi á glæsilegu skori 68 höggum, en náði ekki að fylgja því nægilega vel eftir í gær þegar hann spilaði á 77 höggum. Verið er að spila 3. og lokahring Will Wilson mótsins í dag og mun Golf 1 birta úrslitafréttina síðar. Eftir tvo hringi er golflið Belmont Abbey háskólans í 5. sæti.

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2011 | 14:00

Adam Hunter lést úr hvítblæði

Hinn leiðandi skoski golfþjálfari, Adam Hunter dó úr hvítblæði aðeins 48 að aldri, s.l. föstudag í Beatson Centre í Glasgow. Adam greindist með sjúkdóminn fyrir 2 árum.  Það var Adam, sem var þjálfari Paul Lawrie, þegar sá vann Opna breska 1999.  Adam var m.a. í 6 ár þjálfari hjá Scottish Academy og var að hlutastarfi aðalþjálfari skoska landsliðsins undir 16 ára. Douglas Connon hjá skoska golfsambandinu sagði m.a.: „Ótímabær dauði Adams skilur eftir sig stórt skarð í golfþjálfun. Adam var hreinn og beinn og fyrirmynd öllum hvernig hann varði lífi sínu. Ég er sorgmæddur þar sem hann var vinur minn. Allar hugsanir okkar eru með yndislegri og góðri eiginkonu hans Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rafa Echenique – 18. október 2011

Rafael Echenique fæddist í San Luis, Argentínu 18. október 1980 og er því 31 ára í dag. Hann var efstur áhugamanna í Argentínu 1997/1998 en gerðist atvinnumaður í golfi 1999. Rafa fór 4 sinnum í gegnum Q-school til þess að hljóta kortið sitt á Evróputúrnum, en hlaut það ekki fyrr en árið 2006 eftir að hafa lent í 7. sæti á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour) Hann sigraði m.a. það ár í Telia Challenge í Waxholm í Svíþjóð og varð í 2. sæti á Apulia San Domenico Grand Final.  Seinna þetta ár vann hann stærsta sigur sinn á ferlinum, Opna argentínska á heimavelli. Á 1. ári sínu á Evrópumótaröðinni varð Rafa í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2011 | 10:00

Kvikmyndin „You´ve been Trumped“ – um byggingu Donald Trump á golfvelli í Skotlandi

Hér á Golf 1 var í gær frétt um að Donald Trump hefði gert tilboð í Doral golfvallarsvæðið í Miami, Flórída, en það er sem stendur í skiptameðferð. Þegar þessi fasteignaauðjöfur og golffíkill (Trump er með einsstafs tölu í forgjöf) gengur í það að kaupa eða byggja golfvelli er það oft á tíðum umdeilt. Svo er einnig um Doral og nokkuð víst að nokkrir auðmenn í Bandaríkjunum muni taka sig saman til þess að trompa Trump í hvað snertir boð í Doral. Anthony Baxter gerði heimildarmyndina „You´ve been Trumped“ um framgang Donald Trump við byggingu Trump golfvallarins  í Skotlandi.  Í myndinni sjáum við Trump m.a. kalla jarðeiganda við nýja golfvöllinn Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2011 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Charlotte lið Ólafs Loftssonar varð í 6. sæti

Ólafur Loftsson lauk leik í gær á Windon Memorial, en þetta var 2 daga mót haldið á Evanston golfvelllinum í Skokie, Illinois. Spilaðir voru 3 hringir;  2 á sunnudaginn og lokahringurinn í gær. Ólafur spilaði á samtals  +12 yfir pari, samtals 222 höggum (75 71 76), og deildi 52. sætinu með 4 öðrum.  Alls voru þátttakendur 90 úr 17 háskólum. Charlotte, háskóli Ólafs varð í 6. sæti í liðakeppninni.. Til þess að sjá úrslit í Windon mótinu, smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 17. 2011 | 20:00

Kylfingar 19. aldar: Nr. 2 Tom Morris yngri – III. hluti af 3

Leikstíll Tom Morris yngri var u.þ.b. 1,75 á hæð grannholda og sterklegur með mjög sterka úlnliði.  Hann greip um kylfuna með hendur u.þ.b. fingursvídd í sundur; en þetta var algeng tækni þess tíma. Hann var með langa baksveiflu og sveiflaði hart í flestum lengri höggunum, en hélt eftir nokkrum kraftbirgðum. Högg hans voru venjulega lág til meðalhá og náðu yfir langa vegalengd samanborið við flesta þá sem hann keppti við; þessi tækni hélt boltanum í leik, kom í veg fyrir vandræði og var góð lausn þegar það var mjög hvasst.  Hann var meðal fyrstu kylfinga til þess að móta boltaflugið (ens. shape shots) þannig að boltinn flaug í kúrvu, en Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 17. 2011 | 18:00

Tom Lewis hækkar um 455 sæti á heimslistanum

Englendingurinn ungi Tom Lewis, sem sigraði svo glæsilega á Portugal Masters nú um helgina er hástökkvari vikunnar á listanum yfir bestu kylfinga heims. Tom var í 852. sæti á heimslistanum í upphafi árs, en var búinn að koma sér 621. sætið fyrir þátttökuna á Portugal Masters.  Það var hækkun um 231 sæti og hefði mörgum þótt fínt. Við sigurinn á Portugal Masters, sem er fyrsti sigur Tom á Evrópumótaröðinni hækkar Tom Lewis hins vegar um heil 455 sæti og er nú í 166. sæti á heimslistanum. Af öðru markverðu á heimslistanum er helst að geta þess að Ben Crane komst við sigurinn á McGladreys í 50. sæti heimslistans en aumingja Lesa meira